Laugardagurinn
Skrifað sunnud. 25. júní 2006 - 20:05Jæja, ég fór á djammið í gær. Þetta var nú ekki það eftirminnilegt kvöld, þar sem það var ekkert sérstakt sem gerðist. Fórum bara 3 í bæinn og það var nú ekkert til að hrópa húrra fyrir, þar sem við hefðum nú mátt vera fleiri, en þetta var ágætt. Ekkert mikið meira en það. 
Ég byrjaði á því að fá mér að borða og taka mig til og svona. Ég ætlaði að fara til Gumma og horfa á leikinn og svona, en mamma byrjaði að elda hálf 9, þannig ég missti af því. En eftir að ég var búinn að borða og taka mig til, var mamma svo góð að skutla mér til Helga, þar sem partýið hófst. Ég gleymdi sígarettunum, þannig við stoppuðum í Bónus Video uppi í árbæ og ég skrifaði á mig einn sígarettupakka. Það var lítið mál.
Þegar ég kom til Helga, voru allir eitthvað geðveikt leiðir og sögðu að Helgi hefði drukkið allt of mikið og væri ælandi inni á klósetti. Ég fór inn og leit inn á klósett, þar voru Gummi og Helgi krjúpandi fyrir framan klósettið. Ég varð geðveikt hissa á því að það væri hægt að verða svona fullur á svona stuttum tíma. Svo byrjaði Gummi að draga Helga inn í rúm, og bað mig svo um að hjálpa mér. Ég tók eitthvað í fæturnar á Helga og hjálpaði Gumma með Helga inn í rúm. Svo allt í einu byrjuðu þeir allir að hlæja. Ég skildi ekkert í því hvað væri að gerast, en svo stóð Helgi allt í einu upp. Ég varð ennþá meira hissa en fattaði þá að þetta hefði bara allt verið djók. Djöfull, ég hef aldrei trúað neinu svona mikið. Þeir tóku þetta gabb víst á Jökul og Grétar á undan mér og féll Jökull víst mest fyrir þessu. Bastarðar!
Eftir þetta settumst við bara í sófann og byrjuðum að syngja við fagran gítar undirtón hjá Helga. Seinna komu Sandra og Anja og bættust við í hópinn. CODE RED, Helgi!
Við gerðum nú ekki margt annað en að syngja og dansa, eða tja... aðallega ég og Grétar sem dönsuðum. 

En svo eftir marga bjóra, var farið að síga á drykkjuna hjá fólkinu. Þá var farið í þann kyngimagnaða leik að hringja í foreldra okkar með speaker á og láta eins og við værum allt of fullir, og segja þeim að við ætluðum bara að gista hjá Helga. Grétar byrjaði á mömmu sinni og varð hún frekar reið. Svo var ég næstur. Ég hringdi í mömmu síma, en pabbi svaraði. Hann var ekki sáttur og tók það ekki í mál að ég myndi gista hjá Helga, þannig hann bauðst til þess að koma og sækja mig.
Hehehe, eftir það sagði ég honum bara að þetta hefði bara verið djók. Honum fannst þetta ekkert allt of fyndið.
Næstur var Helgi og hringdi hann í pabba sinn. Helgi sagði að það hefðu verið 50 manns þarna og allt væri í rústi. Pabbi hans var ekkert allt of sáttur.
En svo sagði hann honum að þetta væri bara djók. En það gerði enginn annar þetta en við þrír, Jökull og Gummi beiluðu. 
Svo var ákveðið að fara niður í bæ. Helgi og Grétar voru orðnir allt of fullir, þannig ég, Jökull og Gummi fórum bara niður í bæ. Sandra var svo góð að skutla okkur drengjunum. Takk, Sandra.
En mig einmitt grunaði þetta! Þegar Helgi sagði að Anja væri að fara að koma, veðjuðum við strákarnir á það hvenær Helgi myndi beila. Ég veðjaði á 2, Gummi á 3 og Grétar á 4, minnir mig, en Jökull veðjaði á að hann myndi ekkert beila. Ég vann, drengir mínir, því þegar við fórum út úr húsi var klukkan 2.

