Deila á Facebook
« Færeyskir dagar - Allt sem þið misstuð af | Aðalsíða | Ættarmót »

Veikindi, vídjógláp, ofl.
Skrifað fimmtud. 6. júlí 2006 - 01:57
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, strax kominn tími á annað blogg eftir þetta mikla helgarblogg.

En í dag gerði ég nú ekki margt annað en að sofa. Ég er kominn með enn aðra pestina, þannig ég ákvað að hringja mig inn veikan í vinnunni í morgun, þar sem ég var að deyja þegar ég vaknaði í morgun og lagði mig aftur. Svo vaknaði ég kl 4, klæddi mig og fór aðeins í tölvuna. Skrifaði þetta voða fína blogg um helgina á færeysku dögunum í Ólafsvík. Svo eftir það byrjaði ég að skella inn myndunum frá ferðinni. Seinna um kvöldið báðu Jökull og Eygló mig um að koma og horfa á video heima hjá Söndru. Hún var ein heima, þannig maður ákvað að slá til.

Ég fór bara í sturtu og gerði mig kláran. Ég var veikur og tiltölulega nývaknaður, þannig ég ákvað að sleppa gelinu í þetta skiptið. Svo kom Jökull og sótti mig. Við fórum svo til Dóra, sem ætlaði að koma með, en hann hætti við á seinustu stundu, þannig við fórum bara til Kella og sóttum hann.

Svo þegar komið var til Söndru var strax hoppað út í bíl og farið upp í Snæland video, sem mun vera samkeppnisaðili Bónus Video. Við fórum og völdum mynd og keyptum smá nammi í leiðinni. Myndin sem varð fyrir valina var Kiss Kiss Bang Bang. Við ætluðum að taka Wolf Creek, en Viddi var búinn að sjá hana, þannig við slepptum henni.

Mér fannst Kiss Kiss Bang Bang með voða asnalegan og óskiljanlegan söguþráð, en hún er sneisafull af kaldhæðnum húmor, sem mér finnst lang skemmtilegasti húmorinn. Ég gef henni 3 stjörnur af 5.

Svo fórum við bara heim og núna er ég að klára að henda myndunum frá helginni inn og svo fer ég bara að sofa. Góða nótt.




Athugasemdir ():