Deila á Facebook
« Aftur orðinn veikur - Er þetta löglegt? | Aðalsíða | Frábær dagur »

Heimsókn til læknis
Skrifað þriðjud. 13. júní 2006 - 17:57
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Eru allir læknar fífl eða er þetta skilyrt við þessa einu heilsugæslustöð?

Ég fór til læknis áðan, á svokallaða læknavakt frá 4-6, fyrir þá sem eiga ekki pantaða tíma. Byrjaði á því að labba að þessari grautfúlu skrifstofudömu, sem sýndi öllum hversu fúl hún væri að þurfa að vera að vinna. Hún byrjaði á því að skrá kennitöluna mína á einhvern biðlista og sagði mér svo að setjast.

Stuttu seinna kallaði hún nafnið mitt upp og ég fór til hennar. Þá rukkaði hún mig um 1750 kr. og sagði mér að setjast aftur.

Eftir langa bið kallar læknirinn á mig. Ég labba að honum og býð honum góðan daginn. Hann svarar ekki og segir svo: "Gerðu svo vel", og vísar mér inn á stofuna sína.

Hann segir mér að fara úr peysunni minni og setjast á bekkinn. Ég geri það. Hann byrjaði auðvitað á því að spyrja hvort ég reykti, og svaraði ég játandi. Þá byrjaði hann að röfla um skaðsemi reykinga og hversu hallærislegt þetta væri núna á 21. öldinni. Svo sagði hann: "Það er ekkert að þér. Hættu þessu væli og hættu bara að reykja".

Áður en ég fór til hans, var ég búinn að lesa mér til um Bronkitis og spurði hann að ganni hvort það væri hugsanlega að ég væri með það. Hann svaraði þá: "Auðvitað ertu með það. Viltu fá eitthvað við þessu?". Uhm, nei, ég kom bara til þín til að fá heimskuleg ráð um að hætta að reykja. Auðvitað vil ég fá eitthvað við þessu! Þá skrifaði hann lyfseðil fyrir mig upp á eitthvað pensillín.

Þegar ég fer svo í apótekið til að ná í þetta helvítis pensillín, kostar það einhvern 2500 kall. Það er greinilega ekki hlaupið að því að verða hraustur ef maður á engan pening.




Athugasemdir ():