Þegar við komum niður í bæ, fórum við auðvitað beint á Sólon. Þar heilsaði ég Eygló skvís og fór svo upp að dansa. Þar hitti ég Hildi og Önnu. Ég byrjaði bara að dansa við þær. Geðveikt gaman.
Svo fóru þær og ég, Jökull og Gummi vorum bara einir þarna. Gummi byrjaði að dansa við Evu og þannig hvarf hann allt í einu.
Þetta er alltaf svona með þessa drengi! Ef ekki Gumma, þá Helga, og ef ekki með þá, þá með einhvern annan. Alveg ótrúlegt! 
Ég og Jökull vorum þá bara einir eftir. Við dönsuðum bara tveir þarna, ákváðum svo að fara eitthvað annað, þar sem það var sjúklega heitt þarna inni. Við röltum niður laugarveginn, og endaði Jökull á því að fá sér Hlöllabát. Ég átti ekki nóg fyrir bát, þannig ég fékk mér bara pylsu á Bæjarins Bestu. Svo röltum við á Gaukinn. Djöfull var mikið af börnum þar! Það er greinilegt að ég og Jökull erum vaxnir upp úr þessu barnastússi, og sækjum staði sem eldra fólk sækir.
Þetta er bara orðið þannig að Gaukurinn er leikskólinn. Glaumbar er orðinn Opus, þar sem allt litaða fólkið er. Svo eru Oliver og Thorvaldsen fyrir eldra og fágaðra fólk. Svo eru auðvitað til staðir fyrir perrana og það tel ég vera Óðal og Champagne Club. Svo eru Sólon, Hverfis, ofl. fyrir svona yngra fólk, en þó enga krakka. Svo að lokum eru til staðir fyrir sérstakt fólk, og það er þá Prikið og þessir staðir. Þetta er samt byggt út frá reynslu minni af þessum stöðum.
Ég hitti samt Írisi Hrund, fyrrverandi bekkjarsystir mína, á Gauknum. Ætli það hafi ekki bara verið það eina góða við heimsókn mína á þennan stað? Jú, ætli það ekki. En svo röltum við félagar bara yfir á Glaumbar. Þar hitti ég Pirrandi Dóru, en ég reyndi að halda mér sem lengst frá henni. Svo ég gleymi því ekki, þá var ég að eyða henni úr símaskránni minni rétt í þessu. Guð, ég verð bara geðveikt pirraður þegar ég byrja að hugsa um hana.
Eftir þetta rugl fórum við bara aftur á Sólon, settumst niður og ég pantaði vodka+breezer hjá Eygló. Takk, Eygló mín.
Svo sátum við Jökull bara þarna og spjölluðum saman. Fórum svo upp og dönsuðum smá, áður en það lokaði. Svo kom að því að það lokaði. Við röltum þá niður og settumst í VIP sófann, en vorum svo reknir burt þaðan af Matta, en hann bauð okkur að bíða eftir Eygló í hvítu sófunum. Svo biðum við heillengi þarna, þangað til við sáum Eygló labba út með einhverjum gaur. Ég veit ekki alveg af hverju en við héldum að Eygló hefði verið að stinga okkur af, en hún var víst bara að fara að sækja pizzu með Eika, starfsfélaga sínum. Ég og Jökull fengum bara að fljóta með.
Svo fórum við aftur upp á Sólon og þau borðuðu pizzuna, á meðan ég og Jökull sátum bara þarna heillengi og biðum eftir Eygló. Svo skutlaði Eygló okkur Jökli heim. Takk æðislega fyrir farið, Eygló mín.
Nú í kvöld er ég að spá í að fara í bíó. Palli og co. ætla víst í bíó, en Ívar, Gummi og Helgi eru víst að fara að keppa í fótbolta í kvöld, þannig þeir koma allavega ekki með. En það er spurning um að fara að sjá Stay Alive, Slither eða eitthvað. Allavega ætla ég pottþétt í bíó. Með hverjum og á hvaða mynd er ennþá óákveðið.
En nú skulum við segja þetta gott í bili.
Myndirnar sem ég tók frá gærkvöldinu eru hérna.
Ég byrjaði á því að fá mér að borða og taka mig til og svona. Ég ætlaði að fara til Gumma og horfa á leikinn og svona, en mamma byrjaði að elda hálf 9, þannig ég missti af því. En eftir að ég var búinn að borða og taka mig til, var mamma svo góð að skutla mér til Helga, þar sem partýið hófst. Ég gleymdi sígarettunum, þannig við stoppuðum í Bónus Video uppi í árbæ og ég skrifaði á mig einn sígarettupakka. Það var lítið mál.
Þegar ég kom til Helga, voru allir eitthvað geðveikt leiðir og sögðu að Helgi hefði drukkið allt of mikið og væri ælandi inni á klósetti. Ég fór inn og leit inn á klósett, þar voru Gummi og Helgi krjúpandi fyrir framan klósettið. Ég varð geðveikt hissa á því að það væri hægt að verða svona fullur á svona stuttum tíma. Svo byrjaði Gummi að draga Helga inn í rúm, og bað mig svo um að hjálpa mér. Ég tók eitthvað í fæturnar á Helga og hjálpaði Gumma með Helga inn í rúm. Svo allt í einu byrjuðu þeir allir að hlæja. Ég skildi ekkert í því hvað væri að gerast, en svo stóð Helgi allt í einu upp. Ég varð ennþá meira hissa en fattaði þá að þetta hefði bara allt verið djók. Djöfull, ég hef aldrei trúað neinu svona mikið. Þeir tóku þetta gabb víst á Jökul og Grétar á undan mér og féll Jökull víst mest fyrir þessu. Bastarðar!
Eftir þetta settumst við bara í sófann og byrjuðum að syngja við fagran gítar undirtón hjá Helga. Seinna komu Sandra og Anja og bættust við í hópinn. CODE RED, Helgi!

Ég og Grétar að dansa. ![]()

Athugasemdir (