Deila á Facebook
« Föstudagurinn - Monika Kruse á Nasa | Aðalsíða | Player? »

Laugardagur - Drama, drama, drama
Skrifað mánud. 4. september 2006 - 02:55
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Er ekki hægt að fara niður í bæ án þess að lenda í einhverju leiðinlegu drama, sem dregur kvöldið gjörsamlega niður? Það virðist vera þannig að maður lendi í drama hvert einasta kvöld sem maður fer niður í bæ. Engan veginn hægt að komast hjá því. Ég er alveg hættur að nenna þessu.

Ég fór niður í bæ í gær (kemur á óvart). Ég, Kamil, Grétar, Jói og Dóra byrjuðum bara heima hjá mér. Ég var svo gáfaður að setja bjórinn minn inn í frysti og gleyma honum svo, þannig ég fór nánast edrú í bæinn, sem endaði með því að ég eyddi 4000 kr. í bænum! Ég ætla aldrei aftur að byrja fyllerí í bænum! Ef ég er edrú þegar ég fer í bæinn, verð ég edrú allt kvöldið! En Grétar var edrú driver, þannig hann skutlaðist með okkur niður í bæ á Sólon. Jökull ætlaði að koma með okkur, en hann ætlaði líka að vera edrú, þannig hann og Grétar tóku bara edrúann á þetta kvöld og voru báðir á bíl.

Ég held ég sé farinn að stunda Sólon kannski aðeins of mikið, þar sem ég er að skoða myndir á solon.is og ég er á þeim myndum fyrir hverja einustu helgi, sem segir bara eitt, og það er það að ég er þarna hverja helgi, sem er ekki gott. Ég djamma heldur aldrei edrú, þannig ég er fullur þarna hverja einustu helgi. Ég sé núna hversu mikill peningur er að fara í áfengi þarna hverja einustu helgi. Hjálp, ég held ég sé í vandræðum!

Jói er svo ungur að ég þurfti að redda honum inn í VIP, þannig Grétar, Kamil og Dóra fóru í röðina og ég fór með Jóa inn í VIP. Þegar við komum inn, fórum við Kamil bara strax á barinn, þar sem við vorum báðir edrú. Við keyptum okkur bjór og settumst bara niður og slöppuðum af. Svo seinna kom Unnur og vinkona hennar og við fórum öll að dansa.

Eftir smá dans hringdi Maja frænka í mig. Ég svaraði en heyrði ekki neitt fyrir öllum hávaðanum. Ég sendi henni sms og spurði hvort það væri eitthvað vesen, og hún sagði já, þannig ég hljóp til hennar niður á Lækjargötu og þar var hún. Ég held ég hafi aldrei hlaupið svona hratt. Hvað gerir maður ekki fyrir frænku sína, sérstaklega þegar hún er í neyð? Hún var búin að týna öllum vinum sínum, sem hún var með, þannig ég tók hana bara með mér á Sólon. Svo þurfti ég að redda Adami, kærastanum hennar, inn, en ég var búinn með "VIP kvótann" minn. En Júlli, sem var með mér í Borgó, reddaði honum inn.

Svo fórum við bara upp að dansa; ég, Kamil, Unnur, Maja og Adam. Því miður voru Dóra, Grétar og Jökull farin, þannig við vorum bara eftir. Grétar var samt ekki alveg farinn, þar sem hann fór bara að skutla Dóru heim, en hann kom aftur og bauð mér far. Takk, vinur.

