Deila á Facebook
« Vídjógláp ofl. | Aðalsíða | Bloggleti? »

Dagurinn í dag
Skrifað föstud. 30. júní 2006 - 00:47
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég ákvað að blogga smá um daginn og veginn.

Í fyrsta sinn á ævinni fór ég í vinnuna á bílnum mínum. Ég verð víst ekki sviptur fyrr en ég fer niður á lögreglustöð og skrifa undir eitthvað og afhendi skírteinið, og verður það að gerast innan 30 daga eða ég fer ósjálfrátt í fangelsi.

Mynd sem var tekin á leiðinni í vinnuna. Af hverju ekki að nýta prófið til fulls víst ég er hvort sem er að missa prófið? ATH. Klukkan er vitlaus þarna.


Ég var mættur langt á undan krökkunum. Sjalli var veikur, þannig ég var einn með alla krakkana. Við fórum bara í það að draga út grysjunarefni, sem eru bara einskonar dauð grenitré. Svo leyfði ég krökkunum að spila svolítið lengur en venjulega, þar sem Guðrún átti afmæli. Til hamingju með 15 ára afmælið.

Svo kom að því að fara heim. Ég keyrði bara heim, þar sem ég var nú á bíl. Þegar ég kom heim ákvað ég að skella mér í sturtu, þar sem hitinn úti var óbærilegur og maður svitnaði mjög mikið. Það vildi svo til að ég sofnaði á gólfinu inni á baðherberginu. Ég vaknaði svo klukkutíma seinna og skellti mér í sturtuna. Hahaha.

Svo gerði ég mig bara kláran fyrir hina vinnuna, og var mættur kl 6 þangað. Það var afskaplega mikið að gera. Þetta sama alltaf hreint, spólur, ís og nammi. Svo lokuðum við Andri búllunni og fórum bara heim.

Í vinnunni var ég að skoða séð&heyrt og sá þessa auglýsingu frá VÍS:


Takið eftir að á myndinni er pilsner sem liggur þarna á jörðinni. "Ertu svo heppinn að hafa keyrt undir áhrifum án þess að valda slysi?". Já, ég fæ mér alltaf pilsner og keyri svo undir áhrifum hans. Mér finnst þetta vera mjög heimskuleg auglýsing.

En allavega, núna ætla ég bara að fara að lúlla. Vinna snemma á morgun og svo færeyskir dagar á Ólafsvík. Ég fer með Jökli, Eygló og Söndru kl 6. Þetta verður fjör! Ég tek auðvitað myndavélina með mér og dæli í ykkur myndum úr ferðinni.

Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():