Deila á Facebook
« Föstudagur - Craaazy kvöld! | Aðalsíða | Hvaða dagur er í dag? »

Laugardagur - Leðurjakkanum mínum stolið!
Skrifað sunnud. 10. september 2006 - 23:55
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Í gærkvöldi var farið að djamma. Við byrjuðum heima hjá Jökli og færðum okkur svo niður í bæ á aðal staðinn... Sólon.

Þegar við mættum til Jökuls, voru múgur og margmenni þar. Ég held ég geti engan veginn talið upp allt fólkið sem var þarna, en trúið mér, við vorum mörg! Ég held það hafi aldrei verið svona fjölmennt, þar sem það var ekki hægt að labba um það var svo troðið. Eina plássið sem ég fann sem var ekki fullt af fólki var úti og fyrir aftan sófann hans Jökuls.

Við drukkum, sungum og höfðum gaman. Ég lenti á spjalli við frænku hans Helga, en hún er 23 ára, er gift og á barn. Hún var rosalega skemmtileg og algjör djammari. En já, það var mikið sungið og mikið manað mig í að taka Aladdin lagið, sem tókst svo að lokum.

Við strákarnir; ég, Jökull, Helgi og Gummi vorum með smá svona þema, eins og Gummi kallar það, og það var að dressa sig mjög fínt upp. Jökull var í svartri skyrtu og svörtum buxum, fínn eins og alltaf. Gummi var í jakkafötum og með bindi, rosa sætur. Og við Helgi vorum eins, í svörtum buxum, skyrtu og í leðurjökkum. Ógeðslega svalir gaurar.

Þegar klukkan var að verða tvö, ákváðum við að fara í bæinn. Við vorum í algjörum vandræðum með að redda okkur fari niður í bæ, en svo sendi engill mér sms og sagðist vera að fara niður í bæ og spurði hvort mig vantaði far. Ég sagði auðvitað já og kom hún á hvíta hestinum sínum með Alex, sem er algjör dúlla af tegundinni King Charles Spaniel. Nei, ég segi svona, en þetta var allavega Dóra og með hvíta hestinum meina ég gullfallegum skotheldum BMW 740iL, sem ég er verulega hrifinn af. Hún skutlaði okkur niður í bæ, en í þann mund sem við vorum að fara fór að fjúka í Jökul, en hann hélt að einhver hefði stolið lyklunum sínum. Við fórum inn og leituðum að þeim út um allt, en þá voru þeir í hinum buxunum hans Jökuls. Kjáni!

Ég vil bara þakka Dóru kærlega fyrir að vera svona hugulsöm að hugsa svona um mig. Ég vil líka óska henni velfarnaðar í flutningunum og við sjáumst að sjálfsögðu hress og kát næst þegar þú kemur í bæinn að djamma. Þú veist hvar mig er að finna á djamminu. Svo ef allt klikkar og ég er ekki þar, þá ertu með númerið mitt.

En já, þegar engillinn var búin að skutla mér, Grétari, Jökli og Kamil niður í bæ, fórum við beint á Sólon. Siggi var í dyrunum, þannig ég reddaði öllum inn í VIP. Við fórum bara beint upp á dansgólfið og dönsuðum af okkur rassgatið.

Á leiðinni niður í bæ keyrðum við fram hjá einhverju svakalegu slysi. En hvað er að fólki að svívirða lokun Lögreglu, auka hættu á slysstað og í þokkabót að gera þetta allt ölvaður. Vááá! En það er allavega gott að allt þetta fólk sé ekki illa slasað eftir þetta slys.

Þetta var frábært kvöld, fyrir utan það að ég sá Unni slefa upp í tvo gaura á innan við 10 mínútum, leðurjakkanum mínum stolið, Helga leið illa og svo týndi Gummi símanum sínum.

Ég fór eitthvað niður og sá þar Helga SITJA við eitthvað borð með Herdísi og einhverjum stelpum. Þegar hann djammar með okkur, situr hann aldrei, þannig það hlaut að vera eitthvað að. Ég dró hann bara á smá trúnó niðri á klósetti, en það var skemmt af einhverjum hálfvitum, sem ákváðu að trufla okkur. Honum leið illa, þannig hann fór bara heim. Ég skil hann alveg, þar sem maður hefur alveg gengið í gegnum þetta líka. En þegar ég kom að honum sitja þarna, starði ég á hann með þvílíkum morðingjasvip og blikkaði ekki augunum. Hann brosti bara og spurði hvað ég væri að gera. Herdís var þarna með honum, þannig hún var orðin geðveikt reið út í mig fyrir að stara bara þarna á hann. Fyndið grín! Við eigum allavega inni trúnó.

Gummi týndi í raun ekkert símanum sínum. Hann bara gleymdi honum hjá Jökli. Við vorum geðveikt paranoid fyrst að leita að honum út um allt dansgólf. Svo fór Gummi á Qbar að leita að honum þar. Jökull kom svo til mín og spurði mig hvert Gummi hefði farið, og þá sagði ég honum að hann hefði týnt símanum sínum og farið á Qbar að leita að honum, en þá sagði Jökull að síminn hans væri heima hjá sér, þar sem hann hefði gleymt honum þar. Hahaha! Þetta er ekkert til að skammast sín fyrir Gummi, við höfum allir lent í þessu áður.

