Fræðsluævintýri
Skrifað miðvikud. 21. júní 2006 - 19:57Dagurinn var ágætur. Það var ekkert unnið í dag. Við fórum bara í lífsleikni-fræðslu í Rauða kross húsinu á Laugarvegi.
Ég byrjaði auðvitað daginn á því að vakna kl hálf 9, fá mér að borða og gera mig kláran. Svo fór ég af stað og var orðinn svolítið seinn á ferðinni. Umferðin var alveg brjáluð, m.a.s. meiri en kl 8 á morgnanna. Eru svona margir sem byrja að vinna kl 9 eða voru bara svona margir seinir í vinnuna?
Allavega, ég kom á staðinn og þá hafði ég farið á vitlausan stað, en sem betur fer var rétti staðurinn handan götunnar. Ég mætti víst í Stigamót, sem er hliðiná lögreglustöðinni, en ég átti að mæta í Rauða kross Reykjavíkurdeild húsið, sem er í sama húsi og KB banki. Ég hafði ekkert erindi hjá Stigamótum, þannig ég dreif mig á réttan stað.
Þegar ég kom þangað, fattaði ég allt í einu að það þyrfti að borga fyrir stæði þarna. Það voru engir stöðumælar, heldur sá ég bara svona P skilti þegar ég var á leiðinni inn. Ég var orðinn allt of seinn, þannig ég hljóp í Svarta Svaninn, keypti mér kók, tók 500 í klinki yfir og hljóp svo aftur að kassanum til að leigja stæði. Stæði frá 9-4 kostaði 500 kr., þannig ég var með akkúrat.
Sjalli var svo sniðugur að hann notaði bara gamlan svona miða og setti í rúðuna hjá sér, og það fyndna er að það virkaði! Hann fékk enga sekt. Vörðurinn hefur líklegast bara litið á klukkuna, þar sem hún er í stóru letri en dagsetningin er í mun minna letri, og erfiðara að taka eftir henni.
Svo þegar ég kom þarna, voru nokkrir mættir. Fræðslustjórarnir tóku á móti okkur og sögðu við okkur að við þyrftum ekki að taka neinn þátt í þessu. Við þyrftum einungis að halda aga á krökkunum. Gerðum við það með prýði.
Sátum í þægilegum rauðum sófa þarna aftast og slöppuðum af. Svo kíktum við Sjalli af og til út í sólina og fengum okkur hressingu. Mjög mikið chill bara.
En í fræðslunni stóðst ég ekki mátið og varð að taka mynd af Silju, leiðbeinanda, í frekar fyndinni stellingu.
Ég er svoddan perri. 

Svo þegar ég var á leiðinni heim, stoppaði ég uppi á Atlantsolíu og fyllti bílinn af bensíni. Þar fóru síðustu þúsundkallarnir í eitthvað sem ég þarf mjög lítið að nota í sumar. Ég tek alltaf rútu, þannig ég þarf voða lítið að nota bílinn í sumar. En ég ákvað að fylla hann bara, þannig ég þyrfti ekki alltaf að vera að setja meira á hann.
Svo kom ég bara heim og fór auðvitað beint í tölvuna. Hvað ætli maður geri svo í kvöld? Spurning um að kíkja á kaffihús með Grétari, Jökli, Kella, Hildi, Rannveigu, ofl.
En segjum þetta ágætt í bili.

Athugasemdir (