Deila á Facebook
« Leiðindi, leiðindi, leiðindi | Aðalsíða | Djamm ofl. »

Gærkvöldið
Skrifað laugard. 12. nóvember 2005 - 19:08
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, kvöldið í gær var nú bara mjög fínt. Vil ég þakka sérstaklega Guðrúnu fyrir það. Hún fékk mig til að hrista af mér leiðindin og drífa mig að gera eitthvað. Kannski út af því að það var bjór innifalinn? Hehehe.

Við byrjuðum kvöldið á því að fara til Jökuls og taka því rólega þar. Þeir sem voru þar voru: Ég, Grétar, Jökull, Guðrún og Beta. Ég drakk nokkra bjóra og var bara góður á því. Ég var m.a.s. það góður á því að ég leyfði Grétari og Jökli að kýla mig í öxlina eins oft og þeir vildu. Það endaði með því að ég varð svona. Já, maður finnur ekkert fyrir svona þegar maður er fullur en daginn eftir finnur maður sko fyrir því!

Eftir það fórum við niður í bæ og ég fór og hitti Huldu á meðan þau fóru á Aktu Taktu. Ég var nú bara að hitta hana sem vinur og vonaðist ég ekki eftir neinu, en enginn trúði því. Er alveg bannað að vera vinir eftir að maður hættir saman? En já, svo fórum við bara heim.

En núna í kvöld held ég að ég geri mér ekki alveg grein fyrir því hvað ég er að fara út í. Ég er að fara á ball fyrir Önfirðinga, Súgfirðinga og Flateyringa. Mamma og pabbi buðu mér á þetta og ákvað ég að slá til í þetta skiptið, þar sem ég er ekkert sérstaklega aktívur í fjölskyldunni þegar kemur að einhverju svona. Þannig, já... ég er uppgelaður og með rakspíra sem kolfellir dömurnar og er til á djamm með fríum bjór og fríum mat!
En venjulega þegar ég fer á ball með mömmu og pabba, enda ég alltaf með því að dansa við mömmu eða eitthvað fáránlegt. Þannig ég ætla að fara rólega í fría áfengið.

En já, ég læt ykkur vita seinna hvernig kvöldið fer.




Athugasemdir ():