Deila á Facebook
« Laugardagur - Drama, drama, drama | Aðalsíða | Lítið bréf »

Player?
Skrifað þriðjud. 5. september 2006 - 01:49
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég gerði svolítið í dag sem ég hef aldrei gert áður og var geðveikt fyndið. Okkur Jökli fannst það allavega.

Eftir skóla í dag, fór ég á American Style með Jökli. Kemur það á óvart? Ég hélt ekki. Allavega, alltaf þegar ég hef komið þarna er þessi geðveikt sæta stelpa að vinna. Við pöntuðum okkur bara að borða eins og venjulega, settumst niður og biðum eftir matnum. Svo kemur einhver dama með matinn og við borðum.

Eftir að við vorum búnir að borða, bið ég sætu stelpuna um penna. Hún réttir mér penna. Ég tek þá miðann, sem maður fær alltaf með númerinu á pöntuninni, skrifa númerið og nafnið mitt niður á miðann, brýt miðann saman og rétti henni svo pennann með miðanum, og þakka henni fyrir lánið á pennanum.

Svo áður en við fórum í þennan leiðangur var Jökull búinn að vara mig við að snúa mér ekki við á meðan ég væri að labba út. Ég gerði það ekki, enda löbbuðum við bara rösklega að hurðinni eftir að hafa látið hana fá pennann með miðanum og fórum út.

Þetta var án efa það flippaðasta sem ég hef gert á ævi minni, enda vorum við í hláturskrampa eftir á. Það veldur mér samt hugarangri að hún hafi ekki sent mér sms, hringt eða neitt. Hún hlýtur að vera á föstu eða lesbísk!




Athugasemdir ():