Deila á Facebook
« Próflaus - Hvað skal nú gera? | Aðalsíða | Dagurinn í dag »

Vídjógláp ofl.
Skrifað miðvikud. 28. júní 2006 - 19:32
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, á meðan ég er próflaus verður ekki mikið gert fyrir utan það að horfa á vídjó allan liðlangan daginn. Ég segi svona.

Ég fór bara í vinnuna í dag. Mér brá mjög þegar Sjalli mætti ekki í rútuna, og hringdi í hann. Hann svaraði ekki, þannig ég sá bara einn um alla krakkana í smá tíma, þangað til hann kom. Hann hafði víst sofið yfir sig, en það gerist fyrir bestu menn.

Í vinnunni fór Eygló að senda mér sms um hvað hana hlakkar mikið til þangað til við förum út til Tenerife. Ég hef nú ekki mikið verið að spá í því hvað er stutt þangað til það kemur að þessari djammferð, en eftir að Eygló sendi mér sms um hvað hana hlakkaði til, þá spenntist ég endalaust mikið upp og nú get ég ekki beðið þangað til! Það eru víst bara 42 dagar þangað til við förum! Henti inn smá teljara á forsíðuna, sem segir til um hversu langt er í ferðina.

Um daginn bauðst ég til þess að panta miða til Tenerife fyrir Eygló og Kella. Eygló fékk ferðina hennar Guggu og Kelli fékk ferðina hans Bjarna. Ég hringdi bara í Sumarferðir og reddaði þessu fyrir þessar elskur. Minnsta mál. Æðislegt líka að þau séu að koma með!!!

En eftir vinnu fórum við Sjalli bara upp í Bónus Video, fengum okkur sígó og slöppuðum af. Ég tók myndina The Ringer, sem er með Johnny Knoxville í aðalhlutverki.

Myndin fjallar um mann að nafni Steve, sem fær stöðuhækkun í vinnunni sinni. Í kjölfar af stöðuhækkuninni neyðist hann til að reka indælan starfsmann að nafni Stavi, sem hefur unnið lengi sem ræstitæknir hjá fyrirtækinu. Steve afber ekki að reka greyið manninn, sem þarf að fæða og klæða heila fjölskyldu og eiginkonu hans, sem er dauðvona. Steve tekur sig þá til og ræður Stavi sem húshjálp heima hjá sér, við að slá grasið ofl. En því miður lendir Stavi í leiðinlegu vinnuslysi, og þarf Steve að finna út leið til að afla fjár fyrir aðgerð á Stavi, og tekur hann þá til bragðs að svindla í Ólympíuleikum fatlaðra.

Þessi mynd var umdeild þar sem allir héldu að Johnny Knoxville væri bara að gera grín að fötluðum, en hann er alls ekki að því. Hann er í raun að ýta undir að fólk hugsi að fatlaðir séu ekkert öðruvísi en við hin. Þetta er mjög fín og góð afþreying, og mæli ég alveg hiklaust með henni. Ég gef henni 3 stjörnur.

En núna á eftir er ég að fara á kaffihús með Jökli, Eygló, Önju, Söndru, Ernu, ofl. Gaman verður þá. Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():