X Factor - Er nú ekki komið nóg?
Skrifað föstud. 15. september 2006 - 21:33Jæja, nú er Ísland alveg búið að missa það. Það er komið að því að við ætlum að herma eftir enn öðrum raunveruleikaþættinum sem er að slá úti í löndum. Fyrst var það Idolið heimsþekkta og nú X Factor. Kannski er ég svona svakalega seinn, en ég var fyrst að taka eftir þessu núna áðan, þó þetta hafi verið tilkynnt fyrir einum og hálfum mánuði síðan. Ég var reyndar úti í útlöndum, þannig ég hef ágætis afsökun. 

Flestir þekkja X Factor, sem kom á eftir hinu vinsæla American Idol. Þetta eru alveg eins þættir sem ganga út á það eitt að finna þann sem hefur X Factorinn, svipað og með American Idol, sem gengur út á það að finna idolstjörnu. Eini munurinn (sem ég veit um) er að það eru aðrir dómarar, annað nafn og þátturinn er breskur, ekki bandarískur.
Simon Cowell er náttúrulega fastur í sínu sæti, þar sem hann getur sagt það sem honum finnst, er alveg sama hvort hann særi viðkomandi eður ei, og í flestum tilvikum er ég hjartanlega sammála honum. Einnig er hann breskur, þannig þetta hentar honum fullkomlega.
Ég veit hins vegar ekkert hvað Sharon Osbourne, eiginkona Ozzy Osbourne er að gera þarna. Hefur hún eitthvað vit á tónlist, fyrir utan það að hlusta á manninn sinn? Ég veit ekki til að hún hafi eitthvað verið í tónlistarbransanum. Ég hef ekkert á móti henni, hún er eflaust fínn dómari.
Að lokum er það Louis Walsh, sem ég hef ekki hugmynd um hver er. Hann var eitthvað í írska poppbransanum, en ég hef aldrei heyrt neitt um hann áður en hann byrjaði í X Factor.
Allavega, ég ætlaði nú ekki að fara svona ítarlega í bresku útgáfuna af X Factor, heldur íslensku. Alveg típískt að Íslendingar geti ekki verið smávegis frumlegir og komið með einhverja hugmynd af þætti sem hefur ekki komið áður.
En allavega, við stálum þessari hugmynd og nú er þátturinn að fara bráðlega í loftið með Einari Bárða, sem ég gjörsamlega fyrirlít. Þegar ég fór í áheyrnarprufurnar í Idolinu hérlendis, sagði hann að pinninn í tungunni minni væri eins og það væri laus tönn upp í mér. Halló! En allavega, það breytti ekki áliti mínu á honum, heldur bara hvernig hann dæmdi í þáttunum. Hann hefur engan veginn dómgreind til þess að finna poppstjörnu á Íslandi. Mér finnst hann vera reyna að stæla Simon Cowell svolítið.
Svo er það hann Páll Óskar. Hann er náttúrulega bara snillingur. Hann hefur dómgreindina og kann að fara rólega að því að dæma fólk, þó það sé hörmulegt. Hann særir ekki, hann stappar í fólkinu stálinu. Hann vil ég sjá áfram í dómarasætinu.
Svo er komin einhver ný, og er það hún Elínborg Halldórsdóttir. Ég hef ekki hugmynd hver það er, hef aldrei heyrt neitt um hana. Hún á víst að vera einhver svaka pönkdrottning og er betur þekkt sem Ellý í Q4U. Hvað sem það nú er.
Mér líst ekkert á það að við séum að stela öllum hugmyndum að þáttum sem eru að slá í gegn þarna úti. Þetta X Factor er ágætis hugmynd að þætti hjá Simon Cowell, þó mér hafi nú fundist American Idolið vera alveg nóg. Kannski er ég bara einn um þá skoðun?
Hvað finnst ykkur?

Athugasemdir (