Föstudagur og Laugardagur - Tvöfalt blogg!
Skrifað sunnud. 11. júní 2006 - 19:43Ég er ekki vanur að skrifa tvenn blogg í einni færslu, en ég gat ekki bloggað eftir föstudagskvöldið, vegna ölvunar og þreytu. Svo ætlaði ég að blogga um föstudagskvöldið á laugardeginum, en ég vaknaði svo seint að ég varð að drífa mig að taka mig til, þar sem ég var að fara að djamma aftur á laugardagskvöldinu. Þess vegna hendi ég báðum dögunum hingað inn.
Extra langt super blogg! 
Föstudagur: Ég byrjaði að sjálfsögðu á því að taka mig til. Svo seinna um kvöldið, þegar ég var tilbúinn, bauðst mamma til að skutla mér í partýið til Gullu. Hún var að halda partý fyrir flokkstjóra í Vinnuskólanum, og auðvitað kíkti maður þangað.
Þegar ég kom, var ekki stoppað lengi. Ég rétt náði að henda bjórnum mínum inn í ísskáp þegar þau skyndilega ákváðu að færa sig yfir til Rannveigar, þar sem foreldrar hennar Gullu voru að koma heim eða eitthvað. Ég, Jökull, Rannveig og Sigga fórum öll saman og komum við uppi í Bónus Video. Það var svo brjálað að gera þar, þannig ég hoppaði inn fyrir borðið og afgreiddi Jökul og Rannveigu. Hentugt.
Svo þegar það var komið til Rannveigar, var skellt bjórnum sínum inn í ísskáp og haldið áfram að drekka. Við fórum í ýmislega drykkjuleiki og sumir voru orðnir svolítið ölvaðir á tímabili.
Svo í lokin fórum við í "Ég hef aldrei", sem er snilldar leikur. Stemmningin jókst 100falt eftir að við fórum í hann. Maður komst líka að ýmsu um fólk þarna. 
Svo seinna um kvöldið þegar klukkan var eitthvað í kringum 1, ákváðu allir að fara niður í bæ. Jökull hringdi í Agnesi, systir sína, og kom hún og sótti mig, Jökul og Eygló. Hún skutlaði okkur á Sólon, þar sem stemmningin var. Í raun var engin stemmning, þar sem staðurinn var gjörsamlega tómur! Ég, Grétar, Jökull, Helgi, Eygló og Oddur fórum bara á dansgólfið og trylltum það gjörsamlega! Gummi Jóns var að vinna, og bauð hann kallinum upp á Aygo, sem er algjör snilldar drykkur!
Takk, elskan! 
Þegar það fór aðeins að síga á kvöldið ákváðum við að kíkja eitthvað annað. Ég kvaddi Gumma og lofaði honum að koma aftur. Svo röltum við niður á Hressó, þar sem eitthvað Vinnuskólapartý var í gangi. Tilboð á barnum og læti, þannig við skelltum okkur. Við hittum ófáa sem við þekktum og var bara hlaupið á dansgólfið að dansa. Of gaman!
Svo seinna bauð Oddur okkur strákunum upp á skot og bjór. Ég man þegar bardaman var að kveikja í skotunum, og það sullaðist hjá strákunum og borðið logaði, en við blésum bara á það, þannig það slokknaði. Svo blésum við á skotið og þömbuðum það svo. Þetta skot hét víst B52 (bí fiftí tú), og var það í boði Odds. Takk, kall! 
Ég man að ég, Helgi og Jökull fórum á Gaukinn. Þar var Sign að kynna nýju plötuna sína; Thank God for Silence, sem er snilldar plata! Við vorum þarna að fíla okkur í botn, á meðan Helgi hélt bara fyrir eyrun. Ég verð að segja að ég lét mér sko ekki leiðast! Algjör snilld!
Mig minnir að þetta hafi verið endirinn á kvöldinu hjá öllum nema mér, þar sem við fórum á Hlöllavagninn og fengum okkur að borða. Eftir það ákváðu Grétar, Oddur og Jökull að fara bara heim, þar sem þetta væri orðið gott. Mig langaði að vera lengur, þannig ég fór ekki með þeim. Helgi var farinn þarna með Jóa, sem kom að sækja hann. Helgi var að fara að vinna kl 8, þannig það var ágætt að fá smá svefn fyrir vinnuna.
