Deila á Facebook
« Bloggleti? | Aðalsíða | Veikindi, vídjógláp, ofl. »

Færeyskir dagar - Allt sem þið misstuð af
Skrifað miðvikud. 5. júlí 2006 - 18:51
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Afsakið, elskurnar mínar, hvað ég er búinn að vera ógeðslega óduglegur við að blogga. Ég var bara að koma frá Ólafsvík á sunnudag. Ég var á færeyskum dögum með vinunum. Eftir að ég kom heim var ég svo ógeðslega þreyttur að ég fór bara beint að sofa eftir að ég var búinn í bíó með strákunum á myndinni Stay Alive.

Myndin var ágæt, þó hún hafi verið svolítið bull. Hún fjallar um tölvuleikjaspilara sem prófa nýjan leik sem ber heitið Stay Alive. En þegar inn í leikinn er komið, þarf að fara með einhverja þulu, sem vekur upp blóðgreifynjuna (e. Blood Countess), og um leið og þau deyja í leiknum, deyja þau á sama hátt og þau dóu í leiknum. Bregðuatriðin í myndinni eru mjög góð, og rígheldur hún manni föstum spenntum í sætinu. Þó tækni- og tölvubrellurnar séu frekar slakar og allt sé mjög óraunverulegt, þá er þetta ágætis mynd ef manni vill bregða og vera hræddur. Ég gef þessari mynd 2 stjörnur af 5.

En já, helgin var æðisleg. Ég skrapp á færeyska daga í Ólafsvík með vinunum, og komum við heim á sunnudag. Þetta var æðislega gaman og vilja ég bara þakka öllum fyrir að hafa komið með. Ég ætla að reyna að rifja upp ferðina í grófum dráttum.

Á föstudeginum fórum við Jökull og tókum okkur til. Fórum í ríkið og pökkuðum draslinu saman. Svo skelltum við okkur á American Style uppi á Höfða og fengum okkur Heavy Special. Djöfull var gott að fá sér að borða fyrir ferðina miklu. Eftir það fórum við upp á KFC í mosó og hittum þar Eygló, Söndru, Lalla og Vidda. Eygló og Sandra voru á rauðum Yaris T-Sport, geðveikur bíll!

Svo byrjuðum við að keyra. Við vorum enga stund að keyra þangað, þar sem Jökull fór ekki niður fyrir 100 og ekki yfir 160. Vorum bara þar á milli, en fórum yfir smá svona hæð og vá, við gátum svo svarið að bíllinn hefði farið frá jörðinni í þessu stökki. Hahahaha!

Svo þegar við komum í Ólafsvík, var kona þar sem við héldum að væri karlmaður. Við vorum þarna í bílnum að veðja hvort þetta væri karl eða kona, en svo kom í ljós að þetta var kona. Hún bauð okkur að borga bara í peningum 1000 kr. á kjaft og fá band, en við vorum bara með 500 kr. á okkur, þar sem Eygló sagði að það kostaði 500 kr. inn. En við fórum bara aðeins lengra og þar var gaur með posa.

Svo komum við inn á svæðið. Við vorum heillengi að rúnta um bæinn að leita að svæði til að tjalda á, en svo loksins fundum við flott svæði fyrir framan kirkjuna. Það var mjög fínt að tjalda þar. Við tjölduðum og fengum okkur svo bjór.

Svo var komið að því að fara niður í bæ. Þar var hljómsveit að spila og allir söfnuðust saman á planinu þarna fyrir framan hljómsveitina. Það var dansað og sungið hástöfum. Svo var einhver gaur sem stökk í sjóinn. Kafarinn frá björgunarsveitinni bannaði honum að stökkva í sjóinn en gaurinn hlustaði ekkert á hann og stökk í sjóinn. Þá stökk kafarinn á eftir honum og hjálpaði honum upp úr. Meira ruglið.

Svo var bara farið í tjöldin og drukkið meira, spilað á gítar og sungið. Þetta var geðveikt gaman!

