Deila á Facebook
« Heiðmörk, vinir, ofl. | Aðalsíða | Bensínverð og leigubílar »

Dagurinn í dag
Skrifað miðvikud. 19. júlí 2006 - 01:18
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég fór í vinnuna í dag. Ekki margt að segja frá því, nema það að sl. nótt svaf ég bara í einn tíma. Ég sofnaði frammi í sófanum eftir kvöldmat, vaknaði svo kl 2 um nótt og gat ekki sofnað fyrr en 6. Svo vaknaði ég klukkutíma síðar, eða kl 7. Hræðilegt!

Allir krakkarnir sem eru hjá mér eru að fara að hætta núna á fimmtudaginn, þannig ég og Sjalli verðum sendir í bæinn eftir helgi. Það er að vissu leyti fínt, þar sem maður er kominn með hálfgert ógeð af þessum Hestabrekkum.

Dagurinn var lengi að líða, þar sem veðrið var alveg æðislegt! Siggi stormur er algjör snillingur að spá svona góðu veðri og alveg ótrúlegt að það rætist! Ég hlusta ekki aftur á svona spár, heldur fer ég bara út og horfi upp í himininn og spái bara veðrinu sjálfur út frá honum.

En við unnum nú bara í rigningunni og létum það lítið á okkur fá. Svo hættum við klukkutíma fyrr, tókum til í skúrunum og spiluðum svo þangað til rútan kom. Svo rétt áður en rútan kom, kom Guðmundur, yfirleiðbeinandi, og Óskar, yfirmaður skógræktarinnar. Þeir voru bara að kíkja á hvað við værum dugleg, en eitt er víst, og það er það að þeir taka ekki tillit til þess hversu fá við erum. Þegar við vorum flest, í byrjun sumars, vorum við 15, en núna erum við 6-7. Svo hættu alveg heill hellingur af krökkum og nú stöndum við uppi með örfáa gríslinga, sem eru að fara að hætta á fimmtudag.

Svo fór ég bara heim með rútunni. Rútubílstjórinn var svo næs að fara hamrahringinn fyrir mig, þar sem ég er algjör letidýr. Hann sagði að það skipti engu máli, þar sem þetta er hvort sem er svo lítill hringur og maður er enga stund að keyra hann. Fínn gaur.

Svo þegar ég kom heim fór ég bara beint í tölvuna, náði í nokkur lög á netinu, þambaði 2L kók, skellti mér í sturtu og fór svo aftur að vinna. Ella systir var svo góð að skutla mér í vinnuna, þar sem jú, ég er nú próflaus. Takk, Ella mín. ;* Ég var auðvitað nokkrum mínútum of seinn, þar sem það tekur tíma að taka sig til. Skellti mér bara í sturtu, úðaði Giorgio Armani á mig og var svo heillangan tíma að laga hárið, eins og alltaf.

Það var allt brjálað í vinnunni. Helling af fólki að leigja og skila spólum, kaupandi ís og hvaðeina. Ótrúlegt að fólk nenni að vera að horfa á video á virkum degi. Hvað, eruði ekki í vinnu, ræflarnir ykkar?

En svo komu Jökull, Jói, Eygló, Kata og Böddi að leigja mynd hjá mér. Þau leigðu einhverjar ömurlegar myndir, þannig ég var ekkert að leggja á minnið hvað myndirnar hétu. They stink anyway. Svo fóru þau og skildu mig bara eftir. Bastards! Svo kláraði ég að vinna og mamma kom og sótti mig og hér er ég niður kominn.




Athugasemdir ():