Deila á Facebook
« Bjórkvöld | Aðalsíða | Laugardagur - Leðurjakkanum mínum stolið! »

Föstudagur - Craaazy kvöld!
Skrifað laugard. 9. september 2006 - 21:24
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég verð að viðurkenna að gærkvöldið hafi verið geðsjúkt. En ég vil svona byrja á því að segja að ég er ógeðslega þunnur og held í alvöru að ég sé að deyja, þar sem ég er með geðveika sjóriðu og er mjög flögurt.

Við byrjuðum gærkvöldið á því að fara til Jökuls. Þar var ágætt partý og nóg af fólki. Þeir sem voru þarna voru: ég, Jökull, Grétar, Kamil, Danni, Helgi, Gummi, Palli, Jónas, Ívar, Eygló, Kata, Anja, Ásta. Þetta var geðveikt gaman, mikið drukkið og sungið. Svo seinna um kvöldið vorum við uppiskroppa með bland, þannig ég, Danni, Kamil og Kata fórum út í 10-11 og keyptum meira bland. Kamil virðir ekki shotgun-reglur.

Gummi og ég í partýinu hjá Jökli. Heitir gaurar.


En svo seinna um kvöldið komu Unnur og Sandra. Þær geta nátturulega ekki verið án partýanna sem við höldum, þar sem þau eru bestu og skemmtilegustu partý í heimi. Maja frænka skutlaði þeim til okkar og það var fínt. Eygló manaði svo mig og Unni til að kyssast og sagðist hún ætla að gefa okkur bjór fyrir það, en það varð ekkert úr því. Það var líka bara ágætt.

Svo þegar allir voru orðnir vel í því, var ákveðið að fara niður í bæ. Maja frænka kom og sótti Unni og Söndru, þannig ég tróð mér bara með þeim. Maja var í einhverju pirruðu skapi þannig það var mjög erfitt að ná sambandi við hana í bílnum. Svo þegar við komum niður í bæ var bara farið beint á Sólon.

Þegar við komum inn settumst við bara niður og slöppuðum af. Svo kom Kamil niður í bæ og settist hann hjá okkur. Unnur og Sandra þurftu þá að skreppa aðeins á Hverfis. Ég veit ekki af hverju, en þær fóru bara. Þá vorum við bara einir þarna, þar sem allt fólkið var svo lengi á leiðinni. Kamil fékk sér bjór, en ég ákvað að sleppa því að drekka, þar sem ég var svolítið fullur, þannig ég saltaði aðeins bjórinn.

Svo kom allt fólkið niður í bæ. Ég, Helgi, Gummi, Kamil, Grétar, Jökull, Hreiðar, Jónas, Ívar og Palli mynduðum allir hring á gólfinu og gjörsamlega áttum dansgólfið. Það var líka lítill fugl sem hvíslaði því að mér að ég, Gummi, Helgi og Jökull hefðum verið lang flottastir þarna, enda voru allar stelpurnar að slást um okkur.

Ójá, stelpurnar slóust bókstaflega um okkur. Við vorum eitthvað að dansa þarna og þá kom einhver stelpa að reyna við Helga, og hann fór eitthvað að dansa við hana og ég við vinkonu hennar. Þá urðu ákveðnar stelpur geðveikt öfundsjúkar og dönsuðu saman alveg upp við okkur. Geðveikt að reyna að gera okkur öfundsjúka. Þetta var ógeðslega fyndið!

Svo settist Helgi eitthvað niður með stelpunni og ég settist hjá honum. Hann sagði mér þá að fara að vinkonu hennar og reyna við hana, en ég var nú ekki alveg að meika það. Ég settist samt hjá henni og spurði hana hversu gömul hún væri og hún sagðist vera 84! Þegar ég sagði henni að ég væri 85 varð hún svolítið hissa. Ég veit ekki af hverju. Kannski hélt hún að ég væri eldri eða yngri?

En það var smá vesen í gær. Kamil var að dansa við Söndru, vinkonu Unnar. Svo fór Kamil eitthvað í burtu og það kom annar gaur að dansa við Söndru. Þá varð Kamil geðveikt pirraður og fór að rífast við gaurinn, og endaði það með því að Kamil kýldi gaurinn, en hann náði ekki góðu höggi, þar sem ég náði að draga gaurinn í burtu. Svo talaði ég við gaurinn og hann hélt að ég hefði kýlt sig og spurði eitthvað: "Af hverju í andskotanum kýldiru mig?". Ég sagði honum bara að ég hefði ekki kýlt hann og sagði honum svo að fara, því annars yrði hann drepinn af öllum þarna.

Svo var eitthvað vesen á milli Jökuls og einhvers gaurs. Jökull var að ýta gaurum í burtu fyrir okkur, þar sem þeir voru að dansa við okkar stelpur, þannig Jökull ýtti þeim bara í burtu. En einn gaurinn, sem var útlendingur, tók það eitthvað nærri sér, greyið, og byrjaði með leiðindi. Helgi fór þá og talaði við gaurinn og hræddi hann þvílíkt mikið. Jökull var án djóks að fara að drepa gaurinn, þar sem Jökull horfði með þessum morðingjasvip á gaurinn og ætlaði að drepa hann. Sem betur fer varð ekkert úr þessu, þar sem gaurinn var skynsamur.

