Deila á Facebook
« Vinnan, skoðun og þreyta | Aðalsíða | Föstudagur - Ganga ofl. »

Fimmtudagur - Smá blogg
Skrifað föstud. 9. júní 2006 - 02:24
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, þá er þessi dagur loksins búinn. Ég vaknaði svolítið seint, þannig ég mætti aðeins of seint í vinnuna. Það var þó ekki heimsendir. Þetta var annars bara fínn vinnudagur, þó það hafi nú bara 50% af allri fræðslunni síast inn, þar sem ég var enn og aftur allt of þreyttur.

En ég er ánægður með að þetta sé búið. Ég held ég hafi ekki setið leiðinlegri tíma en kl 12-2 í dag. Staðardagskrá hét þessi tími (e. local agenda). Rétt þýðing væri í rauninni staðbundin verkaskrá, en þeir kusu að skíra þetta staðardagskrá. Ég dottaði svona 20x á þessum tveimur tímum. Ég veit ekki einu sinni um hvað þetta var, þetta var svo leiðinlegt.

En maturinn í dag var algjör snilld. Við fengum blómkálssúpu, kjúkling, kartöflur, gular baunir og sósu. Best fannst mér súpan. Ég fékk mér m.a.s. ábót. Ég er búinn að komast að því að ég er algjör súpukall. Eins og með súpuna á myndbandahátíðinni sl. Þar fékk ég mér ábyggilega 5 ábætur. En komst svo seinna að því að súpan hefði verið áfeng, þar sem ég var orðinn haugadrukkinn eftir þessar 5 ábætur. Það endaði með því að ég bað Guggu, þegar við vorum saman, að koma að sækja mig, og gerði hún það. Hehehe, stórhættulegar svona áfengar súpur.

En nú þegar ég minnist á Guggu. Ég held ég sé farinn að sakna hennar. Hef reyndar verið með svona söknunartilfinningu alveg síðan ég sagði henni að láta mig vera. En þessi söknuður, er það bara út af því að ég sakna þess að vera á föstu, eða er það út af því að ég sakna hennar? Það má Guð vita. Þessi hjúskaparstaða er ekki að ganga, þar sem mér líður best í sambandi. Maður segir oft: "Æjj það er bara gott að vera laus við þetta kvenfólk", en það eru bara orð. Því miður er voða lítil meining á bakvið þau. Manni finnst maður vera eitthvað svo einn og yfirgefinn svona á lausu, ekki með neinn til að halda utan um og elska.

En allavega, hættum þessu væli. Eftir vinnu stoppaði ég aðeins á Aktu Taktu og fékk mér meira kók og Mozarella ostastangir. Svo brunaði ég bara heim á leið. Á leiðinni heim er einhver stelpa á nýjum Hyundai Coupe að mana mig í spyrnur. Ég ákvað að ég myndi ekki láta mana mig í svoleiðis vitleysu, þar sem ég var tekinn 2x í sömu vikunni fyrir svolitlu síðan. Ítrekaði það við mig í kollinum og ekkert varð úr spyrnunni. Það endaði með því að gellan keyrði hliðiná mér, setti stút á varirnar og brunaði svo í burtu. Eins og hún væri að kyssa mig bless. Frekar skondið.

Svo þegar ég kom heim fór ég beint í tölvuna. Að sjálfsögðu. En klukkutíma fyrir hina vinnuna (Bónus Video), ákvað ég að leggja mig í hálftíma. Það varð nú ekki meira en það að ég lagði mig í rétt rúmar 20 mínútur. Vaknaði svo geðveikt þreyttur! Foreldrum mínum tókst að gera mig klikkað pirraðan, þannig ég dreif mig út og keyrði frekar greitt upp í vinnu. Alveg ótrúlegt hvað skapið skiptir sköpum þegar maður er að keyra. Ef maður er pirraður, keyrir maður of hratt. Maður ræður bara ekki við það.

En svo kom ég bara heim áðan. Tók tvær spólur; Derailed, með Jennifer Aniston. Einnig tók ég Wolf Creek, sem á að vera svona hrollvekjuspenna. Ég ætla að horfa á þær á morgun, þannig þá kemur í ljós hvernig þær eru.

Ég er búinn að plana að fara í bíó á morgun. Það eru örugglega komnir nokkrir mánuðir síðan ég fór síðast, þar sem ég er ekki búinn að sjá neitt af því sem er í bíó núna. Þar sem ég er svo mikið fyrir svona hrollvekjur, þá ætla ég að fara á The Omen, sem á að vera um einhvern mann sem eignast "fatlað" barn, þannig hann ákveður að ættleiða annað. Verst er að hann ættleiðir krakka, sem er sonur djöfulsins. Voða spennó, þó trailerinn sé ekkert spes. Ekki einu sinni ógnvekjandi. En það er bara að sjá myndina og dæma svo, ekki satt?

En núna ætla ég að fara að halla mér. Komið ágætt í bili. Ég þarf víst að vakna í vinnu á morgun.

En er ekki djamm um helgina? Ég held það nefnilega. Á morgun ætla ég allavega í bíó og svo skellir maður sér bara niður í bæ eða eitthvað. Spurning hvort maður kaupi sér meter af bjór á Kaffi Vín. Ég á allavega einn frían bjór á Bellý's, sem er nýr staður þar sem Palace var áður fyrr.

En núna ætla ég að drulla mér í rúmið. Ætti að vera löngu búinn að því.




Athugasemdir ():