Nasa í kvöld?
Skrifað föstud. 1. september 2006 - 19:20Jæja, elskurnar. Ég held það sé nú kominn tími á blogg.
En hvað er ég búinn að vera að bralla síðustu daga? Það er nú ekki margt, bara skóli og svo kaffihús og svona á hverju kvöldi. Annað hvort kaffihús, bíó eða rúntur, eða bara allt. 
En í gær á fimmtudegi fór ég bara á Sólon með Grétari, Jökli og Eygló. Ingó Idol var að spila þar og var tilboð á barnum á fötu (5 Carlsberg í gleri) á 1700 kr. Ég var svo svangur áður en Ingó byrjaði að spila þannig Eygló lánaði mér fyrir hamborgara, frönskum og kók. Takk, elskan.
Svo kom að því að Ingó byrjaði að spila, þá fór Jökull og keypti sér fötu.
Svo um kvöldið kom Dóra, vinkona mín. Hún var að bíða eftir vini sínum, þannig við buðum henni bara að setjast hjá okkur þangað til hann kæmi, sem endaði með því að hún var hjá okkur allt kvöldið. Svo kom Erna, vinkona og vinnufélagi Eyglóar. Hún settist þarna hjá okkur með vinkonu sinni.
Seinna um kvöldið sendi Unnur, vinkona mín, mér sms og spurði hvort hún mætti kíkja á Sólon. Ég sagði að henni væri velkomið að kíkja, þannig við þjöppuðum ennþá meira og Unnur og vinkona hennar settust hjá okkur.
Það var nú margt um mannin þarna á Sólon, enda er Ingó ekkert lítið góður að spila á gítarinn og syngja. En allavega, Dóra fékk sér fötu og Jökull aðra fötu. Það endaði auðvitað með ósköpum, þar sem greyið drakk 2 fötur á innan við 2 tímum, þannig við þurftum að fara með greyinu í sjúkrabíl heim. Nei djók, en samt nánast.
En mig að senda hamingjuóskir til Unnar með nýja bílinn, sem hún keypti sér um daginn. Þetta er silfurlituð Mazda MX-5, sem er með blæju. Spáið í gellunni á blæjubíl.
En annars innilega til hamingju með kaggann! 
Svo í dag á föstudegi fór ég bara í skólann. Skrapp svo aðeins heim, fór með mömmu út í búð að versla og svona. Svo fór ég með Grétari á American Style og svo í Kringluna í AllSaints að kaupa miða á Moniku Kruse. Svo fór ég bara í ríkið fyrir Eygló og keypti Carlsberg kippu handa henni.
En hvað er planið í kvöld? Er það ekki bara Nasa að hlusta á Moniku Kruse þeyta skífum? Ég ætla allavega að kíkja, þó ég bindi nú ekki miklar vonir til þessarar Moniku. Ég náði í eitt lag núna áðan sem hún var að remixa, og mér leist engan veginn á það. En ef tónlistin klikkar, þá er maður allavega í góðra vina hópi og lætur tónlistina ekki á sig fá.
En allavega, núna ætla ég að fá mér 1944 sjávarréttarsúpu og byrja svo á því að taka mig til fyrir kvöldið. Segjum þetta ágætt í bili.

Athugasemdir (