Deila á Facebook
« Bensínverð og leigubílar | Aðalsíða | Fyllerí, vinna, ofl. »

Sumarið er tíminn
Skrifað föstud. 21. júlí 2006 - 17:32
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Þetta er svona þegar maður er að vinna endalaust, þá hefur maður engan tíma til að blogga. Svo er ég alltaf að skammast í fólki þegar það er latt við það að blogga. En sumarið er tíminn.

Á miðvikudaginn var ég bara að vinna. Svo eftir vinnu fór ég með Grétari á Stælinn, fórum svo og sóttum Jóa og fórum við að horfa á Vatnaliljurnar í fótbolta. Staðan fór 2-2 á móti Leikni, en djöfull voru strákarnir að standa sig. Helgi var að brillera í markinu. Svo eftir það fórum við bara á Sólon og fengum okkur allnokkra bjóra. Svo fórum við bara heim.

Ég og Grétar á Sólon.


Í gær var ég bara að vinna frá 8-12. Ekkert smá álag á manni, en það er peninganna virði. Eftir vinnu fór ég bara heim í bað. Ég hef ekki farið í bað lengi. Það var mjög notalegt að liggja í baðinu og slappa af. Svo fór ég bara í Bónus Video að vinna.

Eftir að ég var búinn að vinna kl 12 um kvöldið, bað Grétar mig um að koma á Sólon. Ég sagði að það tæki því ekki, en hann sagði að allir, sem væru að fara til Tenerife, væru þarna. Ég varð auðvitað að fara, þannig ég bað Andra, sem er að vinna með mér, um að skutla mér þangað. En svo eftir vinnu þegar við vorum að setjast út í bíl, kom pabbi. Þá fór ég til hans og bað hann um að skutla mér. Hann var auðvitað til í það.

Á leiðinni á Sólon, sá ég Kamil. Ég stoppaði á ljósunum og hljóp yfir til hans, svo pabbi gæti farið heim að sofa. Kamil, Kristín og Danni voru í bílnum. Ég hoppaði aftur í og við brunuðum á Sólon.

Þegar við komum á Sólon, fórum við bara upp á efri hæðina. Þegar ég kom þarna upp, sátu allir í hring þarna við borð. Ég stóð bara þarna eins og asni og sá ekkert pláss við borðið. Svo lít ég í kringum mig og sé Hildi, vinkonu mína, sitja þarna með vinkonum sínum. Ég fer til hennar og heilsa henni. Hún býður mér þá að setjast hjá sér og gerði ég það. Hún bauð mér svo upp á bjór og svona. Geðveikt næs. Takk, Hildur.

Stuttu síðar fóru Kamil, Danni og Kristín. Ég sat bara þarna hjá Hildi og vinkonum hennar. Þær voru víst að kveðja vinkonu sína, sem er að fara að flytja til útlanda, þannig þetta var svona einskonar kveðjupartý.

Svo allt í einu koma Helgi, Grétar, Gummi og Jökull að mér og segjast vera að fara. Klukkan var þá hálf 1. Ég var búinn að vera þarna í hálftíma og ekki einu sinni búinn með bjórinn sem Hildur gaf mér. Ég varð brjálaður! Ég held ég hafi ekki orðið svona reiður í langan tíma.

Ég var búinn að vera að vinna allan helvítis daginn og kvöldið, og skrapp á Sólon til þess að slappa aðeins af og fá mér bjór, en nei nei, þá er bara komið til manns...

Þeir: Gaui, við erum að fara.
Ég: Fara strax? Ég er ekki einu sinni búinn að vera hérna í hálftíma þegar þið eruð að fara?
Þeir: Já, við erum samt að fara. Ef þú vilt far, kemuru núna.

Þetta kveikti gjörsamlega í mér. Ég átti í vandræðum með að redda mér niður í bæ, og svo bara fara þeir strax. Þetta gerði mig gjörsamlega brjálaðan, en ég er orðinn rólegur núna, sem betur fer. Svo fórum við bara heim. Æðislegt kvöld.

En svo nú í dag fór ég upp á strætóskýli og beið eftir rútunni. Þá var ég bara búinn að missa af henni! Ég hringdi í Sjalla og bað hann um að biðja rútubílstjórann um að sækja mig, og gerði hann það. Hehe, heppinn ég.

Svo í dag var ekki gert margt. Við þrifum bara skúrana, öll verkfærin og gerðum allt eins og það var þegar við komum fyrsta daginn. Þetta var nefnilega síðasti dagurinn þarna í Hestabrekkum. Svo lögðumst við bara í grasið og sleiktum sólina. Dagurinn var enga stund að líða, þar sem ég steinrotaðist, og vaknaði kl 2, rétt áður en rútan kom. Við fórum bara inn og spiluðum snilldar spil sem heitir Forseti, og endaði ég sem Vara-Forseti. Við kölluðum þetta heimsmeistarakeppnina í Forseta, þar sem þetta var síðasta spilið okkar.

Ég skrifaði ágætis grein um hvernig eigi að spila Forseta hérna.

Við liggjandi í grasinu. Frá vinstri: Ríkey, Sandra, Hanna, Agla og Sjalli. Ég var auðvitað að taka myndina.


En svo var ég bara að koma heim áðan. Fékk frekar leiðinlegt símtal frá Valdísi, rekstrarstjóra í Bónus Video, áðan, þar sem hún var að skamma mig og Andra, fyrir að skila öllu í gær í drasli. Svona er þegar dagvaktin tekur ekki til eftir sig. En ég nenni ekki að þræta um þetta. Ég útskýrði bara fyrir henni af hverju við hefðum gert allt svona illa, og tók hún vel í það, held ég.

En já, núna ætla ég bara að skella mér í bað og svona og slappa aðeins af. Svo er víst grill hjá Jökli í kvöld, þannig maður verður að fara út í búð og kaupa eitthvað á grillið. En ég ætla nú bara að fara snemma að sofa í kvöld, þar sem ég er að fara að vinna eldsnemma kl 10 í fyrramálið í Bónus Video. Yay! Krakkar, 50% afsláttur af namminu, ís, ofl. En það sem bætir það upp er það að ég er að vinna með sætri skemmtilegri stelpu sem heitir Anna, sem er víst eldri systir Hönnu, sem var í vinnu hjá mér. Það verður vonandi gaman.

En segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():