Veturinn er ekki vinur minn
Skrifað mánud. 14. nóvember 2005 - 11:01Núna í morgun vaknaði ég kl 7:40, fékk mér morgunmat, burstaði tennurnar og klæddi mig.
Svo þegar ég ætlaði að starta bílnum mínum með þessu yndislega fjarstarti, fer hann ekki í gang! Ég er vanur að kveikja á bílnum 10 mín áður en ég fer af stað, bara svo að hann hitni og bræði allt frost af rúðunum. Maður er svo latur við að skafa.
Ég allavega reyni að starta honum en nei nei, er hann ekki bara rafmagnslaus! Ég var að kaupa glænýjan rafgeymi fyrir sirka mánuði síðan! Ég ætla að fara að opna bílinn svo ég geti opnað húddað en nei nei, er þá ekki bara hurðin frosin föst! Ég tjúllast og geri allskonar trikk til að fá hurðina til að opnast. Loksins gefur hún undan og ég kemst inn í bílinn, þá opna ég húddið og fæ pabba til að gefa mér start. Svo þegar bíllinn er loksins kominn í gang, þá þarf ég að skafa af öllum rúðum og þetta allt tók mig svona 10-15 min!
Ég sem sagt legg af stað í skólann kl 8:10, einmitt þegar tíminn á að byrja! Djöfull er ég ekki sáttur með svona. Nýbúinn að kaupa rafgeymi og hann er strax kominn í gamla farið, að vera rafmagnslaus! Ég fer niður í SKORRA á eftir og helli mér yfir þá! Ég læt þetta ekki við gangast. Ég fékk seint í Íslensku fyrir vikið.
Núna sit ég bara hérna í makindum mínum í STÆ313 (Excel) og er bara að dæla reiði minni og pirring í skrifum mínum.
Eftir skóla, fer ég beint heim og fer að vinna í vefsíðu fyrir kunningja minn sem ég hef ekki getað gert handtak í, í heila viku, vegna anna hjá mér! Alveg yndislegt þegar það er svona mikið að gera hjá manni að maður getur varla gert neitt.
Ég er að fara eftir skóla með Grétari og negla niður dagsetningu og stað fyrir afmælið okkar. Þetta er allt ákveðið. Boðsmiðarnir verða sendir út í dag og vonandi að allt gangi sinn gang.
Núna er ég bara að fara að reykja, skelli mér svo í ensku, fer svo heim í tveggja tíma gat, fer svo í Þýsku og svo fer ég að útrétta með Grétari. Eftir það verður bara unnið hörðum höndum í vefsíðunni.
En já, skemmtilegt hvað veturinn byrjar vel.
Héðan í frá verður maður aðeins fyrr á ferðinni, ef eitthvað svona gerist aftur. 
Endir á pirringsbloggi.

Athugasemdir (