Eftir að strákarnir fóru rölti ég bara á Sólon, heilsaði upp á Gumma á barnum og fékk bara vatnsglas hjá honum. Áfengið var byrjað að kicka svolítið inn, þannig ég ákvað bara að hætta að drekka og fékk mér vatn.
Ég sest þarna bara þarna hjá einhverri stelpu. Seinna byrjar hún að tala við mig á fullu. Ég reyni að veita henni eins mikla athygli og ég möguleika gæti, sem var erfitt, þar sem ég var frekar fullur. En það endaði með því að við fórum að dansa og eitthvað. Seinna kom Jökull aftur, þar sem Grétar og Oddur höfðu stungið af með leigubíl. Jökull ákvað þá bara að bíða eftir Danna, þangað til hann kæmi að sækja sig. Svo stuttu seinna fór hann aftur. Ég hitti Magga MikeTee þarna, þannig við fórum bara að dansa. Ég, stelpan, sem heitir víst Dóra, og Maggi.
Seinna ákváðum við Maggi að fara eitthvað annað, og sögðum við Dóru það, en þá sagði hún að hún hefði einmitt verið að spá í því sama. Þannig við röltum á Glaumbar. Þegar við komum þangað, byrjar Dóra að leiða mig. Í fyrstu, kippi ég mér ekkert upp við það, en svo fæ ég bara nóg, þar sem mér fannst hún vera orðin frekar uppáþrengjandi. Ég mátti ekki fara á klósettið, án þess að hún kæmi með, út af því að hún VISSI að ég myndi stinga af.
En ég hef það bara ekki á samviskunni að geta sagt við fólk: "drullastu í burtu, ég vil ekkert með þig hafa", þannig ég sat uppi með hana allt kvöldið. Svo reyndi hún að kyssa mig, þannig ég gafst bara endanlega upp og sagðist vera á föstu. Ég þurfti ss. að ljúga að þessari stelpu að ég væri á föstu, út af því að hún vildi ekki hætta að reyna við mig!
Ég var ss. búinn að vera í 3 ára sambandi við stelpu sem hafði ekkert nafn, og vorum við aldrei búin að rífast.
Ástæðan af hverju ég sagði að við hefðum aldrei rifist, var út af því að hún var alltaf að spyrja hvort við hefðum einhverntíman rifist, og var þ.a.l. að vonast til þess að sambandið færi að fjúka. Hahaha!
Svo þegar ég sagðist vera á föstu, þá laug hún því að mér að hún væri að deita einhvern gaur. Hún sýndi mér mynd af honum í símanum sínum, og ég get svo svarið það, þetta var bara tekið af einhverri model síðu.
Svo til að toppa þetta gjörsamlega, tók hún símann af mér, stimplaði númerið sitt inn og vistaði það í símaskránni, svo ég hefði pottþétt númerið hennar svo ég gæti hringt í hana, sem ég mun aldrei gera.
Svo til að toppa þetta ógeðslega uppáþrengjandi kvikindi, hringdi hún í símann sinn úr mínum síma svo hún hefði nú örugglega númerið mitt.
Djöfull var ég næstum því farinn að gráta.
Svo spurði hún mig hvað hún ætti að gera í sambandi við þennan gaur, og ég sagði bara: "NÚMER EITT TVÖ OG ÞRJÚ ER AÐ VERA EKKI UPPÁÞRENGJANDI!". 
Svo til að losna frá þessu kvikindi, sagði ég að félagi minn væri kominn að sækja mig. Ég hoppaði út og þar keyrði Gummi fram hjá mér. Ég sest inn til hans, en þá var hann búinn að bíða í 15-20 min eftir mér!
Ég gjörsamlega gleymdi því að hann væri ekki með síma á sér og gæti ekki hringt þegar hann væri fyrir utan. Sorry, kall.
Og takk æðislega fyrir farið. 
Laugardagur: Ég vaknaði allt of seint, eða kl 8. Ég dreif mig á fætur og skellti mér í sturtu. Foreldrar mínir voru víst farnir á Akureyri, þannig ég var einn heima. Í þá mund sem ég var að vakna, var systir mín að fara. Eftir að vera búinn að gera sig kláran, bið ég Jökul um far. Hann segir mér bara að hoppa yfir. Við ætluðum sko í partý til Gumma, og ætluðum við að mæta 6-7 og grilla saman, en það misheppnaðist eitthvað. Ég vissi að við myndum ekki stoppa það lengi að ég myndi ná að grilla eitthvað, þannig á leiðinni bað ég Jökul og Agnesi um að stoppa í bílalúgu, þannig ég fékk mér hamborgara, franskar og kók.
