Deila á Facebook
« Fatakaup, sumarbústaður, ofl. | Aðalsíða | Heiðmörk, vinir, ofl. »

Laugardagurinn
Skrifað mánud. 17. júlí 2006 - 02:52
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, er ekki málið að skrifa smá um laugardaginn?

Ég fór í partý til Jökuls. Ég mætti svolítið seint, en partýið var ekki dautt þá. Síður en svo. Ég mætti þarna geðveikt hress. Þeir sem voru þarna: Jökull, Grétar, Eygló, Sandra, Anja, Helgi, Kata, Rúna, Kelli og Hildur. Þetta var geðveikt gaman, þangað til það kom upp á smá vesen. Jú jú, Anna Björt og Óli black komu í partýið, ásamt manneskju sem var þvert á móti boðið. Það var víst Beta, fyrrverandi kærasta Jökuls. Hvað var hún að hugsa að mæta bara þarna?! En allavega, þetta var fínt þangað til að þessu. Það var borðað pizzu. Það var mikið dansað hommadansa (ég aðalega ). Það var mikið hlustað á Boten Anna. Það var mikið drukkið. Það var mikið trúnó. Ég hitti fyrrverandi bekkjarbróðir minn Óla og kærustuna hans. Þetta var æðislegt!

Eftir ruglið ákvað ég að kíkja í partýið þaðan sem Anna, Óli og Beta komu frá. Það var haldið hjá Sævari, fyrrverandi bekkjarbróðir mínum. Kristín, fyrrverandi Kamils, átti víst afmæli, þannig ég varð að kíkja og óska henni til hamingju með afmælið.

Um leið og ég kom í hitt partýið, byrjaði Beta eitthvað að röfla í mér. Svo komu Svavar og einhverjir vinir hans og byrjuðu með eitthvað bögg. Sögðu að ég væri óvelkominn með eitthvað vesen þarna og eitthvað. Einn gaurinn, lítill og spikfeitur, fór að gera sig líklegan til að ráðast á mig. Ég horfði bara í augun á honum og svaraði fyrir mig. Hann gerði nú ekki mikið þá. Djöfull var ég alvarlegur á svipinn og í tali. Hann varð held ég bara hræddur. Svo sagði ég við Svavar að ég skyldi bara skreppa aðeins inn, heilsa upp á fólkið og óska Kristínu til hamingju með afmælið, sem ég svo gerði.

Svo eftir þetta rugl allt saman, ákváðum við að skella okkur í bæinn. Jói elskukrúsídúlla var svo góður að skutla okkur niður í bæ. Takk, elsku dúllí dúll. Svo þegar í bæinn var komið var auðvitað farið inn á Sólon. Hvað annað?

Ég man nú ekki eftir miklu inn á Sólon. Ekki það að ég hafi verið neitt mikið fullur, en það var nú ekkert nýtt sem gerðist, sem hefur ekki gerst aðrar helgar. Það var bara drukkið, dansað og sungið.

Ég man eftir einu atviki, þegar ég var að labba niður að fá mér ferskt loft í dyrunum. Á leiðinni þegar ég er að labba, kemur gaur og hrindir mér. Ég frekar æstur og í sjokki hleyp að honum og tek eitt gott högg í andlitið á honum. Svo koma dyraverðirnir og henda gæjanum út. Hann var víst á einhverju spítti og rugli. Djöfull var ég reiður þarna, en ég er feginn að dyraverðirnir voru nógu snöggir að grípa inn í, þar sem þessi gaur var ruglaðslega harður. Hann hefði jarðað mig, hefði hann fengið tækifærið til þess.

Svo fór ég bara upp og hélt áfram að dansa. Við vorum þarna allir strákarnir á dansgólfinu og létum eins og við værum einir í heiminum. Svo allt í einu duttu græjurnar úr sambandi, þannig músíkin varð voða lág. Þeir voru í smá stund að kippa því í liðinn, en við létum það ekki á okkur fá.