Svo á laugardeginum var vaknað í mikilli þynnku og myglu. Við Jökull vöknuðum klukkan sirka 2 og lögðum okkur aftur klukkan 4. Ég veit ekki hvenær Jökull vaknaði en það var allavega langt á undan mér, þar sem ég var vaknaði klukkan 8 um kvöldið. Þá voru Halli og Edda komin. Svo stuttu síðar komu Helgi, Andri og Elvar. Við byrjuðum bara að drekka og svona. Jökull var nýbúinn að grilla, þannig ég fékk mér bara rækjusamloku, sem ég keypti mér áður en ég fór af stað í ferðina.

Svo seinna um kvöldið kom Gummi. Hann hafði sagt við Helga að fara án sín, en svo séð eftir því þegar Helgi var lagður af stað, og séð fyrir sér hverju hann væri að missa af og drifið sig af stað í Ólafsvík. Gott að þú komst, Gummi, út af því að ég var ekki sáttur þegar Helgi sagði mér að þú hefðir beilað.

Svo seinna fórum við strákarnir og heilsuðum upp á Símon og ÍTR liðið. Þau kenndu okkur Hákarlalagið og eftir það fórum við á einhvern leikvöll þarna og hittum fólk sem vildi endilega taka einn leik við okkur í fótbolta. Djöfull var þetta ömurlegur leikur. Ég var þarna í vörninni, þar sem ef ég hefði verið í sókn, hefði ég örugglega dáið. Þið hefðuð átt að sjá hversu ónýtur ég var eftir leikinn. Bjór og fótbolti er ekkert sérstaklega góð blanda. Auk þess er ég með versta þol í Íslandssögunni.

Eftir leikinn fórum við aftur í leiktækin. Það var víst mikið um að fólk slasaði sig þarna. Andri meiddi sig á hnéinu og hlaut innvortis blæðingar undir hnéskelina. Hnéið á honum var orðið risastórt. Það þarf víst að stinga nál undir hnéskelina og dæla blóðinu úr hnénu. Jakk, ógeð! Jökull meiddi sig í vinstri löppinni og varð það til þess að greyið var halt alla ferðina. Ég meiddi mig smá á höndunum, litlar skrámur bara. Ekkert meira en það.

Eftir fíflalætin fórum við aftur að tjöldunum og þá var dansað, drukkið og sungið. Ekta útileigustemmning, þar sem Helgi var á gítarnum og fólk hópaðist þarna í kring. Meira að segja fólk sem við þekktum ekki neitt. Allir vildu vera með okkur! Svo eftir það ákváðum við Jökull að grilla okkur einhvern mat, en þá hópaðist fólk bara í kringum okkur og fékk afnot af grillinu okkar. Jökull kom með ekta svona útileigugrill, ekkert svona einnota drasl, þannig við vorum mjög vinsælir þarna hjá fólki sem átti ekki grill.

Svo var komið að því að kíkja í bæinn á ball. Við löbbuðum öll saman aðeins út fyrir bæinn, þar sem ball með í Svörtum Fötum var haldið í einhverju félagsheimili þarna. Ég, Jökull, Gummi, Helgi, Eygló, Sandra, Arnar, ofl. vorum þarna. Ég hitti Sollu, þar sem hún var að labba aftur í bæinn. Hún gaf mér miða inn á ballið, sem ég nýtti mér. Ég labbaði inn í dyrnar, rétti miðann, labbaði aðeins inn, tók 180° snúning og labbaði svo aftur út. Þetta var of fyndið! Dyravörðurinn horfði á mig eins og ég væri eitthvað þroskaheftur. Svo hitti ég Fannar Kind, og gaf hann mér annan miða inn á ballið. Ég gerði þá aftur það sama. Dyravörðurinn hélt endanlega að ég væri klikkaður. Þetta var svo fyndið! Svo eftir þennan fíflagang fórum við, jöckuðum gaur sem var dauður þarna í brekkunni fyrir framan félagsheimilið og fórum svo aftur að tjaldsvæðinu.