Svo rétt áður en Sólon var að loka hitti ég Sigga dansara. Hann var edrú og hress eins og alltaf. Hann benti á tvær stelpur og sagði: "Til í að taka þær og koma í danskeppni?", þar sem við erum alltaf að metast um hvor sé betri dansari. Hann er samt miklu betri dansari en ég, allavega hann kann að improvisa meira með stelpu sem kann ekki neitt að dansa, enda rústaði hann mér klárlega í keppninni. En stelpan sem ég dansaði við hét Lísa, og hélt ég að hún væri útlensk, þar sem hún talaði með svolitlum útlenskum hreim, en hún móðgaðist bara. Hún lofaði mér að verða á Sólon í kvöld, þar sem hún væri alltaf þarna. Nei, elskan, þú ert ekki alltaf þarna, þar sem ÉG er ALLTAF þarna! Ég hef líka aldrei séð hana þarna, þannig hún getur ekki verið alltaf þarna.

En eftir að Sólon lokaði fórum við bara út. Ég og Jökull vorum gjörsamlega brjálaðir, en ég var aðallega svona brjálaður út af því að ég sá Unni vera að gefa Dabba Grensás númerið sitt. Við gengum gjörsamlega berserksgang og vorum snælduvitlausir. Ég skarst smá á púls og rispaðist á nokkrum stöðum. Ég veit ekki hvað gerði mig svona brjálaðan, en ég get vel ímyndað mér að það hafi verið allur þessi Magic + vodki sem ég drakk.

Svo vorum við eitthvað niðri á Ingólfstorgi. Jökull og Kamil voru að fá sér að borða. Við biðum eftir Grétari, Ívari, Bylgju og Jónasi. ALLIR AÐ TAKA BYLGJU! Þá var ég orðinn rólegri. Svo fundu þeir taxa og við fórum í hann. Ég byrjaði eitthvað að bulla í leigubílstjóranum, sem var kona, að ég hefði verið skorinn á púls og að ég þyrfti að fara upp á sjúkrahús. Svo kraup ég eitthvað og þóttist vera grátandi. Jökull sá alveg í gegnum mig að ég væri bara að djóka og byrjaði að segja mér að halda kjafti og svona, en þá sagði taxakonan honum að vera ekki með leiðindi og sagði honum bókstaflega að halda bara kjafti. Vá hvað það var erfitt að fara ekki að skellihlæja. En svo fór ég að nudda augun ógeðslega mikið til að hún myndi enn frekar halda að ég hefði verið að gráta, en við það duttu báðar linsurnar úr!

En á leiðinni heim dó ég í taxanum, var mér sagt. Hehe, hvað gerði mig svona rosalega fullan á svona stuttum tíma? Eftir að ég sá Unni vera að reyna við Dabba Grensás fór ég beint á barinn og þambaði tvo tvöfalda Magic + vodka, þannig það hlýtur að hafa "drepið mig". Ég dó samt ekki, en ég var verulega fullur. Grétar þurfti að halda á mér fyrir utan taxann. Jökull sagði svo: "Hann er pottþétt að þessu til að sleppa við að borga taxann", en ég var nú ekkert að því. Ég tók bara fram veskið og rétti honum kortið mitt.

Svo fórum við bara inn til mín og settumst í sófann og Jökull spilaði á gítarinn minn. Ég fór stuttu seinna inn í rúm, þar sem ég var ekki alveg að höndla þetta. Ég var allur í sárum og einhverju, þannig Kamil setti plástur á bágtið mitt. Takk, Grétar og Kamil, fyrir að hafa sýnt mér svona mikinn stuðning í gær. Ég met það mikils.

En ég vaknaði ógeðslega þunnur í dag við það að Jökull var að vekja mig. Ég leit á símann minn og sá milljón missed calls og svo eitt sms. Ég skoðaði númerið sem sendi mér þetta sms og var ekki að þekkja það. Svo þegar ég skoðaði skilaboðin, getið hvað stóð í þeim? "Hæj hæj tetta er Ester upp a American Style a ad djamma i kvold?..". Ég vissi að hún myndi senda mér til baka!!! Hún vildi bara örugglega ekki gera það strax til að virka ekki svona desperate, en allavega hún svaraði mér þannig ég er ekki ómögulegur. Ég sagði henni annars bara að auðvitað ætlaði ég að djamma og spurði hana hvort hún ætlaði ekki örugglega að djamma líka, en þá sagðist hún vera úti á landi með vinum sínum, þannig hún gæti ekki djammað í bænum. En allavega, það sem skiptir mestu er það að ég fékk sms frá henni!

Svo skruppum við í ríkið og á American Style. Við Jökull náðum í Helga og hann kom með okkur. Þetta var klárlega fínn dagur, fyrir utan það að ég var ógeðslega þunnur. Svo kom Grétar á Stælinn með pabba sínum og litlu frænku sinni. Takk fyrir matinn, strákar mínir.

En núna í kvöld er feitt partý heima hjá Jökli. Við strákarnir erum búnir að ákveða að vera geðveikt fínir í kvöld, en þar sem það er alltaf svo ógeðslega heitt inni á Sólon, veit ég ekki hversu lengi maður heldur það út. Þetta verður svaka partý, þar sem við ætluðum að vera úti, kveikja bál og syngja ógeðslega hátt! Þetta verður geeeeeeðveikt! Svo förum við örugglega bara í bæinn á Sólon, eins og ALLTAF.

Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():