Deila á Facebook
« Nasa í kvöld? | Aðalsíða | Laugardagur - Drama, drama, drama »

Föstudagurinn - Monika Kruse á Nasa
Skrifað laugard. 2. september 2006 - 22:01
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Gærkvöldið var ágætt, þó það hefði nú getað verið mun betra ef sumir hefðu ekki beilað svona rosalega. Ég samt var að vakna og er drulluþunnur núna. Ætla að sjæna mig og skella mér svo að borða einhvern juicy þynnkumat.

Ég var mættur til Jökuls í gær í kringum hálf 11, en ástæðan af hverju ég var svona lengi er sú að það var svo gott efni í sjónvarpinu, þannig ég gat ekki rifið mig frá skjánum. Eygló, Herdís og Jökull komu samt að sækja bjórinn hennar Eyglóar. Það var stuttu eftir að þau komu sem ég drullaðist á fætur og tók mig til.

Heima hjá Jökli voru múgur og margmenni, en þó aðallega stelpur, fyrir utan Jökul. Þar voru Eygló, Anja, Herdís, Kata, Sandra og Jökull. Svo kom ég og svo Grétar, þannig það voru ekki lengi bara stelpur. En við tókum upp gítarinn og Jökull spilaði á hann, en svo drukkum við bara þangað til við kláruðum áfengið.

Svo var komið að því að skella sér í bæinn. Jökull var edrú, þannig hann var driverinn þetta kvöldið, þannig við skutluðum skvísunum á Verslóball sem haldið var í Nauthólsvíkinni (kafarabústaðnum). Við gátum auðvitað ekki sleppt því að kíkja, þar sem við erum að tala um Verslógellur hérna, þannig við kíktum aðeins inn. Við bjuggumst við því að okkur yrði hent út, þar sem það kostaði þarna inn, en Aron, félagi minn, var að vinna þarna, þannig hann hleypti okkur frítt inn. Takk, Aron minn.

Við kíktum þarna inn og gellurnar, vááá! Það var nú bara flóð af gellum þarna, enda er þetta Versló. Ég hitti Jóu, fyrrverandi kærustuna hans Gumma Herberts. Ég var alltaf að segja við Jökul og Grétar hvað Jóa væri orðin sæt. Ég þekkti hana varla þarna, hún var búin að þroskast svo mikið. Algjör megaskvís, allavega...

Við stoppuðum nú ekki lengi þarna, sirka 10 mínútur, þar sem Jökull og Grétar vildu fara en ekki ég. Grétar tók þá tímann 5 mínútur á símanum sínum en eftir þann tíma, fórum við ekki strax, þar sem ég var erfiður. Hvað, hefðuð þið séð gellurnar þarna, hefðuð þið ekki viljað fara langt!

Svo þegar við komum hjá Nasa, lét Jökull mig og Grétar bara úr og fór svo og fékk sér að borða og svona. Við fórum bara inn að dansa. Monika Kruse var ekki byrjuð, þannig techno.is gaurarnir sáu um að halda uppi fjörinu á meðan. Svo skrapp ég á klósettið og kom svo til baka, þá benti held ég Jökull mér á að hún væri byrjuð, þannig við dönsuðum bara meira. Hún kom mér, Jökli og ábyggilega fleirum, verulega á óvart sem DJ. Hún var æði og það var æðislega gaman að dansa við tónlistina hennar!

Svo hittum við ákveðnar stelpur, en vorum ekkert að dansa við þær, þar sem þetta voru fyrrverandi kærusturnar okkar Jökuls (ekki Hulda, þó hún hafi líka verið þarna). Þetta voru allavega Beta og Gugga, fyrir ykkur sem vissu það ekki. Við héldum bara áfram að dansa þarna og skemmtum okkur konunglega, þó Óli hvíti hefði getað sleppt því að dansa við Betu, fyrrverandi hans Jökuls.

Það var samt eitt sem gerðist í gær og því bjóst ég engan veginn við. Það var allavega varðandi Kamil og Kristínu (dramapar aldarinnar). Þau hafa verið að hætta saman og byrja saman aftur núna í ábyggilega þúsundasta skiptið. Ég vissi alveg að Kamil væri ennþá ástfanginn af henni, þar sem hann var alltaf að tala um það á kaffihúsum, en ég bjóst engan veginn við þessu í gær!
Hann var búinn að vera að segja við mig alla vikuna að koma á Nasa á föstudaginn, þannig ég sló til og keypti mér miða. Nei nei, einmitt þegar ég kem þarna til hans á Nasa, fer hann eitthvað og segist koma eftir smá stund. Ég kippi mér ekkert upp við það og fer bara að dansa og eitthvað. Svo löngu seinna er ég þarna við innganginn að reykja, sé ég þá hann labba inn. Ég heilsa honum og spyr hann hvar hann hafi verið, en nei... sé ég ekki Kristínu labba á eftir honum. Hún sér hversu illilega ég horfi á sig, þar sem hún er búin að særa hann mikið. Hann er eflaust búinn að særa hana mikið líka, en allavega... Ég spyr hann hvað hann sé að gera með henni, en hann lyftir bara öxlum. Svo stuttu seinna hleypur hún inn, þar sem hún náði ekki að draga hann burt frá mér, en henni tókst eitt og það er að stela honum, þar sem ég heyrði ekki né sá hann neitt meira um kvöldið. Flottur, Kamil! Hún er geðveikt leiðinleg við hann alltaf hreint, en einmitt þegar henni vantar eitthvað, eins og t.d. að láta borga fyrir sig inn á Nasa og redda sér þangað inn, þá gjörbreytist hún.