Eftir að Helgi var farinn heim, fór ég bara með Jökli og Kamil upp að dansa. Grétar og Gummi voru löngu farnir, þannig við vorum bara þrír þarna. Ég var svo dreginn í svaka dans við Eygló, þar sem við gerðum allt vitlaust þarna á dansgólfinu. Eftir að ég var búinn að svitna svolítið á dansgólfinu með Eygló, fór ég eitthvað á barinn til að fá mér meira að drekka, og þar var gaur sem sagði að ég væri geðveikt góður dansari. Mér leið geðveikt vel þá.

Svo var einhver stelpa, sem var alveg að deyja, ofan á hátalaranum við DJ borðið. Ég fór að henni, hjálpaði henni á fætur og fór með hana á barinn og lét hana fá vatn. Ég gat ekki horft upp á þessa stelpu deyja þarna, þannig ég ákvað að hjálpa henni. Eftir að ég var búinn að gefa henni vatn, fór hún bara í flýti inn á dansgólfið aftur og ég sá hana ekkert meir þetta kvöld. Mér var sama, en þetta var eitthvað svo dónalegt af henni að fara bara án þess að þakka fyrir sig.

En á föstudaginn kynntist ég stelpu, sem heitir Lísa. Ég var með henni meiri hlutann af föstudagskvöldinu. Svo í lok kvöldsins á föstudaginn bað ég um númerið hjá henni, en hún vildi ekki gefa mér það, þar sem hún sagðist vera á föstu, og sagði mér bara að hitta sig næsta kvöld. Ég lofaði henni að gera það, og viti menn, ég hitti hana aftur í gær. Hún var með vinkonu sinni, Thelmu, sem er núna kennd við það að drekka meirihlutann af öllum drykkjum sem ég kaupi á barnum. En allavega, ég hitti Lísu og við settumst eitthvað niður og fórum að spjalla. Hún var þá ekkert að djóka með að hún hefði verið á föstu. Hún hætti með honum einmitt þetta kvöld (laugardag). Fyrrverandi kærastinn hennar var víst þarna líka og eitthvað. Æjj, greyið. En svo fórum við að dansa, en hún þorði ekki að dansa eins og við Eygló höfðum verið að dansa. Ég sagði henni bara að ég myndi stýra, en hún vildi það samt ekki.

Svo þegar Sólon var að loka bað ég um númerið hennar aftur, og gaf hún mér það. Ég treysti henni fyrst ekki, þar sem hún var nýhætt með kærastanum sínum, þannig ég tók mig til og hringdi í númerið sem hún gaf mér, og viti menn, þetta var hennar rétta númer. Geðveikt paranoid gaur. Eftir þetta sá ég hana vera að tala við sinn fyrrverandi, og eftir að þau voru hætt að tala saman spurði ég hana hvort þetta væri kærastinn hennar, og hún sagði já. Ég fór þá geðveikt að baktala hann við hana og eitthvað, og skil ég engan veginn af hverju ég gerði það, enda var ég allt of fullur. Hún missti örugglega áhugann á mér eftir að ég gerði það. Hvað er að mér?!

Svo þegar við vorum á leiðinni út, fór ég til Rikka á DJ borðinu og bað um leðurjakkann minn, en það var enginn jakki. Ég man samt eftir því að Helgi fór með hann til Rikka og lét hann geyma hann fyrir mig. En hann var horfinn. Hver stelur annara manna leðurjakka?! "Hey vó, flottur jakki. Best að stela honum". Ef ég sé manneskju í þessum jakka, þá verð ég brjálaður, þar sem ég þekki þennan jakka strax og ég sé hann. Þetta er allavega svartur leðurjakki merktur rauðu O'NELLY merki inni í kraganum. Ef þú finnur þennan jakka, láttu mig þá vita.

Um leið og ég sá Unni slefa upp í þessa gaura, fór ég beint á barinn og keypti mér geðveikt mikið að drekka. Ekki það að mér sé ekki sama að Unnur hafi slefað upp í EINHVERJA gaura, þá þurfti þetta að vera kunningi minn. Úff! En á leiðinni út í bílinn hennar Söndru, var ég orðinn svolítið vel í því. Ég man að ég gekk berserksgang á götum bæjarins og var snarvitlaus út af leðurjakkanum mínum.

En svo þegar ég kom heim, var ég læstur úti, þar sem að húslyklarnir mínir voru í jakkanum, sem var STOLIÐ! Jökull skrapp þá heim til sín og sótti skrúfjárn svo hann gæti opnað glugga og komist inn. Svo tókst Jökli og Kamil að opna húsið og ég komst inn. Takk æðislega fyrir hjálpina, strákar.

En svo fór ég bara að sofa og vaknaði svolítið þunnur í dag. Ég er bara búinn að vera að vinna síðan í alls kyns verkefnum í tölvunni, og svo fer ég bara að sofa, þar sem það er skóli á morgun.

Segjum þetta bara ágætt...




Athugasemdir ():