Jafnaðarkaup hvað?
Skrifað mánud. 31. júlí 2006 - 01:25Ég var að lesa Fréttablaðið áðan og rakst í frekar skemmtilega grein þar varðandi brot hjá Bónus Video á starfsmönnum sínum, með því að borga jafnaðarkaup, sem var afnumið árið 2004. Lesið þetta!
Þetta finnst mér alveg frábært að lesa. Loksins komnar sannanir fyrir því að það hafi verið að svindla á manni þarna.
En frábær grein. Bravó, bravó! Hvað finnst ykkur?
Ekkert til í kjarasamningum sem heitir jafnaðarkaup
Fyrrverandi starfsmenn Bónusvídeó í Spönginni segjast hafa fengið jafnaðarkaup fyrir kvöld- og helgarvinnu. Launaseðlar innihéldu ófullnægjandi upplýsingar. Framkvæmdastjóri Bónusvídeó segir stefnu fyrirtækisins að greiða laun samkvæmt kjarasamningum. VR segir að fólk verði að fara vel yfir launaseðla.
Dæmi eru um að ungt fólk sem vinnur í kvöld- og helgarvinnu fái greitt svokallað jafnaðarkaup og fái þannig ekki þau laun sem það á rétt á samkvæmt kjarasamningum. Þrír fyrrum starfsmenn Bónusvídeó í Spönginni hafa staðfest við Fréttablaðið að greiðslur hafi verið með þessum hætti hjá leigunni.
"Launamál heyra undir hverja leigu fyrir sig. Hins vegar munum við skoða þau ef í ljós kemur að brotið sé á starfsmönnum", segir Þorvaldur Þorláksson, framkvæmdastjóri Bónusvídeó-keðjunnar. Hann segir að það sé stefna Bónusvídeó að greiða laun samkvæmd gildandi kjarasamningum hverju sinni.
Núverandi rekstraraðili Bónusvídeó í Spönginni, sem tók við fyrir um mánuði, hvorki játaði né neitaði að brotið hefði verið á starfsmönnum en vildi ekki tjá sig frekar um málið.
Fréttablaðið hefur undir höndum launaseðil frá einum starfsmannanna en á hann vantar upplýsingar um tímakaup og vinnustundafjölda. Launagreiðendum ber að láta þessar upplýsingar koma fram á launaseðlum. Þannig getur starfsfólk sjálft fylgst með að ekki sé verið að brjóta á því. Það er hins vegar erfitt þegar upplýsingar vantar á launaseðilinn, eins og er í þessu tilfelli.
"Þegar fólk er að vinna um kvöld og helgar er öll hætta á að jafnaðarkaupið sé komið undir lágmarkskjör. Fólk verður því að gæta þess að fara vel yfir launaseðlana sína um hver mánaðarmót", segir Snorri Kristjánsson hjá kjarasviði VR.
Ekkert er til í kjarasamningum sem heitir jafnaðarkaup, en það var endanlega afnumið árið 2004. Hins vegar hafa einhver fyrirtæki haldið sig við það og þá samið við starfsmenn sína.
Snorri segir að fólk verði að gæta að því að jafnaðarkaupið sé að lágmarki yfir þeim töxtum sem kjarasamningar segja til um. Ef svo er ekki eigi fólk að gera athugasemdir, annað hvort við vinnuveitendur sína eða hafa samband við stéttarfélög.
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- hnefill@frettabladid.is

Athugasemdir (