Svo ákváðum við að fara bara heim, þar sem liðið var orðið frekar þreytt. Ég rölti með Helga, Önju, Söndru og Jökli út. Ég var farinn að hafa áhyggjur af Grétari, þannig ég hringdi í hann, og sagðist hann þá vera á Ingólfstorgi með Vilborgu. Ég sagði við strákana að ég gæti ekki skilið hann einan eftir niðri í bæ, þannig ég rölti niður á Ingólfstorg til Grétars.

Þegar ég kom þangað sátu Grétar og Vilborg þarna fyrir framan Hlöllabáta. Ég settist aðeins hjá þeim. Svo kom eitthvað frönskumælandi fólk og kynnti ég mig á frönsku. Je m'appelle Gaui. Hehe, þau skildu það alveg og kynntu sig til baka.

Svo var einhver kona þarna sem ætlaði að borga mér 1000 kr. ef ég fengi vinkonu hennar til þess að labba í gegnum gosbrunninn, sem var þarna. Ég rabbaði aðeins við vinkonu hennar, og eftir 5 min sannfæringu, fór hún undir gosbrunninn. Ég græddi ss. 1000 kr.

Svo eftir þetta, röltum við á Fröken Reykjavík og ég fékk mér kók. Þar á leiðinni hittum við Ívar og Bjarna og voru þeir þokkalega hressir. Við röltum svo saman á Hlöllavagninn og þar fengu þeir sér að borða. Þar hittum við líka Heiðu og Palla. Ívar var svo fullur að hann ætlaði að henda kóki yfir Heiðu, en það fór þannig að kókið sullaðist heilmikið yfir Heiðu. Heiða var ekkert allt of sátt.

Svo röltum við Grétar fram hjá taxaröðinni og reyndum að húkka far hjá taxa, en enginn þeirra stoppaði. Þannig við röltum á BSÍ og biðum þar eftir taxa. Við hringdum í taxa og biðum örugglega í svona klukkutíma eftir honum. Helvítis drasl!

Á meðan við biðum eftir taxanum fengum við okkur að borða. Ég fékk mér franskar og kók, en Grétar ákvað að prófa eitthvað nýtt og fékk sér svið. SVIÐ?! Hvað ertu að spá, krakki?

Grétar í góðum gír á BSÍ að borða svið.


Svo þegar helvítis taxadruslan kom, fórum við inn í hann. Bílstjórinn keyrði á 100+ alla leiðina, þannig ég og Grétar sluppum með sirka 2000 kall alla leið heim í Grafarvog frá BSÍ. Það var nú ekki dýr taxi. En svo þegar ég kom heim, fór ég aðeins í tölvuna og fór svo að sofa. Ég var kominn heim svona 9 leytið um morguninn.

Svo vaknaði ég áðan kl 9 um kvöldið. Fékk mér kvöldmat og fór svo aftur í tölvuna. Kamil og Danni komu svo til mín og skruppum við á Oliver. Seinna komu Jökull og Gummi. Allur gamli vinahópurinn kominn saman á einum stað. Þetta var mjög skemmtilegt kvöld. Svo fékk maður sér einn bjór, en auðvitað endaði það með því að maður var búinn með 4 bjóra þegar Oliver lokaði. Rétt áður en Oliver lokaði tókum við Gummi sjómann. Hann var svo viss um að hann myndi taka mig, en það endaði með jafntefli. Hehehe, ég er alls ekkert ósáttur við það, þar sem fyrir nokkrum mánuðum rústaði hann mér gjörsamlega. Gummi var ekkert allt of sáttur, þar sem hann var svo sjálfsöruggur áður en við byrjuðum.

Svo skruppum við Jökull bara á Subway og fengum okkur að borða. Helvítis aularnir áttu ekki til ostasósu, þannig ég varð að láta barbeque sósu duga. Andskotinn! Svo hitti ég Sergio snilling þarna, og var hann þokkalega hress. Fór aðeins að röfla í mér að bíllinn minn væri ripoff af Eclipse, sem er svo mikið kjaftæði. Svo skutlaði Jökull mér bara heim og hér er ég kominn.

Ég ætla núna bara að fara að skella mér í háttinn. Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():