Deila á Facebook
« Magnavaka - Pravda er æði! | Aðalsíða | X Factor - Er nú ekki komið nóg? »

Supernova ógnað af Magna?
Skrifað föstud. 15. september 2006 - 02:17
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Það virðist líta út fyrir það. Þeir eru án efa hræddir um að hefði hann leitt bandið sem söngvari, hefði enginn tekið eftir hinum í hljómsveitinni, bara Magna. Er það ekki nógu góð ástæða?

En allavega, ég fór á Sólon í gær með Jökli, Helga, Grétari, Kamil, Gumma og Steina. Þegar við komum þarna voru Gummi og Steini bara á efri hæðinni að éta hamborgara og franskar. Við settumst bara hjá þeim.

Svo aðeins seinna byrjaði spennandi leikur á milli Manchester United og Celtic og fór sá leikur 3-2 fyrir Manchester United. Fólk segir að ég sé ekki áhugamaður um fótbolta. Hvaða vitleysa?! Þó ég hafi engan áhuga á að spila, hef ég mikinn áhuga á að horfa á meistaradeildina, HM og landsleiki þar sem Ísland tekur þátt.

Til þess að sanna að ég væri fótboltaáhugamaður þurfti ég að svara nokkrum spurningum sem Grétar lagði fyrir mig, og þurfti ég auðvitað að svara þeim öllum vitlaust. Ég var þó helvíti nálægt.

Hvað eru margir spilarar á vellinum?
Ég svaraði: 12
Rétt svar: 11 (með markverði)


Hvað eru margar mínútur í leik (ekki með framlengingu)?
Ég svaraði: 85
Rétt svar: 90


Svo var ég beðinn um að nefna 3 leikmenn í Manchester United, og nefndi ég: Saha, Rooney og Fletcher, sem er að vísu rétt, en ég stóðst samt ekki þetta skemmtilega próf.

En svo eftir að ég var búinn að sanna fyrir strákunum að ég hafi ekki hundsvit á fótbolta, byrjaði RockStar: Supernova. Það sem er/var mest pirrandi við þennan þátt, eru þessar helvítis auglýsingar. Þessi Pepsi Max auglýsing var að gera mig brjálaðan, eins þessar KFC auglýsingar. Guð minn góður!

En varðandi úrslitin í RockStar: Supernova. Ég er bara ágætlega sáttur við þau, þar sem þessir vitleysingar í Supernova ásamt Lukas Rossi, mynda ágætt teymi. Ég giska á að þeir eigi eftir að taka 1-2 túra, gefa út eina plötu og gefast svo bara upp.

Það er einungis einn maður í Supernova sem ég ber mikla virðingu til, og er það Jason Newsted, núverandi bassaleikari Supernova og fyrrverandi bassaleikari Metallica frá 1986-2001. Hann er eini maðurinn í Supernova með viti og kann svo sannarlega að meta gott rokk.

Magni og Toby voru bestir þarna, enda var spáð því að annar hvor þeirra myndi vinna þetta, en því miður var þetta svona:

1. Lukas
2. Dilana
3. Toby
4. Magni

En svona eins og fólk út um allan heim er að tala um, var Tommy Lee ógnað af Magna, þar sem Magni er svo miklu klárari og hæfileikaríkari en hann. Þið sem sáuð viðtalið við Tommy Lee áðan í Kastljósinu, heyrðuð hann hrósa Magna, en strax fór hann að bera sig og hann saman, með því að segja eitthvað á borð við:

Magni is great. He can sing, play the piano and the guitar. He can write his own lyrics and make his own songs. He's very similiar to me. I play the guitar and the piano, I write my own songs and I sing.

Þetta segir náttúrulega bara eitt; Tommy Lee og Supernova er ógnað af Magna, þar sem það er alvitað að Magni á fleiri aðdáendur en Supernova og á miklu meiri möguleika á frægð en þessir vitleysingar.

Hvað fannst ykkur annars um þetta?




Athugasemdir ():