Deila á Facebook
« Bíladagar á Akureyri - Myndir | Aðalsíða | Ást við fyrstu sýn »

Bíladagar á Akureyri - Ferðasaga
Skrifað mánud. 19. júní 2006 - 17:59
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, hvernig var helgin? Hún var frábær! Ég ákvað að skrifa smá ferðasögu handa ykkur, elskurnar mínar.

Á föstudeginum byrjaði maður á því að gera sig kláran. Taka til draslið, skella sér í sturtu, fá sér að borða og svona. Svo þegar það allt var komið, beið ég bara eftir Helga. Svo hringdi Helgi og spurði hvort ég vildi vera frammí, og auðvitað svaraði ég játandi. Þannig hann kom og sótti mig fyrst. Þegar hann kom, var ég að enda við að skrifa disk til að hafa í bílnum á leiðinni. Svo henti ég draslinu inn í bíl, kvaddi mömmu og pabba og settist svo inn í bíl.

Því næst fórum við til Grétars. Hann var enga stund að drulla sér út og inn í bíl. Þá stoppuðum við á Shell, fengum okkur að borða, tókum bensín ofl. Fórum svo til Gaua, bróðir Gumma Jóns, sem ætlaði að koma með okkur til Akureyrar, þar sem Gummi, bróðir hans, fór til Akureyrar á fimmtudeginum. Hann tróð töskunum í bílinn og settist inn. Þá lögðum við af stað!

Eins og sjá má, vorum við allir byrjaðir í bjórnum strax og við lögðum af stað, nema Helgi, þar sem hann var að keyra.


Ferðin var fín. Við vorum með nóg af tónlist til þess að halda uppi fjörinu, og að sjálfsögðu sungum við hástöfum með, alla leiðina! Við vorum frekar lengi á leiðinni, þar sem við allt þetta bjórþamb, þurftum við að pissa á hálftíma fresti. Einnig þurftum við Gauarnir að reykja, þannig það var stoppað svolítið oft.

Ég man ekkert hvar þetta er, en þetta var allavega eitt stoppið okkar. Þarna má sjá Grétar, Gaua og Helga


Þegar komið var á Akureyri, byrjuðum við á því að skutla Gaua til Gumma, bróður síns. Spjölluðum aðeins við Steina, Gumma, og félaga, og héldum svo af stað til að finna tjaldstæði. Helgi var líka að farast, honum langaði svo mikið í bjór, þannig við drifum okkur. Að lokum gáfumst við upp og hringdum í Andra WRX, og sagði hann okkur að koma í Hamrana í Kjarnaskógi. Við brunuðum auðvitað þangað, og viti menn, við fundum sko tjaldstæði, þar sem allir sem við þekktum voru.

Við byrjuðum á því að bíða heillengi í röð í skítakulda eftir því að geta keypt miða inn á svæðið. Ég veit ekki alveg hvernig hann fór að því, en Grétari tókst að sleppa því að borga inn á svæðið, en samt fá armband. Furðulegt. Nóttin kostaði 800 kr., og keyptum við allir tvær nætur, þannig það var 1600 kr. á haus. Ég þurfti að borga 3200 kr., þar sem Helgi átti engan pening.

Eftir að við vorum búnir að kaupa miða inn á svæðið, fórum við og lögðum bílnum og fundum svæði til að tjalda á, hliðiná fólkinu sem við þekktum. Við fundum ágætis blett þarna, sem við tjölduðum á. Tjöldunin gekk ágætlega, en þar sem við Grétar vorum búnir að drekka mjög mikið á leiðinni, var ekki mikil hjálp í okkur, þannig Helgi þurfti að tjalda helvítis tjaldinu.

Ég hefði nú átt að koma með meiri bjór, þar sem ég kláraði heila kippu á leiðinni. Þannig til þess að ég gæti átt hina kippuna fyrir morgundaginn, fór ég í það að sníkja, og var Eygló fórnarlambið. Takk, Eygló mín.

