Bensínverð og leigubílar
Skrifað miðvikud. 19. júlí 2006 - 01:37Er alveg að fara að sofa, en ég fann að ég þurfti aðeins að röfla út af bensínverðinu og gjaldtöku leigubílanna.
Ég spyr bara einfaldrar spurningar: HVAÐ ER MÁLIÐ MEÐ ÞETTA BENSÍNVERÐ? Þetta er náttúrulega bara rugl!
Ég man ennþá daginn í dag þegar líterinn var á í kringum 90 kr., og það var sko svei mér þá sældarlíf. En því miður var ég ekki kominn með bílprófið þá, þannig ég fékk ekki að njóta sælunnar.
En núna er ég bara drullufeginn að vera próflaus, þar sem ég væri örugglega fátækur núna út af þessu helvítis bensínokri hjá þessum olíufélögum! 
Svo er alltaf sama helvítis ástæðan fyrir hækkununum; "hækkun á heimsmarkaðsverði". Þetta er orðin ógeðslega þreytt afsökun. Svo þegar heimsmarksverðið lækkar, lækka þeir bensínverðið ekki samkvæmt því, heldur lækka þeir það svo lítið að maður tekur varla eftir lækkun! Ég er farinn að halda að Grétar hafi haft rétt fyrir sér, en hann sagði einmitt að það yrði spáð því að bensínlíterinn færi upp í ~180 kr. í lok sumars. Ég get vel ímyndað mér að það stefni í það. Þetta er náttúrulega bara okur og ekkert annað.
Vissulega er í lagi að lækka skv. heimsmarkaðsverði svo þeir reki nú ekki stöðvarnar á tapi, en það er nú í lagi að lækka einnig skv. heimsmarkaðsverði þegar það lækkar. Þeir koma alltaf með afsakanir fyrir því þegar þeir lækka ekki í takt við það, og er hún oftast: "Við eigum svo mikið af gömlum birgðum". Alveg típískt að þeir vilji nú okra aðeins á landsmönnum, sem eiga það engan veginn skilið.
En nú spyr ég; Er ekki löngu kominn tími til að gera eitthvað í þessu og hætta að leyfa þeim að ríða okkur endalaust í rassgatið? Ég er ekki góður í því að skipuleggja mótmæli, en ég er nú alveg maður til að taka þátt í þeim. Ég skal meira að segja redda öllum sem ég þekki til að taka þátt. Ef allir leggjast á eitt ætti að vera hægt að ýta á enn frekari lækkanir þegar þeir ákveða loksins að lækka. Ég er allavega orðinn þreyttur á þessu síhækkandi bensínverði. Fyrst var það út af 9/11, því næst út af flóðunum í Asíu, og svo núna er það út af ástandinu fyrir botni Miðjarðarhafsins. Þessu hlýtur að linna, vona ég, áður en landsmenn leggja bílunum sínum og sniðganga gjörsamlega olíufélögin, þar sem fólk hefur ekki efni á að reka bílinn sinn.
Hvað ef fólk byrjar að taka taxa og strætó? Hækka þeir þá ekki bara verðið líka? Er það ekki alltaf þannig? Ég man nú gömlu góðu dagana þegar það kostaði 25 kr. í strætó. Nú er það hvað, 250 kr? Þetta er orðið svo mikið okurland að það hálfa væri nóg. Ég er allavega kominn með upp í kok af þessu öllu saman. En hvað er til ráða? Það kostar ekkert að labba, þannig það er ein lausn, sem væri frekar hentug þegar landsmenn verða örvæntingarfullir. Eða þá bara að taka strætó þangað til þeir hækka fargjaldið út af enn frekari bensínhækkunum. Ég veit ekki. Ég er að verða ráðalaus.
