Deila á Facebook
« Jafnaðarkaup hvað? | Aðalsíða | Fallinn »

Veiðiferðin mikla - Ferðasaga
Skrifað mánud. 31. júlí 2006 - 02:58
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, elskurnar, er ekki kominn tími til að skrifa aðeins um þessa blessuðu veiðiferð okkar strákanna? Þetta var snilldar ferð út í eitt. Ekkert skemmtilegra en að vera með vinum sínum, drekkandi bjór og veiða, þó það hafi nú ekki verið gert mikið af því. Mest drukkið bjór. En allavega, hér kemur ferðasöguritgerðin.

Strákarnir allir saman, nema ég, þar sem ég tók myndina. Andri, Helgi, Gummi, Halli, Grétar og Jónas eiturferskir í Hyrnunni í Borgarnesi. Takið eftir því að Helgi, Gummi og Halli eru allir hlið við hlið með Ray-Ban á sama stað.


Á föstudeginum byrjaði ég bara á því að mæta í vinnuna. Var búinn sirka hálf 4. Ég og Eygló röltum yfir til Jökuls, sem var akkúrat búinn á sama tíma og við vorum komin til hans. Við skruppum í ríkið og keyptum bjór fyrir helgina. Ég keypti nú bara 2 kippur, sem voru feit mistök! Ég kaupi næst kassa!

En allavega, eftir að við vorum búin í ríkinu, skutlaði Jökull bara mér og Eygló heim. Svo kom Grétar og við fórum að versla inn fyrir ferðina. Ég, Grétar og Jónas fórum og sóttum Gumma í vinnuna og fórum svo í Smáralindina, í Nóatún kjötborðið, þar sem bróðir Gumma, hann Gaui, er að vinna. Gaui reddaði okkur Nautalund (2,5 kg) á einhvern skitinn 4600 kall, sem var bara mesta snilld í heimi. Þetta er víst dýrasti parturinn á nautinu. En svo skruppum við bara í Nóatún sjálft og versluðum brauð, álegg, ofl. fyrir ferðina. Skruppum svo í ríkið og strákarnir keyptu bjór, þar sem ég var búinn.

Svo skutluðum við Gumma bara aftur í vinnuna og við fórum bara heim. Ég skrapp í sturtu og svona og pakkaði öllu niður í töskur. Það var sko nóg af drasli sem ég tók með mér. Ég var svo lengi að taka mig til að Grétar og Jónas þurftu að taka bensín áður en þeir gátu sótt mig. En svo komu þeir loksins. Ég, Grétar og Jónas vorum á bíl foreldra Jónasar; Avensis Station 2004, en Helgi, Gummi, Andri og Halli voru á Nissan Primerunni hans Gumma. Jónas keyrði hjá okkur, en Helgi keyrði hjá hinum.

Við skruppum upp á Shell Vesturlandsvegi, fengum okkur að borða á Skalla og Helgi og þeir fylltu bílinn af bensíni. Svo lenti Helgi í því að fimmtugur karl gaf honum puttann þegar hann var að bakka að dælunni. Ég veit ekki af hverju, en þetta pirraði Helga geðveikt og fór hann inn þegar maðurinn var að borða með konu sinni og börnum, og spurði hann af hverju hann hefði gefið sér puttann. Gaurinn baðst þá bara fyrirgefningar og viðurkenndi að það hefði verið rangt að gera þetta, sérstaklega fyrir framan börnin. En allavega, ég vil halda það að þetta hafi verið út af því að ég og Grétar stóðum bakvið Helga þegar Helgi talaði við hann. Ég og Grétar erum náttúrulega ekki lítið ógnvænlegir gaurar.

En svo var brunað af stað. Ferðin tók sirka 5 tíma, þar sem það var svolítið stoppað á leiðinni. Við stoppuðum meðal annars á stað, sem ég veit ekki neitt hvað heitir, og strákarnir tóku meira bensín, svo þeir myndu komast aftur til baka. Þar var tekið upp bjórpípuna (e. beer-bong) og tóku Gummi og Grétar sitthvoran bjórinn í henni. Gummi fékk auðvitað að afmeyja bjórpípuna, þar sem hann reddaði efninu í hana og bjó hana til. Gummi, þú ert snillingur!

En svo var bara keyrt áfram. Svo þegar við vorum alveg að koma, þurftum við að keyra leiðinlegasta veg sem ég hef á ævi minni keyrt. Hann voru rúmir 6 km og það voru hálf metra steinar sem stóðu bara upp úr jörðinni og voru vel tilbúnir til að rústa olíupönnum ofl. Stórhættulegt, enda keyrði Jónas hann á 10 km hraða. Tók svona hálftíma að keyra þennan leiðinlega veg.