Allavega, eftir þetta fóru Grétar og Jökull, þannig ég var bara einn á Nasa. Þetta var samt fínt, þar sem ég hitti geðveikt mikið af fínu fólki. Ég hitti tvær af mínum fyrrverandi, Guggu og Huldu, og svo hitti ég Matta, Bigga, Óla hvíta, og helling af fólki. Þetta var geggjað gaman.

Svo eftir mikla drykkju og mikinn dans, ákvað ég að fara að hitta Grétar. Hann var á Vegamótum með Möggu, sem við kynntumst úti á Tenerife. Ég fór þangað og reyndi að komast inn, en harði dyravörðurinn vildi ekki hleypa mér inn, þar sem það var 22 ára þarna inn. Ég hringdi þá í Grétar og hann kom út og þá sá dyravörðurinn að Grétar var með mér og henti honum út líka. Grétar hringdi þá í félaga sinn, Óðinn, sem var með honum í Pumping Iron, og hann kom og hleypti okkur inn. Það er gott að vera með sambönd.

Svo þegar við komumst inn á Vegamót, hittum við Möggu og vinkonu hennar. Við dönsuðum við þær smá og skruppum svo á barinn. Magga var með einhvern kokteil sem var svona: Southern Comfort, Malibu, ananassafi og Grenatín. Þetta var geðveikur drykkur, en það er þó fátt sem toppar Aygo hjá Gumma Jónss. Ég ætlaði að kaupa mér svona kokteil á eftir Möggu, en gaurinn var búinn að "loka", þannig ég fékk mér bara ógeðslega hlandvolgan Carlsberg, sem mig langaði að æla af. Ógeðslegt!!!

Eftir að Vegamót lokaði, röltum við bara eitthvað niður á Lækjartorg. Magga og vinkona hennar hurfu bara, þannig við Grétar vorum bara þarna tveir. Við sáum einhver slagsmál, sem við reyndum að stoppa, en það voru svo margir í þeim að við urðum bara fórnarlömb með því að reyna að stoppa þau. Ég var kýldur í gagnaugað, þar sem ég er með pinnann, og eftir það var ég að drepast í pinnanum, þannig ég sleit mig úr slagsmálunum og sleppti því að skipta mér að þessu. Þetta var orðið það gróft að það var verið að stappa á hausum á jörðinni og eitthvað, sem er allt of gróft. En við hittum Eyþór þarna, sem er að vinna á Sólon, svo hitti ég Unni og vinkonu hennar. Þær voru allar svartar í kringum augun af maskara og einhverju, þar sem þær voru að gráta og blanda sér í allt þetta vesen. Greyin. En svo sáum við önnur slagsmál, þar sem gaurarnir voru svona 10 á móti einum. Það endaði með því að þessi eini tók upp hníf og þá létu allir sig hverfa. Þoli ekki svona ósanngirni í slagsmálum. Einn á móti einum, þannig á það að vera. En best er ef það eru engin slagsmál, þar sem það er hægt að leysa flest allt með orðum.

En eftir þetta hringdum við Grétar í Danna og var hann þarna á Tryggvagötunni. Hann skutlaði mér og Grétari heim, en greyið þurfti að keyra alla leið til Grindavíkur til þess að skutla Gunna heim. En á leiðinni heim hitti ég Arnar Icemoto, og var hann að skutla Eyþóri, Unni og vinkonu hennar heim. Ég og Arnar vorum að skiptast á smókum á ferðinni á sitthvorum bílunum. Djöfull var það galið!

Svo kom ég heim og rotaðist í rúminu mínu. Svo vaknaði ég núna áðan kl 7 alveg grautþunnur, settist í tölvuna og fór að skrifa þetta blogg. Nú er ég búinn að vera í sirka þrjá klukkutíma að skrifa þessa doktorsritgerð, en það er mikið MSN spjall og netbrowse inn á milli. En allavega, þetta er orðið nógu helvíti langt.

En allavega, hvað er planið í kvöld? Ég ætlaði á Ljósanótt í Keflavík með Kamil, en það er úr sögunni núna. Spurning hvort maður kíki ekki bara á Sólon. Gummi Jónss er að vinna þar, þannig maður verður að kíkja á kallinn. Ég ætla samt núna að skreppa á American Style með Jökli, þar sem við erum svöng feit svín! Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():