Deila á Facebook
« Fyllerí, vinna, ofl. | Aðalsíða | Gat í augabrúninni - Álit »

Helgin - Gat í augabrúnina?
Skrifað mánud. 24. júlí 2006 - 17:02
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, ætli það sé ekki kominn tími á blogg. Maður hefur svo lítinn tíma til að blogga, þar sem maður fer á kaffihús með vinunum og svo kemur maður heim og þá þarf maður að fara beint að sofa til að vakna eldsnemma í vinnuna. Brjááálað að gera!

En já, á laugardaginn vaknaði ég grútþunnur og fór og opnaði sjoppuna. Ég var að vinna með Önnu Siggu allan daginn, en hún mætti 12 en ég opnaði kl 10. Dagurinn var fínn og er alveg frábært að vinna með henni. Svo þegar leið á daginn bauð ég henni á djammið um kvöldið og þáði hún að sjálfsögðu það boð.

Um kvöldið hittumst við bara heima hjá Jökli. Ég, Grétar, Jökull, Danni, Helgi, Gummi, Jónas, Halli vinur Jónasar og Anna Björt voru þarna. Þetta var geðveikt gaman. Svo kom Anna Sigga til okkar eftir vinnu. Hún var að vinna allan daginn og allt kvöldið. Crazy dugleg! Hún átti bágt með að finna húsið, þar sem hún var komin á einhvern leikvöll, en það var enginn leikvöllur rétt hjá Jökli. Ég labbaði þá bara á móti henni.

Svo þegar ég hitti hana ætluðum við að ná í bjórinn hennar heima hjá mér, en ég gleymdi auðvitað lyklunum heima hjá Jökli, þannig við röltum þangað og svo aftur heim til mín að sækja bjórinn hennar. Svo röltum við bara aftur til Jökuls.

Þegar við komum var fólkið í drykkjuspili. Við slepptum því að vera með, þannig við vorum bara þarna að spjalla saman. Svo byrjaði fólk að syngja og svona og missti ég auðvitað röddina við helvítis viðlagið okkar, sem strákarnir sömdu fyrir vestan fyrir nokkrum vikum. Svona er að hækka um of margar tóntegundir.

En já, þetta kvöld var geðveikt. Seinna um kvöldið fór ég með Önnu Siggu, Jónasi og Halla í taxa. Við stoppuðum bara hjá Hlemmi og röltum þaðan á Sólon. Fínn göngutúr. Á miðri leið fattaði ég að síminn minn væri ekki í vasanum, og hélt að ég hefði týnt honum einhverstaðar á leiðinni. Ég elska símann minn! En svo kom seinna í ljós að ég hefði bara misst hann úr vasanum heima hjá Jökli. Guð hvað ég var feginn!

Þegar við komum á Sólon, var bara stanslaust drukkið. Á tímabili var ég farinn að grátbiðja Eygló um að gefa mér ekki meira, en hún kom stanslaust með drykki handa mér og Önnu Siggu. Maður var orðinn svo ógeðslega ölvaður, en Anna Sigga bara drakk og drakk meira. Ótrúlegt áfengisþol sem hún hefur! Hún "reykir" líka mikið á djamminu. Hún reykti meira en ég þarna um kvöldið og var alltaf að biðja mig um sígó. Kláraði m.a.s. pakkann minn!

Svo fórum við bara upp á dansgólfið. Ég var nú bara með Önnu þar, enda segja flestir að við höfum ekki getað slitið okkur frá hvort öðru. Við vorum m.a.s. það innileg að fólk var byrjað að segja okkur að fá okkur herbergi.

En svo í lok kvöldsins, vorum við svo sveitt að við hlupum nánast út. Danni og Ingvar fóru og spjölluðu við lögguna sem var að rúnta laugarveginn, og báðu þeir hana um að fá að blása. Þeir mældust báðir 0,0 þó þeir hafi báðir verið að drekka - og það ekkert lítið. Tækið hjá löggunni var pottþétt bilað, ekki spurning! En Danni fór eftir tækinu og keyrði heim.

Svo skutlaði Danni Ingvari bara heim, svo mér og svo Önnu Siggu. Hún var að fara á Djúpavog með fjölskyldunni sinni daginn eftir, þannig hún þurfti að fara beina leið heim. En já, þetta var geggjað gaman!

Svo núna í gær á sunnudaginn fór ég með Jökli, Eygló, Önju og Söndru á Vegamót. Þau fengu sér að borða þar en ég sleppti því, þar sem ég var nýbúinn að borða tvær Chicago Town pizzur. Jökull var líka nýbúinn að borða, en hann fékk sér samt hamborgara og franskar þarna. Feiti gaur!

Svo vorum við bara þarna í dágóðan tíma. Við Jökull fengum okkur bjór og Eygló eitt rauðvínsglas, og svo skruppum við á Sólon. Þar fékk ég mér tvo bjóra og Eygló annað rauðvínsglas.

Svo eftir það fórum við að hitta strákana; Grétar, Helga og Gumma. Þeir voru hressir að fá sér að borða á Esso í Ártúnsbrekku. Þeir voru fyrr um kvöldið að tjalda tjaldinu sem þeir ætla að taka með í veiðiferðina, sem er næstu helgi. Á Esso vorum við bara eitthvað að tala um veiðiferðina, hverjir ætla og svona. Kom í ljós að Eygló, Anja og Jökull ætla ekki að fara, en ég ætla að fara. Ég var búinn að segjast ætla ekki að fara út af peningaleysi, en Grétar talaði við mig og sagði mig vera að svíkja loforð ef ég myndi ekki fara, þannig ég vil ekki svíkja loforð og hef því ákveðið að fara!

En jááá, nú í dag var ég á nýja vinnustaðnum. Bless bless, Hestabrekkur, og hæ hæ, Grafarvogur. Ég var í Rimaskóla, þar sem Eygló er, en hún hringdi sig inn veika í dag, þannig ég var bara einn þarna með helling af leiðbeinendum sem ég þekki ekkert. Sjalli var líka veikur, þannig ég var bara einn þarna. Þetta var fínt. Við vorum dugleg að vinna og svo fórum við bara í leiki.

Ég hringdi í Maju, yfirleiðbeinanda í Grafarvoginum, og spurði hana hvort ég mætti vera í Víkurskóla hjá Jökli, og svaraði hún játandi. Ég lofaði henni líka að vera geðveikt duglegur. Ví ví ví! Þannig á morgun og framvegis verð ég með Jökli í Víkurskóla!

En núna er ég að fara með Jökli, Eygló og Grétari í Tattoo&Skart og erum við að fara að fá okkur göt. Ég ætla að fá mér gat í augabrúnina. Grétar ætlar líka að fá sér gat í augabrúnina. Jökull ætlar ekki að fá sér neitt, þó hann væri heví svalur með svoleiðis. Svo ætlar Eygló kannski að fá sér gat í tunguna, en hún þorir því ekki. En við sjáum til hvað gerist. Ég segi ykkur meira frá því síðar.

Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():