Þegar við komum á staðinn, var bara byrjað á því að heilsa foreldrum Helga, sem voru í sumarbústaðnum sínum þarna. Svo var bara farið beint út að tjalda. Ég og Jónas tjölduðum tjaldinu hans Odds, bróðir Grétars, á meðan Helgi, Gummi og Grétar tjölduðu þessu geðsjúka partýtjaldi. Svo reyndi Andri að tjalda tjaldinu hans Helga, en það tókst misvel.

Svo var bara byrjað að þamba. Ég og Halli náðum í sófa, sem var þarna úti, og settum inn í partýtjaldið. Fólk gat setið í sófa þarna inni, sem var algjör snilld!

Svo man ég ekki mikið meira eftir föstudagskvöldinu, annað en það að það var drukkið mikið og svo var bara farið að sofa. Þetta var frábært kvöld, enda sést það á myndunum.

Á laugardaginn var ég vakinn kl hálf 12. Við fórum að sofa svona 6, og lofaði Helgi mér að vekja mig kl hálf 2, en hann vakti okkur kl hálf 12. Helvítis lygari! Ég var svolítið lengi á fætur, þar sem ég var svo ógeðslega þunnur, en ég náði svo loks að koma mér á lappir.

Við fórum og tókum veiðidraslið saman og lögðum svo af stað. Við þurftum að keyra þennan 6 km leiðinlega veg aftur og svo lengra. Við enduðum á því að þurfa að fara einhvern annan leiðinlegan slóða, sem var bara fyrir jeppa, en okkur tókst þetta, þó það hafi verið mikið rekið upp undir bílinn.

Svo kom að mestu reddingu sem um getur, og var það að það koma svona niður í jörðinni, og þurftum við að hlaða steinum þarna svo við gætum komist á bílunum yfir. Það tókst, þó Jónas hafi rekið svuntuna á bílnum í, en það var nú bara út af því að hann hlýddi mér ekki og fór HÆGT. En allavega, þetta reddaðist og allir heilir á húfi.

Svo var bara byrjað að veiða. Gummi, Andri, Helgi og Grétar voru þeir einu sem nenntu að veiða. Ég, Jónas og Halli vorum ekki að nenna að veiða, þannig við slepptum því bara. Ég hefði nennt því hefði ekki verið svona ógeðslega langt að labba á þennan stað, og líka ef það hefðu ekki verið svona margir geitungar þarna. Shiiit, það var krökt af geitungum þarna. Við þurftum að vera með flugnanet, sem Grétar kom með, á okkur svo geitungarnir væru ekki að angra okkur í framan.

Svo kom að því að Helgi þurfti að sýna listir sínar og færa sig um stað. Þetta var svona 2 km ganga yfir tré og á örþunnum steinum meðfram ánni. Við eltum þá auðvitað, en svo eftir þessa rosa göngu, þurftum við að komast yfir ánna. Það komust allir yfir, nema ég, þar sem ég vildi ekki taka neina áhættu á því að missa myndavélina hans pabba í ánna og bleyta hana. ég og Gummi vorum þeir einu sem vorum ekki í stígvélum, enda reddaði Grétar þessu og hélt á Gumma yfir ánna. Það var snilld! Djöfull hefði verið fyndið hefði Grétar dottið með greyið Gumma!

En svo eftir smá bið þarna á hinum bakkanum, nennti ég ekki að vera þarna, þar sem ég var ekki að fara yfir, og það var ekkert skemmtilegt þarna einn. Ég labbaði þá bara til baka að bílnum. Ég labbaði fyrst aðeins að hinum veiðistaðnum, sem við vorum fyrst á, til þess að sækja allt draslið mitt, og svo labbaði ég að bílnum. En þegar ég kom að bílnum voru bílarnir læstir! Ég varð frekar reiður, en róaðist fljótt og lagði mig þarna hliðiná bílunum. Geitungarnir og mýflugurnar alveg að gera mig vitlausan, en ég setti bara flugnanetið á mig og þá var það vandamál úr sögunni. Svo eftir 1-2 tíma komu strákarnir loksins.

Helgi veiddi 5 fiska, en Grétar bara 1. Ég veit ekki alveg af hverju Gummi og Andri veiddu ekki neitt, en það er líklegast út af því að þeir kunna ekki að veiða. Segi svona.

