Deila á Facebook
« Bíladagar á Akureyri - Ferðasaga | Aðalsíða | Fræðsluævintýri »

Ást við fyrstu sýn
Skrifað miðvikud. 21. júní 2006 - 01:03
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Verður þetta svona í sumar? Að ég bloggi bara eftir helgar? Ég ætla rétt að vona ekki.

En í dag vaknaði ég kl 7, fékk mér að borða og tók mig til fyrir vinnuna. Var mættur upp í strætóskýli rétt fyrir klukkan 8, þannig ég náði rútunni á hárréttum tíma.

Ég var einn með báða hópana í dag, þ.e.a.s. hópinn minn og hópinn hans Sjalla, þar sem Sjalli var veikur. Ég fékk samt greitt aðeins aukalega fyrir álag.

Svo eftir vinnu tók ég mig til fyrir hina vinnuna, og var mættur þangað kl 6. Það var óvenju mikið að gera á miðað við að það er þriðjudagur. Fólk á fullu að skila spólum, kaupa ís, ofl. Furðulegt alveg. En svo eftir vinnu fór ég bara heim.

Ég vil bara láta ykkur vita að ég er orðinn ástfanginn, og það ekki af manneskju, heldur bíl. Ég sá um daginn hér á götunni bíl af gerðinni Pontiac GTO og var þetta ást við fyrstu sýn. Ég fór á netið og skoðaði meira um þennan bíl og komst að því að 2006 módelið af þessum bíl hefur að geyma 6L 8 cylindra LS2 mótor, afturhjóladrifinn og knúinn 400 yndislegum hestöflum.

Ég á ekki orð sko. Þessi bíll kostar rétt um 4 milljónir hingað kominn til landsins, en gangverðið hérlendis er eflaust aðeins hærra en það, þannig maður gæti grætt ágætlega á því að flytja svona bíl hingað til landsins og selja hann hér. Ef ég næ að selja minn, vantar mig bara sirka 2 milljónir upp á svo ég geti uppfyllt þennan draum, þar sem þennan bíl ætla ég sko að eignast!

Ég ákvað að deila fegurðinni með ykkur.





En núna ætla ég bara að henda mér í rúmið. Á morgun er bara rólegur dagur, þar sem við erum að fara í einhverja fræðslu hjá Rauðakrossi Íslands. Mæting kl 9, þannig maður getur aðeins sofið út. Segjum þetta bara ágætt í bili.

P.S. ég vil enda á því að þakka Elvu Ýr, fyrrverandi bekkjarsystur minni, kærlega fyrir að vera svona ógeðslega dugleg að skoða bloggið mitt. Ég er með skrá yfir alla vini og kunningja mína sem skoða þetta blogg og sé nákvæmlega hvenær þeir skoða þetta, og er Elva lang duglegust af öllum við að heimsækja mig. Takk, Elva mín. Verðum í bandi. Addaðu mér endilega á msn eða eitthvað.




Athugasemdir ():