Við settumst svo bara niður, þömbuðum bjór og sungum hástöfum með undir fögrum gítarleik hjá Helga.

Eins og sjá má á þessari mynd, vantaði ekki stuðið þarna.


Ég man ekki alveg eftir restinni af kvöldinu, en það innihélt mikið af drykkju og mikið af söng. Svo eftir drykkjuna, var bara skellt sér í háttinn rétt upp úr 7. Stuðið var sko ekki dautt þá, en maður ákvað að fara að lúlla svo maður gæti haldið áfram næsta kvöld, en ekki verið örmagna af þreytu.

Hiklaust mynd helgarinnar


Næsta dag vöknuðum við upp úr 12 um hádegið. Sólin var á sínum stað, en hefði mátt vera sterkari. Við byrjuðum daginn á því að tannbursta okkur og fá okkur bjór. Svo fórum ég, Helgi, Grétar og Anja, að borða á Bautanum. Hvers konar nafn er það? Mér leist í byrjun ekki nógu vel á þennan stað, þar sem ég man eftir því að hafa sagt við afgreiðslustúlkuna þegar við komum inn: "Er eitthvað ætt hérna?". Ég er ekki vanur að vera svona mikill dóni, en löngunin í sleazy börger fékk að ráða ferðinni þarna. En svo fengust hamborgarar og sleazy matur þarna, þannig ég var geðveikt feginn. Svo þegar við vorum að fara, reyndi ég að sleppa því að borga allan matinn, en það komst upp, og skammaðist ég mín ógeðslega mikið. Vondur dreng!

Helgi geðveikt ferskur á Bautanum


Ég man ekki alveg hvað við gerðum eftir matinn, en það var allavega smá rúntur, og svo bara upp á tjaldstæði aftur að drekka meira.

Um kvöldið fórum við á gistiheimilið þar sem Eygló, Anja og Sandra gistu. Strákarnir fengu sér bjór og horfðu á handboltann, á meðan ég spjallaði við stelpurnar. Svo eftir það, fórum við út að borða á einhvern ítalskan stað. Ég hélt í vanann og fékk mér að sjálfsögðu pizzu, á meðan hinir fengu sér lasagna og eitthvað fleira.

Kózý kvöld úti að borða.


Eftir matinn fórum við svo aftur á gistiheimilið. Ég man á leiðinni vorum við að keyra hliðiná stelpunum, og Anja var að keyra, og hún missti bílinn smá, þannig það munaði litlu að þær hefði lent inni í hliðinni á okkur. Ég man eftir því að við hlógum ógeðslega mikið af þessu og vorum skíthræddir eftir þetta að keyra nálægt henni. Anja, þú ert dúlla. ;*

Þegar við komum á gistiheimilið, skellti ég bjórnum mínum inn í frystinn, á meðan ég drakk einn hlandvolgan bjór, sem var búinn að vera í bílnum frá því að við lögðum af stað frá Reykjavík. Helgi hélt uppi fjörinu með gítarnum sínum og fórum við svo í drykkjuleikinn "Ég hef aldrei". Það kom margt í ljós um hann Grétar, sem okkur Helga finnst alltaf jafn fyndið að heyra.

Seinna um kvöldið vantaði okkur að komast upp á tjaldsvæði aftur, þannig Helgi hringdi í vinnufélaga sinn Villa, sem kom og sótti okkur. Hann var m.a.s. það góður að skilja bílinn sinn eftir, keyra Helga bíl upp á tjaldsvæði, skilja hann svo eftir þar, og hringja svo í félaga sinn til að láta sækja sig og skutla sér aftur að bílnum sínum. Takk fyrir þetta, Villi.

Mikið fjör og mikið gaman. En eins og sjá má, eru sumir vel í því þarna. Ég nefni engin nöfn.


