Deila á Facebook
« Skamm, Vífilfell! | Aðalsíða | Föstudagurinn »

Levi Strauss - Gallabuxnavesen
Skrifað föstud. 23. júní 2006 - 19:26
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég fór áðan í Kringluna og Smáralind að leita mér að buxum, en ég fann þær barasta ekki.

Ég byrjaði á því að biðja mömmu um að koma með mér að versla, þar sem ef mamma er með, þá er aldrei að vita nema hún splæsi einhverju á mann. Við byrjuðum á því að fara í Smáralind í Levi's búðina. Skemmtilegt þegar mamma labbar upp að þessu afgreiðslufólki og byrjar að spyrja út í buxurnar og bendir á mig og ég bara: "Ég er ekki hérna!". Skammaðist mín ekkert smá. Þetta verður seint endurtekið.

Ég var að leita að buxum sem eru frekar heitar í dag. Þær eru með einum vasa að aftan og svona mjóum saum á rassinum. Það er mjög fínt gallabuxnaefni í þeim. Ég bara finn ekki þessar helvítis buxur! Það var einhver sem sagði mér að þetta væru Levi's buxur, en ég er nú farinn að efast um það.

Mynd sem ég rissaði upp af buxunum


Ég fór út um allt að leita að þessum buxum; Levi's, Jack'n'Jones, Blend, Zara, ofl. Ég fann svipaðar buxur í Levi's búðinni, en samt voru þetta ekki þær. Þær voru með svona sylgju/belti á rassinum. Ekkert sérlega flott.

Ég er mikið fyrir að sjá einhvern í flottum fötum og fara svo og kaupa svipað, þar sem ég er ekki mikið fyrir að skoða í búðum. Ég bara sé eitthvað flott og þá fer ég á fullt að leita af því. Það er ekki það að ég veit ekki hvað er flott og í tísku, heldur bara það að ég er ekki mikið fyrir búðarráp.

Allavega, í kvöld þá er djamm. Ég er að fara núna eftir kvöldmat til Helga og við förum að drekka og svo niður í bæ. Ég ætla að reyna að taka einhverjar myndir handa ykkur. Segjum þetta ágætt í bili.

En hafiði hugmynd um hvaða buxur þetta eru?




Athugasemdir ():