Aftur orðinn veikur - Er þetta löglegt?
Skrifað þriðjud. 13. júní 2006 - 13:51Ég er víst orðinn aftur veikur, þannig núna ligg ég bara hér heima og vorkenni sjálfum mér. Eftir vinnuna í gær, var ég orðinn mjög slappur, þannig ég fór að sofa stuttu eftir afmæliskvöldverðinn. Systir mín átti afmæli, þannig við elduðum lambaprime og buðum Berglindi Eygló, vinkonu systir minnar, kærasta systir minnar, honum Gumma, og foreldrum hans. Máltíðin var mjög góð, en hefði verið mun betri, hefði ég ekki verið svona slappur, þar sem ég fann voða lítið bragð.
Núna er ég bara búinn að liggja uppi í rúmi í allan dag. Vaknaði kl 7 í morgun og var alveg að drepast. Hringdi mig inn veikan í vinnunni og fór aftur að sofa. Svo vaknaði ég áðan kl 11 og fór bara beint í tölvuna. Er búinn að vera þar síðan. Ég vil ekki sofa meira, þar sem ég á ekkert eftir að sofa í nótt, ef ég sef lengur. Þess vegna er ég bara kominn á fætur.
Ég er að fara til læknis á eftir. Mamma heldur að ég sé með berkjubólgu (e. bronkitis). Ég er með flest öll einkennin, þannig það gæti vel verið.

Ég ætla að fara að taka sýklalyf, svo ég losni nú við þetta fyrir Bíladaga á Akureyri. Ég var með þetta "kvef" fyrir 2 vikum, en svo kom þetta aftur í gær, eftir smá útiveru. Það væri slæmt ef þetta væri ekki farið fyrir helgina, þar sem ég ætla mér að fara á Bíladaga!
En núna er ég bara að fara að horfa á sjónvarpið og hanga eitthvað í tölvunni. Hvað annað er hægt að gera? Heyri í ykkur, elskurnar.

Mynd tekin af Vísindavefnum

Athugasemdir (