Þegar við komum til Gumma fór ég beint inn í eldhús og byrjaði að borða. Strákarnir voru bara frammi í einhverjum drykkjuleikjum. Ég, Gummi, Helgi, Halli, Jökull og Ívar. Seinna komu Jói, Grétar og Guðmann. Djöfulsins snilld var þegar Guðmann mætti. Hann mætti með gítarinn sinn og spilaði alveg ótrúlega skemmtileg lög, sem mjög fáir í vinahópnum geta spilað. Þetta var svo gaman!
Eftir að bjórinn var búinn, ákváðum við að fara. Jói var búinn að bjóða mér far, en Björgvin var kominn og vantaði fólk til að fylla bílinn, þannig ég, Grétar og Jökull fórum með honum. Við brunuðum auðvitað beint í Nauthólsvíkina, þar sem Hjalti baby var að halda afmælis- og útskriftarveislu.
Þegar þangað var komið, var partýið rétt að byrja. Allir mættu svo seint, að stuðið hófst ekki fyrr en eftir 12. Við heilsuðum Hjalta og óskuðum honum til hamingju með afmælið og útskriftina um daginn, og fórum svo inn að heilsa fólkina og drekka meiri bjór.
Það sem varð til þess að allir fóru, var einn aðili; Ingvar. Honum var ekki boðið þarna, en hann mætti samt. Hjalti var m.a.s. búinn að taka það skýrt fram að honum væri ekki boðið, þannig hann ætti ekkert erindi þarna. Fólk fór að gera sig líklegt til að henda greyinu út. Eins og t.d. Ívar GunDo ofl. sem voru þarna. Svona er þegar tveir aðilar, sem hata hvorn annan, eiga sama vinahóp. Það er ekki gott.
En partýið endaði svo þegar fríi bjórinn var búinn. En ég er búinn að finna ráð til að halda fólki endalaust í partýi. Það er auðvitað að láta frían bjór flæða endalaust. Það er lykillinn að því að halda partýi gangandi.
En svo fékk fólk leið á þessu öllu saman, og ákvað að drífa sig í bæinn. Þ.á.m. ég, Jökull, Helgi, Ingvar, Jói, Grétar ofl. drifum okkur í bæinn. Við ætluðum að rölta þetta bara, en einhver var búinn að panta taxa, og sagði okkur að fara í hann. Ég spurði hvort Jökull ætlaði ekki að koma með, en þá sagði einhver inni í taxanum: "Nei, hann sagðist ætla að rölta þetta". Nei nei, þá ætlaði hann bara að rölta þetta út af því að við sögðumst fyrst ætla að labba. Þannig greyið kallinn þurfti að labba alla leiðina. En ég og Grétar vorum sammála um það að hefðum við vitað að honum hefði ekki langað að labba, hefðum við báðir stukkið út og labbað með honum. Sorry, kall.
Þegar við komum niður í bæ, röltum við niður laugarveginn. Grétar var svo góður að splæsa taxanum, enda var þetta bara einhver skitinn 1000 kall. Við röltum niður laugarann syngjandi lagið Crazy með Gnarls Barkley, sem er ekkert nema gott lag.
Við kíktum inn á Sólon og heilsaði ég upp á Eygló. Eygló mundi eftir skuldinni og borgaði hana til baka í tveim kokteilum (Breezer + vodka). Geðveikt gott!
Takk, Eygló mín.
Þegar ég var búinn að hella í mig þessum kokteilum hélt ég upp á efri hæðina. Þar hitti ég Pálmar. Hann var auðvitað edrú. Það verður nú einhver að vera driver og skutla vitleysingunum. 
Þegar ég kom upp, sá ég að Grétar var að dansa fyrir aftan Heiðrúnu, sem var með okkur í kór. Svo sá ég voða sæta stelpu sem var fyrir framan Heiðrúnu ekki með neinn dansfélaga, þannig ég labbaði upp að henni og spurði hana hvort ég mætti dansa við hana. Hún samþykkti það, og byrjuðum við að dansa saman. Svo endaði það með því að við kysstumst.
Svo eftir allan dansinn, bauð ég henni upp á bjór. Hún sagðist heita Helga og sagðist búa inn á milli úti á Kjós. Ég er alltaf svo klár í því að finna mér stelpur sem búa lengst í burtu.