Þegar við vorum að keyra upp á tjaldsvæði með honum Villa, sáum við rauðan Hyundai Getz úti í vegarkantinum. Ég öskraði: "Þarna er Jökull!". Helgi vildi ekki trúa því að Jökull væri kominn á Akureyri. Ég var svo handviss um að þetta væri Jökull, þannig við fórum upp að honum og þá kom í ljós að þetta var Jökull! Kallinn tók sig til og keyrði einn frá Reykjavík til Akureyrar á innan við 4 tímum. Hann lagði af stað kl 8 og var kominn hálf 12, þannig hann var í 3 og hálfan tíma á leiðinni. Sumir voru greinilega að keyra svolítið hratt.

Jökull fylgdi okkur upp á tjaldsvæði, þar sem hann lagði bílnum og byrjaði að þamba bjór. Seinna hittum við Gumma, vin okkar, sem við höfum ekki hitt lengi! Hann býr á Akureyri með Söndru, kærustunni sinni. Hann flutti frá okkur úr Reykjavíkinni fyrir svolitlu síðan. En við hittum hann þarna, og var hann þokkalega hress á því. Einnig hittum við Óla Alert, þannig múgur og margmenni, sem við þekktum, voru mætt á Bíladaga. Þokkalegt stuð!

Jökull og Gummi


Fólki langaði svo í bæinn, þannig Gummi var svo góður að skutla okkur í bæinn, en það endaði með því að við fórum bara aftur upp á tjaldsvæði, þar sem Helgi fór bara snemma að sofa. Gummi skutlaði þá okkur Jökli aftur upp á tjaldsvæði, og kvöddum við hann svo.

Ég og Jökull röltum í bílinn hans og fengum okkur að borða. Jökull var vel undirbúinn undir útileiguna, þar sem hann var með fullan bíl af samlokum og allskyns áleggi. Svo auðvitað var hann með kók. Mmmm...

Fyrr um kvöldið var algjört rugl. Það byrjaði auðvitað á því að einhver kjáni slasaði sig með því að detta úr svona renni-belg. Ég man bara að Grétar kom hlaupandi til mín og bað mig um að koma með sér, þar sem einhver gaur hafði slasað sig. Þegar við komum að greyið manninum liggjandi á bakinu, voru gæslumenn í kringum hann. Ég man eftir því að Grétar sagði við gæsluna: "Leyfið honum að kíkja á hann, þar sem hann veit nákvæmlega hvað er að honum, þar sem hann er búinn að sækja ótalmörg skyndihjálparnámskeið". Hehehe, takk Grétar, fyrir að hafa svona mikla trú á mér. En því miður hleyptu gæslumennirnir mér ekki nálægt sjúklingnum. Svo kom sjúkrabíll og fór með hann á sjúkrahús. Þetta var víst einhver vinur hans Palla, þannig Palli fór upp á sjúkrahús með honum.

Eftir þetta sé ég einhverja gaura kveikja í einhverri númeraplötu. Ég labba að þeim og sé að númeraplatan er merkt 2FST4U. Þetta var þá númeraplata Viktors Angelic0. Hann hefur aldrei verið neitt vinsæll af öllum þessum bílaklúbbum, en fyrr má nú vera að ráðast á eigur mannsins. En allavega, eftir þetta varð til þess að Viktor brjálaðist og það endaði með því að hann kýldi Þossa. Það var ekkert sérlega gáfulegt, þar sem 50% af liðinu þarna þekktu Þossa, þar á meðal Íslandsmeistarinn í hnefaleikum, hann Egill.

Löggan kom til að stoppa þetta rugl og endaði með því að handtaka Viktor. Það skapaðist svo mikill æsingur í vinum Þossa að ná Viktori úr löggubílnum, að það var byrjað að grýta löggubílinn með allskyns drasli og byrjað að vagga honum. Löggan stökk út og hótaði að nota maze'ið sitt, en ég sá ekki að hún hafi gert það.

