Deila á Facebook
« Dagurinn í dag | Aðalsíða | Gærkvöldið »

Leiðindi, leiðindi, leiðindi
Skrifað föstud. 11. nóvember 2005 - 19:52
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Já, þessi dagur byrjar frábærlega. Ég byrja á því að mæta kl 8 í skólann. Kem svo kl 12 heim, fer beint að sofa og vakna kl 5 áðan. Ég er líka búinn að sofa í 3-4 tíma um hverja nótt í heila viku núna og þetta var bara uppsöfnuð þreyta.

Núna þegar ég vaknaði áðan, finn ég rosalega sterka vonda lykt. Ég pæli ekkert meira í því. Svo þegar mamma kallar á mig í matinn fer ég fram og finn að þessi vonda lykt er af matnum. Þetta var sem sagt svona súpukjöt í einhverri ógeðslegri brúnnu sósu.
Ok, ég veit ekki mikið um eldamennsku en ég veit eitt... hefði hún sleppt því að hafa súpukjöt (sem er að mínu mati ógeðslegt) og haft góðan part af lambinu í staðinn og sveppasósu, hefði þetta verið fínasta máltíð! Ég veit hvað mér finnst gott.

Allavega, þetta stefnir í að vera ein af þessum leiðinlegu helgum. Ég átti að fá útborgað í dag en nei, ég er ekki enn búinn að fá útborgað. Þannig ég er peningalaus og get ekki gert neitt.

Af hverju í fjandanum langar mig að djamma og drekka um hverja einustu helgi? Ég held að þessi spurning brenni á vörum margra. Aðal ástæðan er sú:
Ég sit á skólabekk og vinn alla virka daga vikunnar. Djamm og að gera eitthvað skemmtilegt "núllstillir" mig. Sem sagt, ég endurhleð batteríin. Mér finnst skólinn og vinnan leiðinleg þannig ég verð að gera eitthvað skemmtilegt um helgarnar, svo ég deyji ekki úr leiðindum í miðri viku. Ég kann eiginlega ekki að útskýra þetta, nema kannski með því að segja: Því betri helgi, því skemmtilegri verður vikan framundan.

En já, það er eitthvað gettogether hjá Jökli í kvöld er mér sagt en ég nenni ekki að gera neitt út af því að ég á ekki pening né bjór! Ég er búinn að biðja mömmu og pabba um bjór nánast hverja einustu helgi og held ég að ég skuldi þeim að minnsta kosti einn kassa af bjór. Því ég segist alltaf borga þeim það seinna. Vá, yndislegir foreldrar að þola mig.

Ég held ég verði bara heima í kvöld að gera ekki rassgat, eins og venjulega. Típískt að Kamil sem ætlaði bara að vera heima í kvöld, fari út að rúnta eða eitthvað á eftir. En nei, ég er of upptekinn að GERA EKKI NEITT.

Djöfulsins rugl. Búinn með öll launin mín í Bónus Video á 11 dögum. Þetta hlýtur að vera heimsmet. Samt, þetta fer ekki allt í rugl. Þetta fer eiginlega allt í skuldir og reikninga. Ég er nú heldur ekki að fá neitt svakalega útborgað þarna og ég skrifa alltaf á mig fyrir helminginn af laununum. Aðallega sígarettur, rauðan kristal plús. En svo kemur líka fyrir að maður þurfi að skrifa spólur ofl. á sig.
Hvernig væri það ef ég hætti að skrifa á mig allt nema sígarettur? Ég myndi allavega fá meira útborgað, býst ég við. En það er svo erfitt drekka og borða ekki neitt á heillri 6 tíma vakt.

Æj, ég nenni ekki að spá í þessu. Ætli ég fari ekki bara að sofa svo þessu ömurlega kvöldi ljúki eins fljótt og hægt er. Eða hvort ég horfi ekki bara á einhverja af DVD myndunum sem ég á.

Ég vill benda ykkur á eitt lag. Þetta lag er helvíti fínt nema þessi hávaði þarna í lokin. Hann er alveg hreint óþolandi og verð ég að slökkva á laginu þegar kemur að þeim parti.
Hérna er lagið:
Antony and the Johnsons - Hope Theres Someone.mp3 (5.18 Mb)

Allavega, ég er farinn. Heyrumst.




Athugasemdir ():