Deila á Facebook
« Hvaða dagur er í dag? | Aðalsíða | Supernova ógnað af Magna? »

Magnavaka - Pravda er æði!
Skrifað miðvikud. 13. september 2006 - 03:21
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Það er víst komið nýtt orð yfir það að vaka yfir RockStar: Supernova og er það orðið Magnavaka. Persónulega finnst mér þetta frábært orð, þar sem við erum jú að vaka yfir Magna.

En í kvöld fór ég bara með Jökli, Helga og Kamil á Sólon. Þar ætluðum við að horfa á Magna, en það var nú ekkert svoleiðis þar. Ívar, vaktstjóri Sólon, sagði okkur að það væri Magnavaka á Pravda, þannig við ákváðum að kíkja þangað. Við fengum okkur fyrst bjór á Sólon, eða ég og Helgi. Ívar átti ekki plastglös, þannig hann gaf okkur bara glerglösin.

Við röltum yfir á Pravda og viti menn, þar var helling af fólki og tvö stór tjöld með RockStar: Supernova í gangi. Það er reyndar ólöglegt að hafa skemmtistað opinn lengur en til 1 á virkum dögum, en Pravda ákvað að líta aðeins fram hjá lögunum og hafa staðinn opinn aðeins lengur og leyfa gestum sínum að horfa á þáttinn á tveim risastórum tjöldum. Þetta var æðislegt.

Stemmningin var æði, en þegar við komum þarna inn, biðum við aðeins í inngangnum og kláruðum bjórinn úr glösunum okkar. Þá kom starfsmaður til okkar og spurði hvort við ætluðum að vera inni eða úti. Við röltum þá bara inn fyrir og settumst niður við barinn, beint fyrir framan tjaldið.

Magni var að gera góða hluti, en því miður líkaði ekki Supernova við frumsamda lagið hans, en mér fannst það fínt. Mér fannst samt sem áður Toby standa sig best þarna í kvöld, þar sem hann söng mjög vel og flutti þetta með glæsibrag. Frumsamda lagið hans var líka mjög flott.

Við fengum okkur nokkra bjóra og sötruðum þá yfir þessari æðislegu sýningu. Ég keypti mér Sex on the beach og drakk hann með bestu lyst. Ég hef aldrei smakkað það áður og verð ég að segja að þetta er snilldar kokteill. Þá er það að fá sér alltaf svoleiðis næst. Aygo er samt mjög framarlega í röðinni yfir bestu kokteilana sem ég hef smakkað.

Eftir sýninguna fórum við Kamil bara á rúntinn og spjölluðum vel saman. Svo skutlaði hann mér bara heim og fór svo sjálfur heim. Núna er ég bara að blogga og svo fer ég að sofa. Það er stór dagur á morgun, þar sem ég verð að gera mikið af hlutum. Það er reyndar enginn skóli, þar sem það er einhver busavígsla í skólanum á morgun.

Helvítis busar. Þetta eru eins og maurar, verra en það! Þetta er út um alla ganga og er bara fyrir manni. Ég er líka ábyggilega með þeim elstu í þessum skóla, fyrir utan kvöldskólaliðið, sem eru mest allt bara gamlar kellingar, sem vinna á daginn og eru í skóla á kvöldin.

En núna ætla ég bara að fara að sofa, en ég vil þakka Pravda æðislega vel fyrir þessa Magnavöku í kvöld. Ég verð að segja að staðurinn hækkaði mikið í áliti hjá mér fyrir þetta. Kannski þetta verði aðaldjamm staðurinn hjá mér í framtíðinni? Hver veit?

En aðal RockStar: Supernova þátturinn er á morgun, þar sem þá velur hljómsveitin hver hlýtur söngvarastöðuna í hljómsveitinni. Ég ætla að vera mættur á Sólon í kringum 7, þar sem Ívar sagði að það myndi allt verða troðfullt kl 9, þar sem þá fáum við að vita hvort að Magni verði söngvari Supernova. Sjáumst hress og kát á Sólon á morgun!

Þið getið annars séð allt um keppnina og öll lögin, sem allir keppendurnir hafa flutt, hérna.

Góða nótt.




Athugasemdir ():