Próflaus - Hvað skal nú gera?
Skrifað miðvikud. 28. júní 2006 - 01:04Dagurinn var ágætur, þrátt fyrir leiðindar bréf sem ég fékk núna áðan frá lögreglustjóranum í Reykjavík.
Þið heyrðuð rétt, kæru lesendur. Ég er orðinn próflaus, þar sem ég var víst tekinn um daginn, og nú eru 12 punktar komnir. Æðislegt!
Nú þýðir ekkert annað en að selja bílinn, þar sem ég hef ekkert að gera við það að borga tryggingar af bíl sem ég hef ekki einu sinni afnot af í 3 mánuði, þannig bíllinn minn er nú til sölu. Einnig er hægt að fá einkanúmerið fyrir góðan prís, þannig hafið endilega samband ef áhugi er fyrir hendi.
Þið getið lesið allt bréfið, sem ég fékk sent, hérna.
Ég var að spá í að sleppa því að borga þessa helvítis 40.000 kr. sekt og skreppa bara í fangelsi í 4 daga. Er það nokkuð svo slæmt?
Ég vona hins vegar að ég fái prófið fyrir skólann, þar sem ég mun þurfa að hafa afnot af bíl til þess að komast í skólann, en ef ég verð kominn með prófið þá og bíllinn verður seldur, þá kaupi ég mér bara einhvern lítinn sætan sportara.
En dagurinn var góður. Ég fór bara í vinnuna kl 8 í morgun og eftir vinnu kom ég aðeins við í vinnunni hjá Jökli. Krakkarnir hans eru algjör smábörn. Kom mér mjög á óvart.
En svo fórum við í Bónus Video, fengum okkur kók til að svala þorsta okkar, og svo fórum við bara heim. Ég skellti mér bara í sturtu og gerði mig reddí fyrir hina vinnuna mína, og var mættur þangað kl 6. Það var frekar mikið að gera, þar sem það eru ýmsir bavíanar sem ákveða að leigja sér spólur á þriðjudagskvöldi og fá sér ís. 
En segjum þetta ágætt í bili.

Athugasemdir (