Deila á Facebook
« 06.06.06 | Aðalsíða | Vinnan, skoðun og þreyta »

Svefnleysi og undurfagur sýn!
Skrifað þriðjud. 6. júní 2006 - 20:20
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Já, dagurinn er búinn að vera frekar strembinn. Ég fór kl 3 í gær upp í rúm og gat engan veginn sofnað. Eftir svona 100 mismunandi svefnstellingar, gafst ég upp, enda var klukkan þá orðin 7.

Ég skellti mér bara fram úr og hoppaði í sturtu. Fékk mér svo að borða og sjænaði mig fyrir vinnuna. Brunaði svo í Iðnskólann og kom á hárréttum tíma.

Fyrsti tíminn byrjaði hjá honum Guðmundi, yfirleiðbeinanda. Þetta er maður á sjötugsaldri, sem er hressari en andskotinn. Það er reyndar vaxinn mosi á húmorinn hans, en hann er ágætur. Hann spurði alla, hvern einn og einasta, hvað við störfuðum við, hvaða menntun við höfðum hlotið, hvaða áhugamál við áttum, hvað við höfum afrekað í lífinu, o.s.frv. Enda tók hver og einn 5 mínútur! Þetta var allt of lengi að líða, en var ágætt.

Svo eftir þetta fór ég í fjölmenningarfræðslu, þar sem fimmtug arabísk kona hélt fyrirlestur. Ég hef aldrei á ævi minni heyrt nokkurn tala svona bjagaða íslensku, en ég ætla nú ekki að setja mikið út á það. Hún meinti vel, þessi ljúfa snót.

Svo eftir það fór ég í skyndihjálp, í tuttugasta skiptið á ævi minni. Ég tel mig hafa getið haldið þennan fyrirlestur um skyndihjálp, þar sem ég er búinn að sækja svo mörg skyndihjálparnámskeið yfir ævina. En það var fínt að fá þetta einu sinni í viðbót... eða ekki!

Svo eftir vinnuna fór ég til Grétars í vinnuna. Spjallaði aðeins við hann, en vildi ekki vera að trufla hann of mikið, þar sem hann var mjög upptekinn maður og verkstjórinn var á svæðinu, þannig þetta var stutt og laggott.

Eftir það kíkti ég til Emma upp í Bón og Þvott, Vatnagörðum. Ég ruddist inn í matarpásunni þeirra, þannig ég stoppaði stutt. Reykti nokkrar sígó, spjallaði við kallana og kom mér svo burt þaðan. Fínt að hitta Emma kallinn.

Eftir það brunaði ég upp á Höfða til hennar Kollu, frænku minnar, á Hlöllabátum. Ég var nú ekki að fara að fá mér að borða. Mér leiddist bara svakalega, og hafði ekkert að gera, þannig ég ákvað að heilsa upp á Kollu. Þar reyktum við og spjölluðum á meðan Kolla og Krissi bjuggu til skinkubunka (skinka og ostur til skiptis). Það var mjög fróðlegt og gaman að horfa á þau gera þetta.

Svo eftir dágóða stund þarna í reykjarmekkinum, sá ég guðdómlega sýn. Jú, það var nýi Ford GT bíllinn, sem Brimborg var að flytja inn til landsins. Eina stykkið á landinu, takk fyrir, og ég sá hann með berum augum! Ég átti ekki orð fyrst, og rak bara upp undrunaróp og kveinaði þarna liggjandi á gólfinu í spenningnum. Hehe, nei segi svona. En ég rak upp mörg "VÁÁÁ!". Eftir öll þessi fagnaðarlæti, náði ég loksins að ná taki á kúlinu og rölti út til að skoða gripinn. Ég tók heilmargar myndir, sem þið getið nálgast hérna.

Ford GT tækið


Eftir alla þessar myndatökur, fylgdist ég með drengjunum frá Brimborg keyra tækinu inn í gám. Þeim tókst m.a.s. að klessa þetta gull! Þeir voru að keyra það inn í gám og settu ramp við gáminn, svo auðveldara væri að keyra inn í gáminn, en þeir misreiknuðu þetta eitthvað, þar sem þeim tókst að klessa svuntuna. Þ.e.a.s. hún rakst upp undir. Svekkjandi!

Brimborg aularnir að klessa dýrðina!


Svo rölti ég bara aftur inn til Kollu, kvaddi hana og fór bara heim. Hér sit ég eirðarlaus og stari út í loftið. Grétar og Eygló ætla samt að sækja mig og við ætlum að kíkja á kaffihús. Segjum þetta gott í bili.




Athugasemdir ():