Svo við komum nú að dramanu, þá vorum við Kamil þarna eitthvað við barinn að kaupa okkur eitthvað áfengi, og þá kemur manneskja sem við vildum síður hitta, og var það Kristín, fyrrverandi Kamils. Hún byrjaði eitthvað að tala við Kamil, en Kamil reyndi að hlusta sem minnst á hana. Hún var með þvílíka stæla, gaf mér puttann og var geðveikan kjaft við okkur báða. Ég tók mig þá til og bað félaga minn, sem er dyravörður þarna, að koma og vera hjá okkur svo hann gæti hent henni út ef hún myndi ekki hætta þessu. Hún hætti svo, fór að gráta, og við fórum bara. Meira ruglið! Þetta dró samt kvöldið þvílíkt mikið niður. Takk, Kristín, og endilega reyndu að kæra mig, eins og þú sagðir við Kamil, fyrir að skrifa um ykkur hérna. Þú sagðir við hann í gær að þú værir að spá í því að taka við honum aftur, en það ert ekki þú sem átt að taka við honum aftur, það er hann sem ætti að taka við þér aftur, þar sem þú sagðir honum upp. En ég vona allavega að hann geri það ekki, þar sem þú hefur gjörbreytt honum og eyðilagt hann, og það mun taka tíma að byggja hann upp aftur. Láttu hann nú vera og leyfðu honum nú að lifa lífinu.

Svo eftir þetta drama, drukkum við bara meira og dönsuðum endalaust. Ég og Unnur höfum bæði verið í samkvæmisdansi og í gær spurði ég hana hvort hana langaði að byrja aftur og hún sagði já, en hún sagði að hún hefði engan til að dansa við, þannig ég bauð mig fram. Þannig ég held að ég og Unnur séum að fara að æfa dans aftur. Það er bara gaman.

En svo kom Danni að sækja okkur. Ég bauð Unni og Eyþóri far, þar sem þeim vantaði far. Við skutluðum Unni fyrst heim í Garðabæ. Þegar við komum þangað sýndi hún okkur nýja bílinn sinn, sem er Mazda MX-5 blæju. Geðsjúkur bíll! Ég var eitthvað þarna einn með Unni úti að skoða bílinn hennar, allir voru sestir inn í bílinn hjá Danna, og þá fæ ég þessa setningu framan í mig: "Ef þú ferð inn með henni, óskar þú þess að hafa aldrei fæðst". Ég bara eitthvað ok og settist inn í bílinn hans Danna. Ég ætla nú ekki að segja hver sagði þetta við mig, en ég ætlaði nú aldrei að fara með Unni inn. En allavega, það var nú ekki skemmtilegt að fá þetta.

En svo skutlaði Danni mér og Kamil bara heim, þar sem Eyþór býr í Breiðholtinu, eins og Danni. Kamil ætlaði að keyra heim, en ég bannaði honum það og tók bíllyklana af honum. Svo fórum við bara inn að sofa. Kamil svaf bara í sófanum frammi.

Svo núna í dag á sunnudag vaknaði ég geðveikt þunnur kl sirka 6. Fór svo með Gumma Jónss á American Style. Gellan þarna er byrjuð að þekkja mig og sagði við mig áðan: "Þú ert alltaf hérna!". Hahaha, það var geðveikt fyndið. Svo spjölluðum við Gummi bara saman og borðuðum svo fitufæðið okkar. Svo skutlaði hann mér bara heim og Kamil kom svo stuttu síðar til mín. Ég skellti mér í sturtu og svona og gerði mig fínan. Svo fórum við í bíó.

Við fórum á myndina United 93. Hún fjallar um atburðina sem gerðust 11. september 2001. Þessi mynd var ógeðslega góð, en fyrir hlé var ekkert sem gerðist. Þannig það má segja að hún hafi "byrjað" eftir hlé. Þessi mynd er virkilega góð og hrærir hún geðveikt mikið í tilfinningum manns. Ég var á tímabili næstum því búinn að tárast. Virkilega góð mynd, enda fær hún 5 stjörnur hjá Topp5.is. Ég ætla líka að gefa henni 5 stjörnur. Þetta er mynd sem þið verðið að sjá!

Svo fórum við Kamil bara að rúnta eftir bíóið. Við hittum Óla linsu og var hann á Hondu hjólinu sínu, sem er 900cc, sem er ágætis kraftur í. Við spjölluðum bara við hann og fórum svo bara heim.

Núna er ég hér niður kominn og er bara að fara að sofa. Jökull er svo góður að gefa mér far í skólann á morgun, þar sem við eigum báðir að mæta kl 9:50. En jæja, þetta er komið ágætt af skrifum og ætla ég bara að fara að sofa núna svo ég vakni í skólann á morgun.




Athugasemdir ():