En já, svo var bara farið til baka. Ég, Grétar og Jónas lögðum okkur fyrir matinn á meðan Helgi og þeir voru að grilla. Svo þegar komið var að matnum, hljóp Jónas strax af stað, en honum tókst ekki að vekja mig og Grétar. Svo vaknaði ég, reyndi að vekja Grétar, en árangurslaust. Þá rölti ég bara inn til strákanna að borða. Við fengum 2 bita á mann, sem var alveg fínt. Svo gaf Halli mér auka bita, þar sem hann var orðinn saddur, greyið.

Á meðan Grétar svaf úti í tjaldi, kláruðum við að borða og nenntum ekki að ganga frá. Við fórum bara út í partýtjald og fórum að þamba og syngja. Ég man að ég stóð upp til að pissa, en svo þegar ég kom til baka, var sætið mitt í sófanum horfið, og þurfti ég að sitja í einhverjum útileigustól. Þorvaldur, pabbi Helga, hafði víst komið og ákveðið að kíkja á okkur.

En það sem bjargaði ferðinni gjörsamlega, var þessi snilldar bjórpípa, sem Gummi bjó til. Algjör snilld! Ég tók m.a.s. video af Helga vera að taka 2 bjóra á innan við 8 sekúndum. Takmarkið var sko á innan við 10 sekúndum. Ótrúlegur þessi gaur!

Svo seinna um kvöldið var ákveðið að fara inn í sumarbústað. Ég veit ekki alveg af hverju, en við gerðum það allavega. Þar var sungið og haft gaman, og var þetta alls ekki ólíkt partýtjaldinu.

En svo kom að því að fólk var byrjað að þykjast geta allt og það var farið að fíflast. Byrjað var að fara í sjómann. Svona fór það...

Ég vs. Grétar = Grétar
Grétar vs. Helgi = Grétar
Ég vs. Helgi = Jafnt
Helgi vs. Andri = Jafnt
Ég vs. Andri = Jafnt
Helgi vs. Bjarni = Bjarni
Allir vs. pabbi Helga = Pabbi Helga (m/svindli)


Það var ekki nóg með þennan helvítis sjómann, heldur var skorað á alla í groundfight. Það þýðir að maður eigi að berjast í jörðinni, með allskyns brögðum og lásum. Ég man ekki alveg hvernig þetta var, en þetta var eitthvað svona...

Ég vs. Helgi = Helgi
Helgi vs. Andri = Helgi
Halli vs. Helgi = Halli
Ég vs. Grétar = Grétar
Helgi vs. Bjarni = Bjarni

Þetta var náttúrulega ekki alveg sanngjarnt, þar sem Halli æfir Tae Kwon Do og Bjarni æfði Judo fyrir nokkrum árum. En þetta var samt sem áður gaman, en það er augljóst að ég þarf aðeins að herða mig í sjómanninum svo ég geti nú unnið einhvern sjómann eða groundfight næst. Ég held ég þurfi nú að hætta að reykja svo ég geti unnið groundfight, þar sem þetta snýst ekki bara út á styrk, heldur þol og tækni líka.

En allavega, eftir þetta voru margir hverjir orðnir frekar hífaðir, þannig það var ákveðið að slappa aðeins af eftir ruglið og svo var farið í gönguferð niður við fjöruna. Þetta var nú ekki beint skemmtilegasta ganga sem ég hef farið í, þar sem Grétar drapst í fjörunni. Hann drapst bókstaflega í fjörunni, í þaranum og ógeðinu þarna. Það var frekar fyndið fyrst, en svo þegar hann var ekki að grínast með þetta, fór að færast alvara í leikinn. Helgi labbaði til baka og sótti Subaru Legacy og kom og sótti Grétar, greyið. Svo fórum við til baka á bílnum, hentum Grétari í sófann í partýtjaldinu og fórum svo sjálfir að sofa. Grétar hótaði mörgum sinnum að ætla að standa upp og lemja mig fyrir að taka myndir af sér. Hahaha, það var fyndið.

Svo á sunnudeginum var bara tekið saman allt draslið og farið heim. Við stoppuðum í Hyrnunni í Borgarnesi og fengum okkur að borða. Svo var bara brunað beina leið heim.

Þetta var geðveik ferð. Hefði engan veginn viljað missa af þessari snilld. Ég vil bara þakka Grétari, Jónasi, Helga, Gumma, Halla og Andra, kærlega fyrir mig og vonandi eigum við eftir að endurtaka eitthvað svona fljótt aftur.

En þar með lýkur þessari doktorsritgerð minni og ætla ég bara að segja þetta ágætt í bili, þar sem klukkan er orðin allt of margt, og ég þarf að mæta í vinnuna snemma á morgun. Ég hendi inn myndum úr ferðinni á morgun.

Myndirnar úr ferðinni má finna hérna.




Athugasemdir ():