Skamm, Vífilfell!
Skrifað föstud. 23. júní 2006 - 00:12Ég var að koma heim úr vinnunni rétt áðan. Mig langar bara að senda smá skammir á Vífilfell fyrir vanhugsaðar umbúðir á nýju sumar kókflöskunum.
Ég var áðan í vinnunni og í hvert skipti sem einhver kaupir kók í hálfslítra plasti, tekur alveg 5 min að fá skannann til að lesa strikamerkið, þar sem strikamerkið er gert þannig að það er alveg á botninum á flöskunni á hliðinni. Þið vitið hvernig lögunin er á botninum á kókflöskunni, og það gerir svona skönnum erfitt fyrir að skanna strikamerkið.
Djöfull finnst mér lélegt að geta ekki séð fyrir þessum hönnunargalla. Ég fann því miður ekki mynd af nýju sumar kókflöskunum á netinu, en þið sjáið þetta bara í næstu búð. Takið eftir hvar strikamerkið er staðsett. Þetta er alveg hreint óþolandi.
Ef einhver hátt settur hjá Vífilfelli er að lesa þetta, skaltu koma þessum skilaboðum til skila, til hönnuða Coca Cola á Íslandi.
En núna ætla ég bara að klára að merkja tímana hjá krökkunum inn í Orbis (launaforritið hjá Vinnuskólanum) og fara svo bara að sofa. Verið í bandi á morgun. Vér skulum djamma. Heyrumst, elskurnar.

Athugasemdir (