Deila á Facebook
« Opel Astra OPC | Aðalsíða | Fatakaup, sumarbústaður, ofl. »

Fimmtudagur - MSM, vinna ofl.
Skrifað föstud. 14. júlí 2006 - 14:22
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Gærdagurinn var ágætur, þrátt fyrir ömurlegan slappleika um kvöldið.

Ég fór á þetta Mið-Sumars-Mót (MSM) hjá Vinnuskólanum, sem var haldið í Nauthólsvíkinni. Þetta var vægast sagt misheppnað, þar sem skipulagsleysið var í hámarki.

Við byrjuðum á því að hittast í Örfirisey. Svo löbbuðum við upp í ráðhúsið þar sem Vilhjálmur, borgarstjóri, tók í höndina á öllum. Fínn gaur. Svo var labbað upp í Nauthólsvík. Gangan gekk ágætlega fyrir sig, þar sem Guðjón, yfirmaður í Vinnuskólanum, var með hátalara gargandi á krakkana sem voru óhlýðnir.

Þegar komið var upp í Nauthólsvík var alveg heillengi dauður tími. Ekkert að gerast nema bara að sitja í grasinu og bíða eftir einhverju. Ég, Eygló og Jökull vorum orðin geðveikt svöng. Svo kom að því að pizzurnar frá Dominis komu. Við þurftum að bíða í heillangri röð eftir einni helvítis pizzusneið! Svo máttum við bara fá eina sneið, þannig við ákváðum að panta okkur bara sér pizzu. Ég hringdi á Dominos og þá var bara 60-70 min bið! Við nenntum sko ekki að bíða eftir því, þannig við ákváðum bara að fara á American Style eftir hátíðina.

Svo var einhver ömurleg hljómsveit að spila þarna og svona. Til að toppa þennan æðislega dag þurfti auðvitað að rigna. En það var sem betur fer í endann á deginum. En eftir hátíðina fórum við bara í rútu upp á Hlemm og tókum svo strætó þaðan upp í Grafarvog. Ég dottaði ógeðslega mikið í strætónum á leiðinni og var alveg handónýtur af þreytu þegar við komum að bílnum hans Jökuls.

Svo skutluðum við Eygló bara heim, þar sem hún ætlaði að leggja sig fyrir æfingu. Við Jökull fórum bara á Stælinn og fengum okkur að borða. Svo skutlaði Jökull mér bara heim.

Svo þegar ég kom heim fór ég á klósettið og sofnaði þar í sirka klukkutíma. Hvernig er hægt að sofna á klósettinu? Allavega, svo vaknaði ég bara GEÐVEIKT þreyttur og fór að taka mig til fyrir hina vinnuna.

Djöfull var ömurlegt að vinna í gær. Ég var með ógeðslegasta hausverk í heimi og hálsinn minn var eins og hann væri stútfullur af rakvélablöðum. Ógeðslega vont að kyngja og svo þegar maður þurfti að hósta, lá við að hausinn á mér myndi springa. Ég er alltaf að fá eitthvað kvef ógeð í hverri viku. Hvað er um að vera?!

En já, svo fór ég í vinnuna í morgun. Strax og ég opnaði útidyrahurðina í morgun sá ég ógeðslegt veður og vonaði að þetta yrði stuttur vinnudagur, en svo fæ ég símtal frá Sjalla og hann segir mér að Guðrún, skólastýra Vinnuskólans, hafi sagt að við þyrftum bara að vinna til 11 og myndu rúturnar koma að sækja okkur þá. Djöfull varð ég ánægður. Þetta var ágætur dagur.

Núna ætla ég bara að skreppa í Kringluna og kaupa mér Levi's gallabuxur, hvíta hettupeysu og svartan bol. Þá verð ég góður fyrir djammið í kvöld! Maður getur nú leyft sér ýmislegt þegar maður á pening, enda þarf maður alltaf að endurnýja fataskápinn.

En hvað er planið í kvöld? Mér og Margréti var boðið í sumarbústaðinn hennar Söndru. Ég ákvað að fara ekki, þar sem ég vill eiginlega taka bæinn á þetta. Það er svo langt síðan maður fór í bæinn að djamma. Maður er alltaf í útileigum og svona. Ætli maður fari ekki bara á Sólon og dansi af sér rassgatið. Svo á morgun er grillpartý hjá Jökli og verður það stuð.

Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():