Ættarmót í Reykjanesinu
Skrifað mánud. 10. júlí 2006 - 01:35Ég ákvað að skella mér á ættarmót, þar sem pabbi bauðst til þess að fljúga þangað með mig. Ég var enginn veginn að nenna að keyra þangað, þannig ég þáði boðið um flugið.
Ég kom allt of seint úr vinnunni á föstudeginum, út af því að rútan kom svo seint út af einhverjum vörubíl sem hafði oltið þarna. Ég var á síðasta snúning og dreif mig heim. Við áttum að mæta út á flugvöll kl 5, en ég átti eftir að gera allt þegar ég kom heim, þannig við vorum hálftíma of seinir. Það var samt ekkert mál, þar sem gaurarnir hjá Geirfugli eru fínir gæjar.

Við vorum komnir í loftið um 6. Það tók einn og hálfan tíma að fljúga, sem sparaði manni alveg tvo og hálfan tíma í akstri. Verst var bara það að strax og við vorum komnir í loftið, þurfti ég að pissa, en það var ekkert hægt að stoppa.
Ég hneppti bara buxunum frá og hélt áfram að hugsa um eitthvað annað. Það tókst, en ég var í svona 3 mínútur að pissa þegar við lentum. 
Eftir að við vorum lentir kom mamma og sótti okkur á flugvöllinn. Við hefðum verið í svona 15 min að labba þetta, en ákváðum að láta bara mömmu sækja okkur. Spara fæturnar okkar.
Við fórum bara strax að heilsa fólkinu. Eftir það fórum við pabbi bara að grilla, og grilluðum við grísahnakka frá Selfossi.
Þeir eru ekkert frá Selfossi, en ég bara varð að bæta því við út af því að þetta er grísaHNAKKI.
Systir mín og kærastinn hennar, Gummi, fóru keyrandi á sama tíma og við, og voru komin um það leyti sem ég og pabbi vorum búnir að grilla. Þau komu right on time í matinn. 
Svo eftir matinn var bara drukkið bjór og spjallað við fólkið. Fátt annað sem gerðist á þessum fáláta föstudegi. Svo skrapp ég í sund með helling af fólki og drakk bjór í sundlauginni. Mmmm... of gott.
Svo fór ég bara að sofa. 
Á laugardeginum vaknaði ég kl 6 við það að litla frænka mín, Andrea, var að lemja mig í hausinn með kodda.
Ég var ekki alveg að fíla það, þannig ég ákvað bara að fara á fætur. Ég skrapp aðeins í sturtu sem tók endalausan tíma að stilla hitann á. Endaði bara með því að ég nennti ekki að reyna að stilla þetta og fór bara í ískalda sturtu. Það var hressandi. 
Svo eftir sturtuna, fór ég og dressaði mig upp og gerði mig fínan. Svo var matur í matsalnum þarna. Það var voða fínt. Eitthvað lambakjöt og helling af gúmmilaði í matinn. Þar sem mamma kann ekki að búa til brúnar sósur, sagði ég henni að fara og fá uppskriftina af þessari sósu sem var þarna, en hún neitaði bara. Sumir vilja bara ekki bæta sig!
Eftir matinn var bara sungið og drukkið í matsalnum. Svo þegar allir voru orðnir þreyttir á því, var farið á ball sem var niðri. Hljómsveitin sem spilaði bar nafnið Apollo, sem er ekki þekkt hljómsveit, en þau stóðu sig samt sem áður mjög vel.
Eftir að ég hafði klárað kippuna mína, var bara skellt sér á barinn og drukkið Smirnoff ICE. Ég var bara eitthvað einn þarna, þar sem ég var ekki yfir mig hrifinn af því að hanga í kringum gamla frændfólkið mitt þarna.
Seinna um kvöldið sá ég voða sæta stelpu, sem mig langaði að kynnast aðeins betur. Það voru 3 ættarmót þarna, og var hún á einu þeirra. Sem betur fer ekki mínu.
Um leið og ég ætlaði að tala við hana, fór hún. Ég settist þá niður hjá frænku hennar og spurði hana hvað þessi stelpa héti, hvað hún væri gömul, hvort hún væri á föstu, o.þ.h. Hún sagði að hún héti Margrét, væri 21 árs gömul og væri ekki á föstu. Hún spurði mig þá hvort ég hefði áhuga á henni og svaraði ég játandi. Hún sagði mér þá að spjalla við hana þegar hún kæmi aftur.
Svo eftir nokkrar mínútur kom stelpan (Margrét) til baka. Hún settist þarna hliðiná mér og frænku sinni. Ég fór eitthvað að spjalla við hana og spjölluðum við lengi saman. Eftir dágott spjall komst ég að því að hún væri ekki 21, eins og frænka hennar hafði sagt, heldur var hún 19 að verða 20 ára ('86 model). Svo skrapp ég á barinn og keypti tvo Smirnoff ICE handa okkur. Svo eftir drykkina vildi hún fara eitthvert annað, þannig við ákváðum að skella okkur í göngutúr í kringum svæðið. Þetta var geðveikt rómó allt saman.
Svo eftir göngutúrinn fórum við í herbergið mitt og sofnuðum við þar saman. Það bjargaði alveg helginni að kynnast henni.
Svo um morguninn vakti hún mig, við skiptumst á númerum og fór hún svo aftur heim til Reykjavíkur.
Ég fór bara aftur að sofa og vaknaði kl hálf 6 núna á sunnudeginum. Ég skrapp niður í sturtu og klæddi mig svo. Svo fengum við okkur grísahnakka frá Selfossi í matinn og fórum svo og gerðum okkur klár fyrir heimför. Mamma og pabbi ákváðu að gista eina nótt í viðbót, þannig ég fór bara í bæinn með Ellu systir og Gumma, kærastanum hennar.
Ég var bara að koma heim núna áðan kl 11 og er bara búinn að vera í tölvunni síðan. Ég er að fara að sofa, þar sem ég á að vakna í vinnu eftir nokkrar klukkustundir.
Ég tók engar myndir um helgina, þar sem ég efast stórlega um að þið viljið sjá einhverjar myndir af ættfólki mínu.
Allavega, nú er ég farinn að sofa. Segjum þetta ágætt í bili, elskurnar. Góða nótt. 
Ég kom allt of seint úr vinnunni á föstudeginum, út af því að rútan kom svo seint út af einhverjum vörubíl sem hafði oltið þarna. Ég var á síðasta snúning og dreif mig heim. Við áttum að mæta út á flugvöll kl 5, en ég átti eftir að gera allt þegar ég kom heim, þannig við vorum hálftíma of seinir. Það var samt ekkert mál, þar sem gaurarnir hjá Geirfugli eru fínir gæjar.

Flugvélin sem pabbi flaug

Athugasemdir (