Vaka stendur sig vel
Skrifað miðvikud. 6. september 2006 - 23:23Ég er ekki að fíla skólann núna, þar sem það er sett próf daginn eftir aðal Magnavökuna! Nú er ég bálreiður og vonsvikinn út í Sigga Sögu. 
En ég ákvað að fara í skólann í dag. Það var svolítið fyndið sem gerðist þar. Bíll félaga míns var næstum því dreginn. Greyið hafði lagt í ólöglegt stæði. Við komum þarna út og þá var Vökugaurinn búinn að festa bílinn og tilbúinn að draga hann upp í Vöku. Félagi minn var ekki lengi að hringja eitt símtal og bíllinn var losaður. Hann þekkti víst eiganda Vöku. Heppinn.
Umsjónarmenn Borgarholtsskóla (gangaverðirnir) eru oftast vanir að setja bara aðvörun á bíla, en þarna var því sleppt og gengið beint til aðgerða. Mér fannst þetta geðveikt fyndið. En það sem kom mér svolítið á óvart er það að þeir hreyfðu ekki einu sinni bílinn til þess að draga hann. Þeir gætu það ekki einu sinni þótt þeir reyndu, þar sem bíllinn er sjálfskiptur og í parkinu er ekki hægt að hreyfa hann. Þeir eru með mjög sniðugan útbúnað á bílunum sem gerir það að barnaleik að ræna bílum.

Allavega, þetta var ágætis dagur, fyrir utan það að núna er ég að rembast að læra fyrir þetta helvítis próf á morgun. Það er ekki vandamálið að læra fyrir prófið, heldur krefst hann þess að við skilum 75 spurningum+svörum úr köflunum. Helvítis bastarður!
Núna ætla ég bara að fara að læra og vorkenna sjálfum mér. Ég þurfti m.a.s. að sleppa því að fara með vinum mínum á Sólon að drekka bjór og horfa á Magnavökuna. Ég ætla að vera geðveikt bitur í skólanum á morgun.
Segjum þetta ágætt í bili.

Athugasemdir (