Vinnan, skoðun og þreyta
Skrifað miðvikud. 7. júní 2006 - 17:50Það er alveg með ólíkindum hvað líkaminn minn er heimskur. Nú í nótt, þegar ég fór að sofa kl 11, eftir 36 tíma vöku, þurfti ég auðvitað að vakna kl 3 um nóttina. Hvernig er það hægt?!
Að vera ekki búinn að sofa í 36 kukkustundir og loksins þegar maður er alveg að detta niður af þreytu og fer að sofa, þá vaknar maður bara óvart eftir 4 klst! Hvað í andskotanum er málið eiginlega?!
Þó að ég hafi nú getað sofnað strax aftur, þá gerði þetta það að verkum að ég er endalaust þreyttur núna! 
En það þýðir ekki að væla yfir því liðna, þó það sé alltaf skemmtilegt.
En ég fór bara í vinnuna kl 8 í morgun. Dagurinn var ágætur, þar sem ég var nú ekki einn í fræðslunni. Jökull og Eygló ákváðu að veita mér félagsskap og mæta í dag, þannig ég var með sígó buddy og Eygló svo til að gera grín að.
Greyið Eygló las á blaði í morgun í hvaða stofu hún ætti að fara. Svo þegar hún og Jökull voru búin í tímanum, beið ég fyrir utan stofuna. Þá spyr ég Eygló hvort hún sé viss um að hún hefði átt að vera í þessari stofu, þar sem þau eru ekki í sama hóp. Þá segir hún: "Jááá, það stóð á blaðinu!". Svo þegar við förum að blaðinu, leitar hún að nafninu sínu og segir: "Sérðu! 401 stendur hér!". Svo þegar nánar er litið á blaðið stóð fyrir ofan: "EKKI STOFUNÚMER!". Hahaha, Eygló ljóska.
En ég elska þig samt. 
Eftir vinnu fór ég með bílinn minn í skoðun. Auðvitað stóðst hann fulla skoðun án athugasemda. Hvað annað?
En núna er ég að fara að vinna í Bónus Video. Ég er engan veginn að meika það, þar sem ég er gjörsamlega að leka niður af þreytu. Ég er í svolítilli tímaþröng, þar sem ég er að verða of seinn, þannig ég segi þetta bara ágætt í bili.

Athugasemdir (