Deila á Facebook
« ATH! Tenerife-farar, takið eftir! | Aðalsíða | Það er loksins komið að því! »

Verslunarmannahelgin
Skrifað mánud. 7. ágúst 2006 - 19:43
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Það sem ég gerði ólíkt því sem ég hef gert sl. Verslunarmannahelgar, var það að ég var eftir í bænum í þetta sinn.

Ég er búinn að djamma eiginlega á hverjum einasta degi stanslaust í allt sumar núna, og ég er eiginlega kominn með þessa djamm-þreytu. En þörfin og löngunin til að djamma vaknar örugglega aftur þegar ég er kominn út í hitann á Tenerife.

En já, helgin var ágæt, þó ég hafi nú alveg upplifað skemmtilegri Verslunarmannahelgar. Ég ætlaði fyrst til Vestmannaeyja, en ég hætti við, þar sem mér finnst of mikið að djamma í Eyjum og fara svo strax til Tenerife og djamma þar. Einnig kostar svo mikið að fara til Eyja, þannig ég ákvað að vera skynsamur og eyða frekar peningunum úti á Tenerife.

Það fyndna er það að Grétar fór til Eyja á miðvikudaginn og kom svo heim á laugardaginn. Honum var bara kalt, greyinu, þannig hann ákvað bara að fara með Herjólfi til baka. Sniðugur.

Á föstudaginn fór ég bara á Sólon með Önnu Siggu, Jökli og Danna. Það var geðveikt gaman, og endaði það með því að Danni fór að skutla Jökli heim, þar sem Jökull var orðinn ofurölvi. En svo kom Danni aftur og náði í mig og Önnu Siggu. Fínt kvöld.

Á laugardaginn fór ég með Grétari og Jökli heim til Hildar. Kelli var þarna hjá henni, og vorum við bara að horfa á DVD diska með Elton John, Queen, ofl. og drekkandi bjór. Það var algjör snilld! Svo fórum við bara á Sólon of course. Hehehe, mesta snilldin við kvöldið var þegar ég var að rugla í fólki á laugarveginum með því að öskra á það. Djöfulsins steik!

En gærkvöldið var það ömurlegasta um Verslunarmannahelgina. Ég bjóst nú ekki við því, þar sem það er mánudagur í dag og í dag er frídagur verslunarmanna, og fyrir þann dag er djammað, en það var voða lítið að gerast í bænum í gær.

Við byrjuðum á því að hittast bara heima hjá Jökli; ég, Grétar og Jökull. Ég og Grétar vorum bara að drekka og Jökull var bara edrú. Svo seinna um kvöldið urðum við Jökull svo svangir, þannig við ætluðum að panta pizzu á Domino's, en það var lokað! Þannig við fórum bara á Hróa Hött og sóttum pizzu. Fórum svo bara aftur heim til Jökuls, borðuðum pizzuna og drifum okkur svo niður í bæ.

Við byrjuðum á Esso planinu. Hittum Jóa Depp, vin hans og einhverjar tvær vinkonur þeirra. Jói var þokkalega hress á því. Svo fórum við bara á Sólon. Ég man að Óli Jón, fyrrum bekkjarbróðir minn, hringdi í mig um kvöldið og bað mig um að redda sér inn. Greyið hafði gleymt skilríkinu sínu heima. Ég fór út, talaði við Sigga og reddaði honum inn.

Svo fórum við bara upp á dansgólfið. Rikki G og Heiðar Austmann, sem voru að spila þarna um kvöldið, voru ekki alveg að standa sig í músíkinni. Þessi músík minnti mig á þegar ég var í 9. bekk. Gjörsamlega glatað! Einnig voru svo mikið af smákrökkum þarna að þetta var eiginlega bara ömurlegt.

Ég og Grétar röltum eitthvað annað. Fórum inn á Dubliners, en það var bara í hina áttina á móti Sólon, þ.e. allt of gamalt fólk, þannig við röltum á Glaumbar. Það er náttúrulega bara nýi Opus, þannig við gátum ekki verið lengi þar. Svo fórum við bara aftur á Sólon, en þá var búið að loka. Siggi hleypti mér aðeins inn til þess að tala við Eygló. Ég ætlaði að spyrja hana hvort ég og Grétar mættum fá far með henni, en hún var að fara að djamma eftir vinnu, þannig ég og Grétar vorum bara strandaðir. Jökull var farinn, en hann kom svo aftur og skutlaði okkur heim.

Leiðinlegt en ég lenti í einhverjum útistöðum við Óla, félaga minn. Ég misheyrði eitthvað sem hann spurði mig að og svaraði játandi, þannig hann varð alveg fokvondur, fór að ýta mér og fór að gera sig líklegan til þess að lemja mig. Ég róaði hann bara niður og útskýrði fyrir honum að ég hefði misheyrt hvað hann hafði sagt. Það tók nú lengri tíma en ég hélt að róa hann, þar sem hann varð frekar fúll þegar ég svaraði já við þessari spurningu sem ég veit ekkert hvað varðaði.

Þetta var ömurlegt kvöld. Ég fór edrú niður í bæ, byrjaði að sturta í mig á Sólon, en ekkert gekk! Ég varð bara ekki fullur, og endaði með því að ég var bara edrú þegar ég fór heim. Frekar ömurlegt!

En mesta snilldin í gærkvöldi var þegar Eygló krotaði "www.gaui.is" á auglýsinga-töfluna þarna á Sólon. Algjör snilld!


Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():