En það eru nú sirka 3 mánuðir í prófið mitt, þannig ég þarf ekki að hafa miklar áhyggjur. Ég hef nú mestar áhyggjur af verðinu sem verður þegar ég fæ prófið aftur. Ætli það verði þá að nálgast annað hundraðið? Ég ætla rétt að vona ekki, því ef ég verð örvæntingarfullur, flyt ég úr landi. Þar hafiði lokaúrlausn mína. Ég vona að þið fylgið á eftir mér.
--
En varðandi þessa taxa. Það er nú svolítið dýrt að taka taxa. Sérstaklega þegar maður á heima í sveitinni, Grafarvogi, eins og ég. Það er í kringum 5000 kr. ef leigubílstjórinn keyrir löglega og stoppar á flest öllum ljósum. Ef leigubílarnir ætla að halda áfram þessu okri að rukka 10 kr. aukalega fyrir hverjar 5 sekúndur, ættu þeir annað hvort að fella niður startgjaldið, eða þá að taka upp kílómetra gjald og halda þá startgjaldinu. Þá ef viðkomandi býr stutt í burtu, eru leigubílarnir ekki að tapa það miklu, þar sem startgjaldið vegur upp á móti vegalengdarinnar og fargjaldsins. Svo ef viðkomandi býr langt í burtu, þarf hann vissulega að greiða meira, en borgar alltaf jafn mikið í hvert skipti. Þá færi það ekki eftir því hvort leigubíllinn væri í góðu skapi og keyrði hratt eða þá hversu heppinn maður væri með ljósin, heldur þá myndi hann bara reikna fargjaldið út frá vegalengdinni í kílómetrum.
Ég fór t.d. í leigubíl núna sl. helgi og þar var leigubíllinn eitthvað að drífa sig, þar sem hann keyrði á 100+ alla leiðina og stoppaði aldrei á gulu. Startgjaldið var 540 kr. en hann var svo fljótur á afangastað (frá miðbæ í Grafarvog), að samtals kostnaður fyrir farið var í kringum 2000 kallinn, sem er ekki slæmt verð á miðað við venjulega sem tíðkast oftast. Ef þessu verður ekki breytt, heimta ég næst þegar ég panta taxa, að hún kalli út hraðskreiðasta leigubílinn og bílstjórann sem er vanur að aka hraðast. Það fer ekki á milli mála.
--
Einn virkilega þreyttur á okrurum. Ég segi þetta ágætt í bili. Ég og Sjalli vorum bara að ræða þetta í vinnunni í dag og varð ég bara að koma þessu á framfæri. Komið endilega með skoðanir ykkar á þessum málum.
Bensín hækkað um 20% frá áramótum
Olíufélögin hækkuðu í gær verð á eldsneyti. Lítrinn af bensíni hækkaði um 3,40 kr. og lítrinn af dísilolíu hækkaði um 2 kr. Eftir hækkunina er algengt verð á bensíni með fullri þjónustu 137,80 kr. og á dísilolíu 130,30 kr. Algengt sjálfsafgreiðsluverð er fimm krónum lægra eða 132,80 kr. fyrir bensínlítrann og 125,30 kr. fyrir lítrann af dísilolíu.
Samkvæmt upplýsingum olíufélaganna er ástæðan fyrir hækkuninni hækkun á heimsmarkaðsverði eldsneytis sem rekja má einkum til ástandsins fyrir botni Miðjarðarhafsins.
Verð á eldsneyti hefur breyst yfir þrjátíu sinnum það sem af er þessu ári, oftast til hækkunar. Frá því í ársbyrjun hefur verð á bensíni með fullri þjónustu hækkað úr 114,80 kr. á lítrann eða um 23 krónur, sem er 20% hækkun. Á sama tíma hefur verð á dísilolíu hækkað úr 112,80 kr. í 130,30 kr. á lítrann, sem er 15,5% hækkun. Hefðbundið er að bensín hækki meira en olía yfir sumarmánuðina vegna mikillar eftirspurnar þegar ferðatíminn fer í hönd, samkvæmt upplýsingum olíufélaganna.
Skv. mbl.is

Athugasemdir (