En mér er alveg sama um það. Svo þegar við fórum, vorum við úti fyrir utan heillengi að faðmast. Gátum ekki hætt.
Svo fékk ég númerið hjá henni og kvaddi hana með kossi. 
Stuttu eftir að Heiðrún og Helga fóru, lenti Ívar í einhverjum svaka samræðum við einhvern gaur. Við vorum þarna fyrir neðan Sólon, en þeir voru fyrir framan Sólon. Svo seinna lítum við upp til Ívars og sjáum hann þá vera að sparka í gaurinn. Það voru ss. slagsmál hafin. Ég reyndi nú að blanda mér eins lítið í það og ég gat. Við hlaupum þarna til þeirra og þá hætta þeir að slást en Ingvar og vinur hins gaursins byrja að slást. Þeir liggja þarna í jörðinni og gaurinn undir Ingvari. Maður heyrði gaurinn öskra eitthvað: "Ég er einhentur, láttu mig vera!". Ég og Grétar rifum gaurinn af Ingvari. Á meðan Ingvar er að tala við Grétar, fer ég og er utan í gaurnum og held honum frá Ingvari. Þá var hann víst búinn að taka myndavélina af Ingvari. Svo fer gaurinn bara. Ingvar segir okkur þá að gaurinn sé með myndavélina sína. Ég hleyp þá að gaurnum og segi honum að skila myndavélinni hans og gerði hann það.
Eftir þetta rugl, var Ingvar með stóran skurð á enninu og með brotna tönn og eitthvað. Grétar þekkti þennan gaur, þar sem hann var að æfa með sér kickbox. Grétar sagði að hann væri svaka harður, en maður hugsar ekki um svoleiðis þegar vinir manns eru annars vegar. Ég samt gerði ekki neitt, nema að halda gaurnum frá Ingvari og að redda myndavélinni hans. Þó ég hafi ekki haldið mér í fjarlægð, þá var sárafátt sem ég gerði, og færi gaurinn varla að ráðast á mig fyrir ekki neitt. Eða hvað?
Eftir þetta sitjum við þarna og einhver stelpa byrjar að hjúkra Ingvari. Ég sagði henni bara að láta þetta kyrrt, þar sem svona skeinur, ef maður lætur þær í friði, storkna. Hún var að kroppa allt storknaða blóðið af, þannig honum byrjaði að fossblæða aftur. Gáfuð!
Við biðum bara þangað til Eygló var búin að vinna. Þegar hún var búin, skutlaði hún okkur heim. En það var ekki farið heim, fyrr en maður væri búinn að borða. Ég bað hana um að fara á Hlöllavagninn, en hann var ekki þarna!
Þannig við fórum þá á Hlölla á Ingólfstorgi, en hann var búinn að loka.
Ég reyndi að tala við Svabba, sem er yfir þarna, en hann hlustaði bara ekkert á mig. Maður getur ekkert sætt sig við Subway drasl, þegar maður er búinn að vera að hugsa um Hlölla allt kvöldið. 
En það var ekkert annað í stöðunni en að fara á Subway. Það var nú bara ágætt, þar sem ég gjörsamlega kaffærði bátnum mínum í ostasósu, sem er að mínu mati besta sósan á Subway. Svo skutlaði Eygló okkur bara heim.
Var ég búinn að segja að Eygló væri svooooooooo mikil dúlla?
Hehe, hún hatar þetta. 
En allavega, þegar við komum heim, fórum við Jökull bara á gangstéttina hjá mér og lögðumst á hana. Lágum svo þarna smá stund reykjandi. Djöfull var það gott. Ef við hefðum verið með eitthvað mýkra undir hausinn, hefðum við alveg getað sofnað þarna!
En við gerðum það ekki, þar sem ég stóð bara upp og dó svo inni í rúmi.
Svo núna kl 5 var ég að vakna. Ekkert þunnur!
Fór beint í tölvuna og skrifaði þetta FOKKING LANGA blogg.
En það er að verða búið vonandi.
Þeim sem tókst að lesa þetta eiga skilið að fá Thule!
En allavega, við strákarnir ætlum að fjölmenna og fara í bíó á eftir. Það er aldrei að vita nema að maður dragi Helgu með.
En við ætlum að fara á The Omen.
Eigum við ekki bara að segja þetta gott í bili.

Athugasemdir (