Seinna um morguninn fórum við strákarnir; ég, Jökull, Helgi, Halli, Ívar og Gummi, niður í bæ. Þar vorum við bara að fíflast fullir. Strákarnir reyndu að taka Ívar og henda honum á eitthvað tjald. Þetta snérist aðallega út á það að henda hvorum öðrum á eitt silfrað tjald sem stóð þarna. Ég labbaði að tjaldinu og ætlaði að gera eitthvað, en þá kom Gummi á fleygiferð og ýtti mér á tjaldið. Ég bókstaflega FLAUG á tjaldið, og hugsanlega kramdi allt það líf sem inni í tjaldinu var. Svo kom auðvitað að því að ég þurfti að gera heimskupör og meiddi þ.a.l. stelpu. Ég tók 2L kók light flösku og henti henni lengst upp í loftið í von um að hún myndi springa þegar hún félli til jarðar. Ég sleppti flöskunni vitlaust, þannig hún fór beint upp í loftið og svo í bakið á einhverri stelpu, vinkonu Eddu held ég. Ég fór til stelpunnar og baðst afsökunar, en hún hlustaði ekki á mig. Svo seinna fór hún að gráta og rölti upp á tjaldsvæði og vinkonur hennar á eftir henni. Ég biðst afsökunar á þessu, hver sem þú ert.

Svo seinna röltum við aftur á tjaldsvæðið. Ég fann eitthvað prik sem Halli tók langstökk með. Það endaði nú frekar illa, þar sem Halli náði nú engu stökki og festist í runnanum. Ég ákvað þá að ná í prikið aftur, en um leið og ég reyni að ná í prikið, kemur Halli á fullri ferð og reynir að ýta mér í runnann. Ég streitist á móti og endar það með því að Halli dettur aftur í runnann. Svo þegar við komum aftur upp á tjaldsvæðið tóku strákarnir svona risastórt fiskinet og settu það á eitthvað tjald sem var á tjaldsvæðinu okkar. Þetta var allt saman of fyndið!

Stuttu eftir að við komum upp á tjaldsvæðið, fórum við bara að sofa. Mig minnir að við höfum tekið aðeins smá gítar og söng á þetta, en ég man að við fórum svo bara að sofa. Hroti, ég meina Helgi, fékk að gista hjá okkur Jökli, þar sem hann var ekki með neitt tjald.

Á sunnudeginum vaknaði fólk löngu á undan mér. Ég man það, þar sem þegar ég var að vakna, var Jökull að taka tjaldið okkar saman. Svo kom Halli og allar stangirnar hurfu og ég var þarna einn í stangalausu tjaldi, sem féll bara ofan á mig. Svo fór fólk að taka til og svona, áður en lagt væri af stað heim. Fólk fór líka að blása svo það væri ekki að keyra fullt heim. Ég man að það var smá vesen út af því að einn þarna mældist eitthvað og mátti ekki keyra, en það reddaðist.

Við lögðum svo af stað og skelltum okkur í Grundarfjörð. Þar stoppuðum við á geðveikum pizzastað, sem ég man ekkert hvað heitir. Ég man bara að pizzurnar voru geðveikar en allt fyrir utan pizzurnar var sjúklega dýrt. Til dæmis kostaði 2L kók 550 kr. En pizzurnar voru nú ekki það dýrar. Ég ætlaði að athuga hversu mikið ég hefði borgað fyrir þetta allt saman, en ég finn engar færslur inni á einkabankanum mínum sem er stílaðar á sunnudaginn 2. júlí. Furðulegt! Bara 30. júní og svo 3. júlí, sem var mánudagur. Ég man allavega að ég fór á þennan pizzustað.

Svo þegar við komum heim, skelltum við okkur bara heim. Svo fórum við í bíó klukkan 8 á myndina Stay Alive, en ég var búinn að skrifa það efst. Við lögðum svo seint af stað á myndina, þannig þegar við vorum komin til Gumma, var klukkan orðin nokkrar mínútur fyrir 8. Þannig við ákváðum að fara bara í 10 bíó svo Sandra gæti komið með. Við fórum á KFC og fengum okkur að borða og svona fyrst. Svo fórum við bara í bíóið. Svo eftir bíóið fórum við bara heim og fórum að sofa.

Svo á mánudeginum fór ég bara í vinnuna. Kom svo heim, byrjaði aðeins að blogga en náði ekki að klára út af því að ég var að fara í bíó með strákunum á myndina Click, með Adam Sandler og Kate Beckinsale í aðalhlutverkum.

