Deila á Facebook
« Fimmtudagur - Smá blogg | Aðalsíða | Föstudagur og Laugardagur - Tvöfalt blogg! »

Föstudagur - Ganga ofl.
Skrifað föstud. 9. júní 2006 - 20:21
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, loksins er föstudagurinn runninn í garð. Þá er bara að taka upp djammgallann og skella sér á djammið, ekki satt?

Ég vaknaði kl 9 í morgun, fékk mér að borða og fór svo í vinnuna. Þegar við komum upp í Iðnskóla klukkan hálf 10, beið rúta eftir okkur, sem fór með okkur upp í Borgarleikhús.

Þegar við komum þangað, fór ég auðvitað strax á barinn. Það var reyndar ekki bjór í þetta skiptið, en ég fékk mér pepsi, þar sem hún átti ekki kók. Svo fórum við Jökull og Eygló upp og ég og Jökull fengum okkur sígó. Svo var okkur smalað inn í sal og þar voru haldnar ræður. Borgarstjórinn, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, var þarna og hélt að sjálfsögðu ræðu. Áfram grænt skipulag!

Svo eftir það, fengum við okkur aðra sígó uppi. Svo voru allir látnir labba upp í Skerjavör, þar sem pylsur og kókómjólk biðu eftir fólkinu. Við vorum í svona 1 klst að labba þetta, og var það ekki auðvelt í þessum steikjandi hita.

Eftir þetta allt saman, kom rúta og skutlaði öllum aftur upp í Iðnskóla. Þaðan fór ég svo með Eygló í ríkið og keypti kippu af Calsberg handa henni og Tuborg handa mér. Svo skutlaði ég henni bara að bílnum sínum og ég fór svo bara heim.

Þegar ég kom heim, settum við pabbi nýju græjurnar í bílinn minn. Þetta Pioneer mp3 spilari, með iPod eiginleikum. Þ.e. að ég get tengt iPodinn minn við spilarann, og svo skipt um lag o.s.frv. á spilaranum sjálfum. Einnig hleður hún iPodinn á meðan hann er í sambandi. Algjör snilld!

Svo núna áðan var ég í smá sjæni. Fínt að eiga mömmu, sem er hárgreiðslukona. Ég prófaði að láta lita á mér augnhárin, þar sem ég hef heyrt að það upplýsi augun, og þar sem ég er með brún augu, ákvað ég að slá til og prófa það. Systir mín sá um þessa deild, en mamma klippti og strípaði mig. Þannig það má segja að ég sé tilbúinn fyrir djammið.

Það er bara spurning hvað planið í kvöld sé. Mér er allavega boðið í partý hjá einhverri stelpu í Vinnuskólanum. Jökull og Eygló eru með henni í hóp, og bauð hún þeim, þannig þau ákváðu að spyrja hana hvort ég mætti koma líka. Ég mátti það!

Svo eftir það, ætli maður fari ekki bara niður í bæ. Ég og Grétar ætluðum að fá okkur meter af bjór á Vín, þannig það er spurning hvort maður geri það ekki bara. Ég, Jökull, Eygló, Grétar og Helgi erum allavega að fara að djamma. Þið hin verðið bara í bandi!

Bæjó, elskurnar.




Athugasemdir ():