Deila á Facebook
« Heimsókn til læknis | Aðalsíða | Akureyri - Hér kem ég! »

Frábær dagur
Skrifað fimmtud. 15. júní 2006 - 16:10
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, djöfull er ég ánægður núna. Þetta er frábær dagur!

Var að koma úr vinnunni. Ég er alveg dauðþreyttur eftir vinnuna, en mér er sama. Krakkarnir voru erfiðir í dag, en mér er sama. Ég er að fara að vinna í Bónus Video á eftir, en mér er sama. Af hverju er mér sama? Jú, út af því að þetta er frábær dagur!

En af hverju er þetta svona frábær dagur? Ég var áðan á leiðinni heim úr vinnunni í rútu og nýi rekstrarstjórinn í Bónus Video (Valdís) hringir í mig og spyr mig hvort ég geti unnið á morgun. Ég fyrst hugsa með mér: "Uhh, þessi helgi sem er að koma er vinnuhelgin mín. Auðvitað er ég að vinna á morgun. Hvað er hún að bulla?" og segi svo í von um að hún fatti ekki að þetta sé vinnuhelgin mín: "Nei, ég get það því miður ekki. Ég þarf reyndar að fá frí líka á sunnudaginn". Þá segir hún: "Þú ert ekkert að vinna á sunnudaginn. Ég tók þig af öllum helgum, þar sem þú baðst mig um að gera það fyrir svolitlu síðan". Vááá, hvað ég varð ánægður við að heyra þetta! Þetta þýðir bara eitt: ÉG ER AÐ FARA Á BÍLADAGA!

Ég var búinn að steingleyma því að ég hefði beðið Valdísi um að fá að sleppa öllum helgum og vera bara á fimmtudögum, og vissi ég ekki að hún ætlaði virkilega að gera það. En hún gerði það, og ég fer á bíladaga og djamma allar helgar í sumar því að þakka! GEÐVEIKT!!!

Bíladagar á Akureyri er árlegur viðburður, svipað og þjóðhátíð, ljósahátíð, o.s.frv. Þetta er bara risastór bílasýning og bílaviðburður, þ.e. fólk er nýbúið að gera eitthvað við bílana sína, og kemur á þeim til að sýna þá. Einnig er götuspyrna þarna, þannig það má ekki missa af þessu! Þetta er samt í fyrsta skiptið sem ég fer. En fyrst og fremst er þetta FYLLERÍ!

En annars er ég eiginlega að verða búinn að ná mér yfir þetta kvef. Ég fór til læknisins og fór á pensillín og það er að hjálpa mjög mikið. Þannig ég verð orðinn góður á morgun!

Hvað er betra en að fara í útileigu fyllerí með vinum sínum?

Sigurbaldur, einnig kallaður Sjalli. Hann er vinnufélagi minn í Vinnuskólanum. Hann er með mér í Hestabrekkum með hóp eins og ég. Frábær náungi!


Núna er ég bara að bíða eftir því að Grétar komi heim svo við getum farið í ríkið saman. Svo fer ég bara að vinna. Segjum þetta gott í bili, elskurnar.




Athugasemdir ():