Deila á Facebook
« Gunnar í Krossinum býður ekki syndinni kaffi | Aðalsíða | Skamm, Vífilfell! »

Sumarið komið?
Skrifað fimmtud. 22. júní 2006 - 17:22
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Það lítur út fyrir það að sumarið sé loksins runnið í garð, samkvæmt hitanum síðast liðnu daga allavega.

En það var nú ekki margt sem gerðist í dag. Ég fór bara í vinnuna kl 8, eins og vanalega. Ég og Sjalli vorum bara í allan dag í sólbaði. Ég er m.a.s. kominn með hellings lit. Eða er ég bara svona brenndur?

Í rútunni á leiðinni heim steinsofnaði ég og þurfti rútubílstjórinn að pikka í mig svo ég vaknaði og gerði mér grein fyrir því að ég væri kominn á endastöð og ætti að fara út. Djöfull skammaðist ég mín.

Eftir vinnu ætlaði ég að skreppa á Subway og fá mér að borða, en þá var bíldruslan bara rafmagnslaus, þannig ég þurfti að labba yfir til nágrannans og biðja hana um start. Hún var auðvitað svo góð að gera það. Takk. Fór svo á Subway og fékk mér að borða. Fór svo aðeins í Bónus Video, lagaði rafmagnið fyrir strákana, keypti mér kók og fór svo bara heim.

Núna klukkan 6 er ég að fara að vinna í Bónus Video, þannig ég þarf að fara að taka mig til fyrir hana.

En ég las áðan frekar heimskulega skoðun hjá Merði Árnasyni í Samfylkingunni, á auglýsingunni frá Umferðarstofu.

Mörður skrifar:

Umferðarstofa auglýsir þessa dagana og vill að fólk setji á sig bílbelti. Auglýsingarnar eru tvær, önnur fyrir prentmiðla og hin fyrir sjónvarp.

Á blaðaauglýsingunni sést fólk í einskonar faðmlagi, barn og fullorðinn, karl og kona – þetta er nútímafjölskylda með hlýlegt bros, og hönd annars teygist niður líkama hins á einmitt þann hátt sem bílbeltið liggur yfrum brjóst og síðu. Boðskapurinn er að bílbeltið setur maður á sig sem ábyrgur einstaklingur, hluti af hópi þar sem líf og heilsa eru sameiginleg verðmæti. Falleg auglýsing, og hönnuðunum tekst að halda sig smekkmegin við öll væmnismörk. Þetta er samábyrgðin, forsenda frelsisins – réttindi og skyldur vegast á. Auðvitað knýr sjálfsbjargarhvötin mig til að halda lífi og limum en ég geri það ekki síður fyrir þá sem á mig treysta og skipta mig máli. Þetta er Samfylkingarauglýsing.

Í sjónvarpsauglýsingunni hefur orðið bílslys. Farþegarnir – ungt fólk – einsog hráviði innan bíls og utan og sumir hálfir útúr honum. Þeir fara einn á fætur öðrum úr líkamanum, rétta upp hendurnar og stíga til himna með miklum þjáningarsvip. Greinilega ekki mikið fjör hjá guði. Nema þegar bílstjórinn (eða var það farþeginn í framsætinu) ætlar að fara að henda sér á eftir þeim þá fattar hann að bílbeltið er spennt? Hann verður ákaflega glaður. Súpi þeir hel sem með honum óku – ég dó ekki! Fjörið heldur áfram hjá mér af því ég var klárari en hinir. Ég vann í happdrætti lífsins með því að festa bílbeltið / kaupa Toyotuna / fá lánið hjá Glitni / drekka Víkingsbjór. Hér er freistað þess sem einungis hugsar um sjálfan sig og sleppur við hin aumu örlög hinna. Þetta er Sjálfstæðisflokksauglýsing.

Takk fyrir sýnikennsluna, Umferðarstofumenn!

Ég svara:

Elsku besti Mörður. Ég hef verið ósammála flest öllum þínum skoðunum og held því ótrauður áfram. Þessi auglýsing er mikil hvatning fyrir þá sem eiga það til að "gleyma" bílbeltunum og hvetur alla, jafnt sem konur og karla, að spenna beltin.

Hvað virkar annað á fólk en að sýna hrottann og sannleikann í raunveruleikanum þegar gert er auglýsingu líkt og þessa? Ekkert. Það hefur sýnt sig og sannað að þessar auglýsingar frá Umferðarstofu hafa haft áhrif á bílbeltanotkun landans, þar sem þær sýna sannleikann sem liggur á bakvið það að nota ekki bílbelti, að keyra of hratt, o.s.frv. Þessi auglýsingastefna hjá Umferðarstofu snertir fólk og það er það sem þarf til þess að fólk geri sér grein fyrir því hverjar afleiðingarnar gætu orðið.

Umferðarstofa stendur sig með prýði varðandi auglýsingastefnu sína, og styð ég hana með heilum hug. Ertu ekki bara eitthvað sár eftir kosningarnar, þar sem ég sé engin rök né vit í þessum skrifum þínum.

Hann stígur ekki í vitið, greyið. Alltaf að níðast á Sjálfstæðisflokknum, þegar hann getur ekkert gert betur.

En allavega, varðandi þessa auglýsingu, þá er þetta upprunalega útlensk auglýsing, sem Umferðarstofumenn íslenskuðu. Þessi auglýsing er rosa áhrifagjörn og sýnir sannleikann eins og hann gerist í raun og veru. Þó hann sé svolítið grófur, þá hefur hann meiri áhrif en ef hann væri fegraður.

Hvað finnst ykkur annars um þessa auglýsingu hjá Umferðarstofu og þessa skoðun hjá Merði?




Athugasemdir ():