Deila á Facebook
« Bíó með vinunum | Aðalsíða | Próflaus - Hvað skal nú gera? »

Færeyskir dagar
Skrifað mánud. 26. júní 2006 - 16:53
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, það er spurning um að blogga smá. Maður gerir nú víst aldrei nóg af því.

En allavega, ég fór bara í vinnuna í dag. Alveg ótrúlegt hvað þessir krakkar geta reynt á þolrifin og taugarnar hjá manni. En maður tekur á hlutunum með sanngirni. Það er lang best. Einn segir eitt, en hinn segir annað, og svo reyna stelpurnar að sleikja mann þvílíkt mikið upp með hvolpasvipunum, en maður er nú farinn að sjá í gegnum það.

En hvað segið þið, eru færeysku dagarnir á Ólafsvík næstu helgi málið? Ég held það nefnilega. Við ætlum hópur, og þeir sem slást með í för eru: ég, Helgi, Jökull, Gummi, Ívar, Hjalti, Ægir, Bjarni, Ólöf, Heiðrún, Steinunn, Sigrún, Harpa, Eygló, Sandra og Erna. Þetta eru samt bara fyrstu drög af listanum yfir fólk sem ætlar að mæta. Það er líka annað fólk sem ætlar að mæta og eru þar með talin Hildur, Sólveig, ofl. Þetta verður náttúrulega bara of gaman! En því miður ætlar Grétar frekar að fara á landsmót hestamanna með kórfólkinu.

En núna var ég bara að koma heim úr vinnunni og er að sálast úr hungri. Spurning hvort maður finni eitthvað ætilegt hérna, þó það sé nú ekki mikið af því, nema kannski kókópöffs? En allavega, skrifið hér undir ef þið eruð ekki á þessum lista og ætlið á færeyska daga á Ólafsvík næstu helgi.




Athugasemdir ():