Eftir þetta allt saman, byrjaði fólk að safnast saman og bíða spennt eftir því að Viktor kæmi aftur. Grétar var m.a.s. byrjaður að blanda sér svo mikið í þetta, að ég þurfti bókstaflega að draga hann inn í tjald. Hann var með svo mikla stæla og var svo æstur að það var orðið illt í efni. Hann þekkir þessa gaura ekki neitt, og ætti ekki að vera að blanda sér í eitthvað sem honum kemur ekki neitt við. Enda sagði Þossi það við hann, og það með réttu. En Grétar + áfengi er eitthvað sem endar með slagsmálum og látum. Ekkert hægt að gera við því, nema bara að reyna að róa hann niður, þó erfitt sé. Það tókst samt að lokum hjá okkur Jökli.

Á sunnudeginum vaknaði ég í svitabaði við hroturnar hans Grétars. Það er alveg ótrúlegt hvað hann hrýtur. Ég reyndi að vekja Jökul og Grétar, en mig minnir að ég hafi fengið orðrétt til baka frá Jökli: "Éttu rassgat". Þannig ég fór bara sjálfur á fætur. Mér var svo heitt að ég var að stikna, enda var sólin ógeðslega sterk. Seinna vaknaði Jökull og Helgi mætti á svæðið. Helgi hjálpaði mér með að vekja Grétar, sem var útataður í neftóbaki. Eins og Helgi orðaði það: "Hann er með lítinn álf í nefinu". Helgi dró Grétar bókstaflega úr tjaldinu, þannig Grétar vaknaði við það og fór á fætur. Við byrjuðum bara á því að taka saman, og lögðum af stað upp úr 1.

Allir að taka saman


Grétar og Helgi fóru saman og ég fór með Jökli. Ég, Jökull og Helgi fórum allir og fengum að blása hjá löggunni, en Jökull mældist 0,4 þannig hann var ekki að fara að keyra neitt. Ég mældist 0,1 og Helgi 0,0, þannig ég keyrði Jökuls bíl að Blönduósi. Það fyndna var það að Helgi og Grétar lögðu af stað langt á undan okkur, en ég var fljótur að ná þeim á þeim hraða sem ég var á.

Við stoppuðum á Blönduósi og Borgarnesi. Jökull tók við því að keyra og fengum við okkur hressingu. Því miður fengum við ekkert kaffi þarna á Blönduósi, þannig við urðum bara að þamba kók. Svo á Borgarnesi stoppuðum við í Hyrnunni og fengum okkur að éta. Grétar og Helgi stoppuðu með okkur, en fóru stuttu síðar, þar sem Helgi var að drífa sig á einhvern fótboltaleik. Ég lánaði Helga 1000 kr. í bensín, þar sem þeir voru alveg að verða bensínlausir. Svo skruppum við Jökull inn og fengum okkur að borða. Ég var ekkert það svangur, þannig ég fékk mér bara sveppasúpu, sem var ábyggilega viku gömul, en Jökull fékk sér kjúkling og franskar. Svo komum við bara heim og fór ég stuttu seinna eftir það bara að sofa.

Þetta var frábær helgi, og hefði alls ekki viljað missa af þessu! Þó að það hafi verið manneskja þarna, sem ég hefði helst viljað sleppa því að sjá þarna, sem var mikið í því að þröngva sér í kringum vini mína. Auðvitað er ég að tala um Guggu mína fyrrverandi, en þrátt fyrir það var þetta æðislegt. Leiðinlegt að missa af götuspyrnunni og bílasýningunni, en það þýðir bara að maður mætir að ári liðnu og missir ekki af neinu.

Ég vil bara þakka öllu þessu frábæra fólki, sem var í þessari ferð, kærlega fyrir mig. Án ykkar hefði þetta verið ömurlegt. Elska ykkur öll. Segjum þetta núna ágætt í bili, þar sem þetta er held ég lengsta blogg sem ég hef skrifað, og veit ég að það eru mjög fáir sem nenna að lesa þetta allt. En hvað með það. ;D

Myndirnar sem ég tók úr ferðinni, má finna hérna. Takk fyrir!




Athugasemdir ():