Fimmtudagur - Frí á morgun!
Skrifað fimmtud. 7. september 2006 - 21:45Jæja, elskurnar. Það er sko sannarlega kominn tími á blogg hjá mér, þar sem það er allt of langt síðan ég bloggaði síðast. 
Í morgun vaknaði ég kl 7:50 og tók mig til fyrir skólann. Jökull kom og sótti mig og við brunuðum í skólann. Ég var í fyrsta tímanum að fara í próf í Sögu. Ég fór inn í tímann, settist við eitthvað borð og beið eftir prófinu. Þetta var nú frekar auðvelt próf, fyrir utan það að það var 100 línu ritgerð um Forn Egyptaland. Ég skrifaði einhverjar 50 línur, sem mér fannst nú bara vera nokkuð gott.
Eftir prófið bað Siggi mig um þessar 75 spurningar+svör sem ég átti að skila í prófinu. Ég var ekki búinn með það, þannig ég laug því að honum að ég hefði sent honum það í emaili. Hann athugaði emailið sitt og sagði svo að það hefði ekkert komið. Ég sagðist þá ætla að skreppa inn í tölvustofu og prenta þetta út. Málið var að ef maður var ekki búinn að klára þetta átti maður að vera það sem eftir var af tímanum og gera þetta. Ég var ekki að nenna því þannig ég skrapp inn í tölvustofu. Ég var fyrst að spá í að stinga bara af, en hann hefði þá bara látið mig gera þetta seinna. Ég fór bara inn í tölvustofuna og skrifaði upp 75 spurningar+svör á mettíma, minnir 20 mínútum. Það er heimsmet!
Svo fór ég bara til hans og lét hann fá þetta, og það leit út eins og ég hefði bara verið að prenta þetta út. Algjör snilld! 
Svo eftir skóla var eitthvað hlaup til styrktar ABC barnahjálp. Ég var búinn að skrá mig í þetta hlaup, en ég nennti engan veginn að hlaupa né labba þetta, þannig við Helgi skelltum okkur bara í ljós og fórum svo á American Style með Grétari og Jökli.
Það var ýmislegt sem gerðist inni á Stælnum, þ.á.m. Grétar spurði einhverja stelpu sem var að vinna þarna hvort að stelpan, sem ég lét fá númerið mitt (og benti á mig í leiðinni), væri að vinna. Djöfull varð ég geðveikt pirraður, þar sem þetta var algjör óþarfi hjá honum. Svona er að finnast maður fyndinn og gerir ýmislegt á kostnað annara án þess að hugsa. En við erum góðir núna, held ég...
Svo eftir Stælinn fór ég bara heim. Jökull skutlaði mér bara heim og ég fór beint upp í rúm að horfa á sjónvarpið. Tölvan var að skanna eftir vírusum, þannig ég gat ekkert verið í henni. Ég steinsofnaði og vaknaði kl hálf 8. Svo núna er ég bara hér.
Í kvöld er bjórkvöld hjá Borgó uppi á Klúbbnum, en þar sem það er frí í skólanum á morgun, verður drukkið aðeins meira en nokkra bjóra.
En núna er ég farinn að taka mig til fyrir kvöldið. Segjum þetta ágætt í bili.

Athugasemdir (