Myndin fjallar um mann að nafni Michael Newman, sem finnst hann ekki hafa nægan tíma til að gera allt sem fjölskyldan þarfnast. Að ósk sonar síns, fer hann og kaupir fjarstýringu til að geta stjórnað öllum tækjum á heimilinu á einni fjarstýringu, en slysast til að fara inn í herbergi, þar sem hann hittir klikkhausinn Morty, sem leikinn er af Christopher Walken. Morty lætur hann hafa fjarstýringu sem hann getur stjórnað öllu með. Öllu frá hljóðstyrknum á geltinu í hundinum hans til þess að geta spólað fram og til baka í lífi sínu. Hann kemst svo að því að fjarstýringin hugsar sjálfstætt, þannig það leiðir til þess að hann eldist aldurs fram, án þess að hafa nokkra stjórn á því.

Þessi mynd er frábær skemmtun í alla staði, vel leikin og allt. Ég var m.a.s. komin með tárin í augun í endanum á myndinni, þar sem þessi mynd leikur sér með allar tilfinningar manns. Allt frá reiði til sorgar. Það kom mér hins vegar mest á óvart, var það að sjá David Hasselhoff í þessari mynd. Hann lék snilldarlega, eins og alltaf. Ég gef þessari mynd 4 stjörnur af 5. Ég mæli hiklaust með þessari mynd.

Svo eftir myndina fórum við bara heim að sofa. Ég vaknaði geðveikt ógeðslegur í vinnuna á þriðjudegi. Var geðveikt þreyttur og ofan á það var ég geðveikt slappur. Sjalli var veikur, þannig ég var bara einn með krakkana. Svo fór ég bara heim og skellti mér svo til læknis. Læknirinn sagði fátt annað en að ég væri kominn með enn eina pestina, þannig ég ætti að fara mér hægt í nokkra daga og koma svo aftur ef mér myndi fara versnandi. Svo eftir heimsóknina til læknisins fór ég bara að vinna í Bónus Video með Hildi. Fór svo bara heim, fór smá í tölvuna og fór svo bara að sofa.

Svo núna í morgun hringdi ég mig inn veikan í vinnuna og fór svo aftur að sofa. Var svo að vakna núna áðan og er ennþá alveg helvíti slappur. Alveg ótrúlegt hvernig er hægt að vera veikur 3svar sinnum á innan við tveim mánuðum. Fyrst var ég helvíti slappur en gerði ekki neitt í því og svo batnaði mér. Svo eftir viku sirka varð ég aftur helvíti slappur og ákvað þá að fara til læknis. Hann lét mig fara á sýklalyf og tók ég þau í 10 daga og batnaði svo aftur. Svo nú 2 vikum eftir það er ég aftur orðinn slappur. Ætli ég sé með króníska veiki?

En allavega, helgin var æðisleg og hefði ég ekki fyrir mitt litla líf viljað missa af henni. Ég vil bara þakka öllum sem mættu í þessa ferð, kærlega fyrir mig, og vonast til að sjá ykkur fljótt aftur.

Hvað er svo næst? Ahh! Myndirnar. Ég tók 120 myndir, þannig það tekur smá tíma að minnka og merkja þær, þannig ég skrifa bara í athugasemdir þegar þær koma inn.

En ég byrjaði að spá í þessu fyrir nokkrum dögum hvort ég ætti ekki að reyna að koma mér í almennilegt form áður en ég færi út til Tenerife? Þetta byrjaði fyrst með pælingum um að byrja að dansa aftur, en þróaðist svo út í það að kaupa sér tíma hjá einkaþjálfara og reyna að verða flottur á einum mánuði, áður en maður færi út. Þannig núna strax eftir veikindin fer ég í það að kaupa mér kort í ræktinni hjá einkaþjálfara og kem mér í mjög gott form. Ég ætla að byrja að æfa 3-4x í viku og breyta mataræðinu mínu algjörlega, og stefni á það að geta verið ber að ofan úti á Tenerife, án þess að skammast mín.

Svo eftir að ég kem heim frá Tenerife ætla ég að byrja aftur í samkvæmisdansi. Ég er meira að segja kominn með dansfélaga, og er það krúsídúllan Eygló sem ætlar að dansa við mig. Hún er aðeins minni en ég, þannig þetta er fullkominn hæðarmunur á okkur! Þetta verður geðveikt gaman!

En allavega, segjum þetta ágætt í bili.

*UPPFÆRSLA* myndirnar frá helginni eru komnar inn!!!




Athugasemdir ():