Opel Astra OPC
Skrifað fimmtud. 13. júlí 2006 - 02:20Jæja, ég fór í tívolí með Margréti, Önnu, systir Margrétar, Jökli, Grétari, Kella, Hildi, Eygló, Kötu og Söndru, og var það bara geggjað gaman. Ég fór reyndar bara í eitt tæki og var það hamarinn, eða hvað sem þetta heitir. Þetta eru mörg svona sæti í hring og svo fer þetta alveg upp í loft og snýst. Man ekki hvað þetta tæki heitir en þetta var klikkað gaman!
Eftir tívolíið voru bollurnar okkar orðnar svo svangar að við ákváðum að fara á Aktu Taktu. Ég fékk mér bara Mozarella stangir, þar sem ég var ekkert það svangur. Eftir það skutluðum við bara Margréti heim og svo systir hennar.
Svo á leiðinni heim bað ég Jökul um að fara smá útúrdúr út af því að ég ætlaði að sýna honum klikkaðan bíl. Þetta er Opel Astra OPC, sem er knúinn 2L turbo vél og er 240 hestöfl. Enginn smá kraftur í þessu kvikindi, og það sem er ótrúlegast við þetta er að þetta er OPEL ASTRA! Þessi bíll er ofarlega á listanum yfir næsta bíl sem ég fæ mér!

GEÐVEIKUR BÍLL! Ég er ástfanginn af honum.
En núna ætla ég bara að fara að sofa, þar sem ég þarf að vakna snemma á morgun á þetta Mið-Sumars-Mót hjá Vinnuskólanum.
Góða nótt, elskurnar. ;*

Athugasemdir (