Deila á Facebook
« Sumarið er tíminn | Aðalsíða | Helgin - Gat í augabrúnina? »

Fyllerí, vinna, ofl.
Skrifað laugard. 22. júlí 2006 - 20:21
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, ég held það sé kominn tími á annað blogg. Síðan mín er víst búin að vera niðri í allan dag, þannig þið eruð búin að vera laus við mig í allan dag. Heppin! Eða óheppin?

Allavega, gærkvöldið endaði í of miklu rugli. Ég ætlaði að fá mér 1-2 bjóra, þar sem ég var að fara að vinna snemma um morguninn. En það endaði auðvitað með því að ég varð sauðdrukkinn.

Kamil og Danni byrjuðu á því að koma til mín. Við byrjuðum bara að drekka heima hjá mér, svo komu Grétar, Helgi og Gummi. Þeir voru í partýi hjá Jökli, en ég komst ekki þangað, þar sem það er einhver rígur á milli Kamils og Jökuls. Ég fer ekki nánar út í það, en þeim er allavega illa við hvort annað, þó Kamil vilji bæta fyrir það, en Jökull ekki.

Svo seinna um kvöldið kom Daniel, pólskur vinur Kamils, og skutlaði honum og Danna niður í bæ. Ég fór með Heiðu, Önnu Björt og Kristínu, þar sem Kristín þurfti eitthvað að tala við mig. Svo komum við niður í bæ og fórum inn á Sólon. Ég reddaði stelpunum inn og svo settumst við þarna og slöppuðum af.

Svo er allt í hálfgerðri þoku, þar sem ég drakk svo mikið. Ég fékk mér nokkra áður en ég fór í bæinn, svo fékk ég frían bjór fyrir að vera fyrstur á dansgólfið, svo buðu Kamil og Eygló mér upp á helling af bjórum og skotum. Algjört rugl hvað ég var fullur, en þetta var samt gaman! Ég hitti svo fólkið á dansgólfinu; Ívar, Hjalta, Palla, Lóu, ofl. Ég man líka að ég tók dans við Eygló og Ernu, sem er að vinna þarna með Eygló. Geðveikt gaman!

Ég fór heim klukkan 3, þar sem ég lofaði Önnu Björt að fara klukkan 3 heim, en ekki 2 eins og ég var búinn að segja. Svo fórum við bara öll heim, en auðvitað var komið við á Subway fyrst. Danni gisti hjá mér svo hann gæti skutlað mér í vinnuna í morgun.

Við Danni vöknuðum ógeðslegir í morgun! Ég vaknaði og var held ég ennþá fullur þegar ég var kominn í vinnuna. En dagurinn var fínn, þar sem ég var að vinna með ógeðslega sætri og skemmtilegru stelpu. Hún er víst eldri systir stelpu sem ég var yfir í unglingavinnunni, og heitir því fallega nafni Anna. Ég bauð henni í partý í kvöld, þannig í kvöld ætlar hún að koma með mér í bæinn. Djöfull hlakka ég til!

En núna í kvöld er djammið stefnan. Ég er núna að fara að taka mig til og skella mér svo til Jökuls, þar sem við ætlum að byrja að drekka og elda aspas brauðrétt! Anna er að vinna til 11 í kvöld en kemur strax eftir það. Svo förum við örugglega í bæinn um 12-1. Þetta á eftir að verða frábært kvöld. Ég finn það á mér!!!

En um daginn vorum við fólkið á Sólon. Grétar var að lesa eitthvað blað þarna og rakst á matardagskrá hermanna fyrir alla vikuna. Þetta hét eitthvað "Eat Like a Soldier", þannig ég tók mynd af því og var að enda núna við að skrifa þetta upp í Excel og skella á netið. Þið getið fundið þetta hér, ef þið viljið borða það sama og hermenn.

En segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():