Föstudagurinn
Skrifað laugard. 24. júní 2006 - 17:14Í gær var auðvitað farið að djamma. Hvað annað?
Kvöldið var frábært í alla staði. 
Ég byrjaði á því að skella mér í ríkið með mömmu á meðan við vorum í Kringlunni. Ég keypti mér bara eina kippu af bjór, enda dugar það í byrjun kvöldsins. Svo fær maður sér alltaf eitthvað niðri í bæ.
Eftir ríkisferðina fór ég bara heim, fékk mér að borða, skellti mér í sturtu og gerði mig kláran fyrir kvöldið. Það var einhver grillaður fiskur í matinn, en mamma var svo góð að grilla svínakjöt handa mér, þar sem mig langaði ekkert í fiskinn. Svo settist maður niður við sjónvarpið, horfði á The Beauty and The Geek, sem eru snilldar þættir, og gengur sá þáttur út á að tvö pör (gella + nörd) eiga að gera allskyns þrautir og svara spurningum til að komast áfram. Gellan á að gera tölvuþrautir og svara spurningum í sambandi við tölvur, en nördinn á að gera verkefni og svara spurningum í sambandi við arkitektúr. Þetta er sprenghlægilegt!
En eftir bjórinn og sjónvarpsglápið skellti ég mér til Helga, þar sem hann var einn heima. Ég fór til Jökuls og svo komu Helgi og Grétar að sækja okkur. Þegar við komum fyrir utan hjá Helga, biðu Smári, vinur hans Helga, og Elena, vinkona Smára, fyrir utan. Svo seinna kom Leifur, vinur Smára og Elenu. Ég verð nú bara að segja að þetta lið hafi ekki verið neitt sérstaklega skemmtilegt. Ætli það sé út af því að þau séu öll að læra stærðfræði í háskólanum?
Helgi tók bara upp gítarinn og við byrjuðum að syngja með. Það var mjög gaman, fyrir utan það að Smári, Leifur og Elena sungu ekkert með.
Svo vantaði líka Gumma.
Kallinn var að vinna þannig hann komst ekki, en við hittum hann seinna um kvöldið á Sólon. 
En djöfull er ég ömurlegur! Ég hringdi í frænku mína, Mæju, þar sem ég ætlaði að hitta hana á Players. Hún bað vin sinn, Kristján, og kærustuna hans, Steinunni, um að fara að sækja okkur og koma með okkur á Players, en þegar þau komu vildu strákarnir ekkert fara á Players og enduðum við bara niðri í bæ. Spáið í ömurlegum gaur. Þó ég hafi ekki getað neytt strákana til að fara á Players, þá var þetta samt mjög lélegt. Sorry, Mæja.
En þegar niður í bæ var komið, byrjuðum við auðvitað á Sólon. Á meðan við röltum á Sólon, þömbuðum við bjórana okkar. Við hittum m.a.s. einhverja gamla karla og byrjuðum að jacka þá. Djöfull vorum við ruglaðir.
Gaurarnir samt fíluðu þetta bara og voru ekkert að kippa sér upp við þetta, og fannst þetta í raun og veru bara gaman. 
Við fórum á Sólon, heilsuðum upp Eika, félaga minn í Live2Cruize, og Eygló og hlupum svo upp til Gumma. Ég hitti Hildi þarna, sem ég er ekki búinn að hitta lengi. Helgi dró mig svo á dansgólfið. Við vorum eitthvað tveir þarna á dansgólfinu að dansa eins og fávitar. Hehe, það var gaman. Svo fór ég á barinn og Grétar bauð mér upp á Aygo hjá Gumma. Takk, Grétar.
Svo kom einhver stelpa með eitthvað skilti á sér sem stóð á: "Síðasti séns til að fá að kyssa gæs". Grétar lét auðvitað slag standa og kyssti hana heitum kossi. Ég var víst vel fullur og gerði það líka. Ég trúi mér ekki! 
Eftir þetta fórum við allir að dansa saman; ég, Grétar, Helgi og Jökull. Síðar fór Helgi niður og hitti Önju sína. Svo bara hurfu þau stuttu seinna. En skiljanlega, þar sem Helgi var að fara að vinna kl 7 um morguninn, og var klukkan orðið svolítið margt. En hefði hann farið og hann hefði ekki verið að fara að vinna, hefði ég brjálast!
En þetta var í góðu.
Ég man að ég og Jökull ákváðum að rölta eitthvað annað. Við röltum á Gaukinn og Glaumbar. Það var ömurlegt þar, þannig við ákváðum að labba upp á Sólon aftur. Í millitíðinni langaði Jökli að prófa Dubliners. Við fórum þangað, vorum spurðir um skilríki, sýndum þau og komumst inn! Við röltum eitthvað þarna í kring og hittum geðveikt sæta stelpu, sem hét Vigdís, eins og fyrrum forseti okkar.
Hún var sem betur fædd 84, en ekki 54, eins og flestir þarna voru.
Við byrjuðum að tala við hana, en svo allt í einu vorum við komnir inn á klósett með henni, þar sem ég var að syngja fyrir hana. Hahaha, hvað er málið?
Svo seinna kom vinkona hennar inn á klósett með okkur, og söng ég fyrir hana líka. Djöfulsins rugl! 
Eftir þennan bráðskemmtilega söng, fórum við Vigdís upp á dansgólfið og byrjuðum að dansa eins og asnar.
Ég kenndi henni dans-stöðuna og að tvista. En því miður var ekki rétta tónlistin svo ég gæti kennt henni einhvern dans. En þetta var ógeðslega gaman. Ég held það hafi aldrei á ævi minni verið svona skemmtilegt að dansa við stelpu. Takk, Vigdís, fyrir dansinn og áheyrnina.
Svo skiptumst við á símanúmerum og hún fór með vinkonu sinni, Möggu.
Jökull var orðinn geðveikt óþolinmóður að bíða eftir mér, þannig eftir að Vigdís var farin, fórum við á Sólon aftur. Grétar var búinn að bætast í hópinn á Dubliners, þar sem Jökull fór að sækja hann á meðan ég var að dansa við Vigdísi.
Við félagarnir röltum á Sólon. Stemmningin þar var alveg að deyja, þannig við dönsuðum voða lítið.
Ég man að ég tók geðveikt mikið af myndum af fólki. Ég var orðinn "pirrandi ljósmyndarinn".
Ég lét fólk halda að ég væri ekkert að fara að taka mynd, en svo smellti ég af og flashið í augun á fólkinu. Þetta var svo mikil snilld. Ég fékk m.a.s. nokkrar beiðnir um að eyða myndum út. Hehe, ég er svo góður gaur að ég gerði það að sjálfsögðu. 
Svo biðum við bara eftir að Eygló væri búin að vinna og fórum svo með henni heim. Takk, Eygló, fyrir farið.
Og sorry Grétar að ég hafi pantað shotgun, án þess að sjá bílinn. Ég veit vel að það er bannað, en mér var svo flögurt að ég varð að sjá út um gluggann. 
Þetta var frábært kvöld í alla staði.
En nú í kvöld er víst aftur djamm, og þá verður Gummi kallinn með! Ójá. Það verður farið niður í bæ, drukkið, dansað og djammað!
Hehehe, já fínt. Ég ætla núna að skella mér í ríkið, þar sem ég er orðinn uppiskroppa með bjór. 
Segjum þetta ágætt í bili.
P.S. myndirnar sem ég tók um kvöldið eru hér.

Athugasemdir (