Deila á Facebook
« Laugardagur - Leðurjakkanum mínum stolið! | Aðalsíða | Magnavaka - Pravda er æði! »

Hvaða dagur er í dag?
Skrifað mánud. 11. september 2006 - 23:37
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Það er merkisdagur í dag get ég sagt ykkur, þar sem fyrir nákvæmlega 5 árum voru hryðjuverkaárásirnar í New York (9/11). Ég er ekki að segja að þetta sé góður dagur, en þessi dagur mun seint gleymast.

Í raun var þessi dagur bara misheppnaður út í eitt, þar sem eftir fyrsta tímann minn í skólanum fór ég í sjoppuna og ætlaði að kaupa kók. Nei nei, hvað kemur þá? Ekki heimild. Ég náttúrulega alveg handviss um að ég ætti pening, bíð eftir að Jökull kaupi sér eitthvað og þá fær hann ekki heldur heimild. Þetta gat ekki staðist, hvorugur okkar átti pening. Ekki séns! Ég hafði nú ekki eytt svona miklu um helgina, þannig þetta gat ekki staðist, fjandinn hafi það.

Ég skýst í hraðbankann og reyni að taka út 500 kr... ekki heimild. Ég alveg brjálaður hringi í bankann minn og þá segir hún að staðan á reikningnum mínum sé 3000 í mínus! Svo sagði hún að það hefði verið einhver mistök hjá Reiknistofu Bankanna, þar sem þeir tvíbókuðu allar færslur á laugardag og sunnudag. Það hlaut að vera!

Tvíbókað af sumum greiðslukortum um helgina

Debetkortaeigendur lentu sumir hverjir í því um helgina að tekið var tvisvar af kortum þeirra þegar þeir greiddu með þeim. Verið var að breyta hugbúnaði hjá Reikningstofu bankanna sem olli því að hluti af debetkortafærslum á laugardag og sunnudag tvíbókuðust. Helgi H. Steingrímsson, forstjóri Reikingstofu bankanna, segir ekki ljóst um hve margar færslur sé að ræða. Þetta hafi uppgötvast í morgun og unnið hafi verið að leiðréttingum í allan dag og átti þeim að ljúka nú síðdegis.

Vísir.is

En eftir skóla fór ég bara með pabba upp á lóð og við týndum allt ruslið þar. Vorum í sirka 3 tíma að því. Ég var kominn með svo upp í kok af því í endann, en þetta tókst á endanum.

Eftir það fórum við með allt ruslið á Sorpu hjá Höfðanum, en þeir rukkuðu okkur um 2500 kr. fyrir að henda einangrunarplasti (pappakorksefni). Pabbi þverneitaði að láta ræna sig svona og datt svolítið sniðugt í hug. Við fórum þá upp á Sorpu Gylfaflöt, létum vigta bílinn, fórum inn og hentum öllu plastinu, fórum svo út aftur og létum vigta bílinn aftur eftir affermun. Ég sagði að það hefði verið ógeðslega fyndið hefði hann þurft að borga meira en á hinum staðnum, en hann þurfti nú bara að borga 300 kr. Sniðugt að gera þetta!

En núna er nákvæmlega mánuður þangað til ég fæ bílprófið mitt aftur. Ég hringdi m.a.s. í sektadeild Lögreglunnar og spurði hvort ég myndi ekki örugglega byrja með hreinan skjöld þegar ég fengi prófið aftur. Hún double checkaði það og það var rétt. Þannig núna þegar ég fæ prófið verð ég punktalaus! Vá hvað ég hlakka til að fara að keyra aftur á elsku bílnum mínum!

Mig langar líka að óska Maju, frænku minni, innilega til hamingju með afmælið. Skvísan er 18 ára í dag. Til hamingju með afmælið, elskan mín.

En núna ætla ég bara að fara að leggja mig bráðlega, þar sem það er skóli á morgun. Segjum þetta ágætt í bili.

P.S. myndirnar, sem Jökull tók, frá fimmtudeginum, föstudeginum og laugardeginum eru komnar inn.




Athugasemdir ():