Deila á Facebook
« Fimmtudagur - Frí á morgun! | Aðalsíða | Föstudagur - Craaazy kvöld! »

Bjórkvöld
Skrifað föstud. 8. september 2006 - 20:57
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Gærkvöldið var mjög fínt. Mikið drukkið og djammað. Helvíti gott bara.

Kvöldið byrjaði þannig að Grétar kom til mín. Ég var heillengi að drullast í sturtu og að gera mig kláran, þar sem ég var bara engan veginn að nenna því. En það kom að því að ég drullaðist í að taka mig til fyrir kvöldið.

Ég (hægri) og Grétar


Áður en við fórum út úr húsi, komu mamma og pabbi heim. Mamma var búin að kaupa einhverja skyrtu og peysu og krafðist þess að ég færi í því út. Ég auðvitað hlýddi henni.

Við röltum heim til Jökuls, þar sem hann var partýhaldarinn þetta kvöldið. Þeir sem voru þarna: Ég, Palli, Eygló, Herdís, Nanna, Aron, Oddrún, Anna, Anja, Ásgeir bróðir Arons og kærasta Ásgeirs hún Berglind, Sandra, Kamil, Karen, Helgi, Jói, Grétar og Ómar. Vel fjölmennt. Við tókum bara upp gítarinn, drukkum og sungum þangað til klukkuna sló 12 um miðnætti.

Við fórum þá á Klúbbinn, þar sem Borgarholtsskóli var að halda bjórkvöld þar. Ég fór með Kamil og kom Jökull með okkur. Svo þegar við komum á Klúbbinn var svo fjölmennt að það var löng biðröð út fyrir dyrnar. Við biðum í svona korter fyrir utan í þessari helvítis röð. Það ætti að vera þannig að þeir sem væru búnir að vera lengst í þessum skóla fengju að fara fyrstir inn, þar sem þá værum við fyrstir.

Þegar við komum inn, fór ég beint í það að leita að Unni, þar sem ég var búinn að lofa að hitta hana strax og ég kæmi. Hún var þarna ásamt vinkonu sinni, Söndru. Við settumst bara þarna og höfðum það kózý.

Svo kom að því að maður þurfti að fara að dansa, þannig ég skellti mér á dansgólfið og dansaði mig hauslausan. Svo settist ég bara aftur hjá Unni og Söndru.

Svo eftir að Klúbburinn lokaði kl 1, fórum við öll í eftirpartý til Jökuls. Ég, Helgi, Grétar, Jökull, Kamil, Jói, Unnur og Sandra vorum þarna. Unnur var ekki nógu full, þannig við röltum bara heim til mín og sóttum tvo bjóra sem ég átti í ísskápnum. Mamma, pabbi og Ella systir stoppuðu okkur í dyragættinni og fóru að tala geðveikt mikið við okkur. Þetta var geðveikt gaman og vil ég þakka öllum bara kærlega fyrir þetta æðislega kvöld, og þá sérstaklega Jökli fyrir að halda svona skemmtileg partý.

En núna er ég bara að fara að taka mig til fyrir kvöldið. Kamil og Danni komu áðan og eru búnir að vera hérna í nokkra klukkutíma, og ég er búinn að vera svo skemmtilegur við þá að leyfa þeim að horfa á sjónvarpið á meðan ég sit hérna í tölvunni.

En segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():